Málaliðarnir á Suðurnesjum 18. mars 2010
Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Atvinnumál, Glæpir og rannsóknir, Stjórnmál.trackback
Í gær bárust fréttir af því að fyrirtæki með einkaher ætlaði að koma sér upp aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Var það gefið upp að þetta fyrirtæki myndi vera í því að leigja út þotur til heræfinga og Suðurnesjamenn virtust fagna þessari auknu flóru í atvinnustarfsemina, flóru sem kallast venjulega málaliðar.
Já, málaliðar. Það er ekkert til sem heitir einkaherjafyrirtæki, það er einfaldlega fínna orð yfir málaliða nútímans sem komið var inn í orðræðunna erlendis vegna hins slæma orðspors sem fer af þeim bransa. Á ensku kallast nútíma málaliðar nefnilega Private military companies(einnig contractors) eða PMC, svo maður noti skammstöfunina. Þessi fyrirtæki hafa helst verið virk í Afganistan og Írak og illræmdasta fyrirtækið er Blackwater sem í dag kallar sig Xe Services LLC, eftir að hafa verið gert útlægt frá Írak vegna skeytingarlaus dráp á almennum borgurum. Blackwater rekur einnig fjölda dótturfyrirtækja sem m.a. sjá um þjálfun og fangaflug fyrir CIA til landa þar sem fangarnir sæta pyntingum á borð við að vera soðnir lifandi, svo dæmi séu nefnd um hverskonar starfsemi heyrir einnig undir það fyrirtæki.
En gott og vel, snúum okkur að þessu málaliðafyrirtæki ECA Program Ltd, sem vill hasla sér völl á Suðurnesjum sem athafnamiðstöð. Ef maður byrjar á því að skoða heimasíðuna þeirra þá hefst sýningin með stuttu myndbandi til að kynda upp í áhugasömum viðskiptavinum, myndbandi sem að mér skilst, er atriði úr bíomyndinni Top Gun með Tom Cruise. Ekki amaleg byrjun það.
Þegar komið er inn á síðuna sjálfa og byrjað að skoða upplýsingar um fyrirtækið er mjög lítið þar að finna fyrir utan eingöngu myndir frá Keflavíkurflugvelli hjá þessu málaliðafyrirtæki sem segist hafa starfsaðstöðu á þremur flugvellum í Evrópu. Hvaða flugvellir er ekki hægt að finna stafkrók um, og einstaklega skrítið er það að aðeins sjást myndir frá flugvelli sem málaliðarnir eru að sækja um að fá aðstöðu á. Einnig er eins og bent var á, þá er fyrirtækið skráð á pósthólf í hollenskum smábæ og litla skrifstofu þar.
En gott og vel, það er ýmislegt fleira sem maður getur lesið þarna, sem segir manni að þetta sé ekki endilega bara eitthvað leigufyrirtæki fyrir heræfingar. Þarna má nefnilega lesa það að þeir séu tilbúnir 24/7 klst. á dag með þjónustu sína, þeir ábyrgist viðbúnað og þjónustu sína 75-80% tímans sem þeir taka þátt í aðgerðum og þeir veiti þjónustu allt frá “tactical level” til “operation level”. Eða svo maður snari hernaðarmálinu yfir, þeir veita þjónustu við stjórnun og skipulagningu hernaðaraðgerða einnig og það hvar sem er í heiminum og fyrir hvern sem er, þeir eru eins og segir á heimasíðunni þeirra, ópólitískir og ekki tengdir neinum, semsagt ráða sig til hvers sem er: Bandaríkja-hers, einræðisherra, skæruliðasamtaka, fíkniefnabaróna, hver veit hverja aðra?
Það næsta sem ber að skoða eru þeir sem eru í forsvari, einhver Peter Campbell sem Hr. Google skilaði litlu sem engu um enda algengt nafn sem fannst m.a. meðal dauðra hermanna í Írak og sem einhevr starfsmaður Alcatel í Bandaríkjunum svo dæmi séu nefnd fyrir skemmtilegar samsæriskenningar. Hinn sem er nefndur og titlaður sem forstjóri finnst örlítið meira um, hann er einnig skráður með fragtflugfélag í Lúxemborg sem heitir ten Cate Industries Inc.
Þegar maður tekur svo næsta skrefið og athugar með þetta fyrirtæki þá poppar upp hjá Hr. Google óvæntar slóðir með fyrirtækjanöfnum sem bera nafnð ten Cate að einhverjum hluta: hið breska Royal ten Cate sem framleiðir m.a. brynjur fyrir her og lögreglu, TenCate Advanced Armour sem er í eigu Royal ten Cate(og keypti hergangafyrirtækið AML nýverið), sem staðsett er einnig í Danmörku og Frakklandi og er í brynvörnum fyrir skriðdreka, flugvélar og skip m.a., TenCate Advanced Composites USA, Inc. sem þjónustar flugiðnaðinn, bæði farþega- og herflugvélar með ýmsum búnaði. Nú er frekar líklegtt að þetta séu tilviljanir þar sem nafnið ten Cate finnst einnig í eftirnöfnum fólks í Hollandi en maður spyr sig samt ósjálfrátt hvort þessir aðilar séu eigendur þessa málaliðafyrirtækis sem vil fá aðstöðu á Suðurnesjum. Og hverjir eru eigendur fyrirtækisins? Ekki vilja forsvarsmenn þess upplýsa það.
Hið næsta sem maður rekur sig svo á, er það sem komið hefur fram í fréttum og haft eftir forstjóra og tengilið fyrirtækisins hér á landi, þ.e. hvar þeir hafa starfað. Þeir hafa starfað í Afganistan og í Darfur. Nú má vel vera að það sé einhver heræfingaflug og kennsla í Afganistan, mitt í öllu stríðsbröltinu þar, en ef við veltum því upp þá eru málaliðar þar yfirleitt ekki í einhverri kennslu, þeir eru í öryggisgæslu, þeir eru í sérhæfðum aðgerðum fyrir CIA, þeir eru í fangaflugi, nokkuð sem gæti hugsanlega verið tengt þessu lúxemborgska fyrirtæki hans Melvilles sem enginn veit deil á(og gæti þess vegna verið dulnefni, hver veit). Darfur er svo ekkert æfingarsvæði, Darfur er vígvöllur þar sem er verið að fremja þjóðarmorð á fólki og þá spyr maður sig, fyrir hverja voru þeir að vinna þar, voru þeir að vinna fyrir uppreisnarmenn þar eða voru þeir að vinna fyrir stjórnina og sveitir þeirra sem drepa saklausa borgara í hrönnum? Og þá hvað voru þeir nákvæmlega að gera? Voru þeir að fljúga yfir í könnunarflugi fyrir stjórn, voru þeir að kenna skæruliðum á loftvarnir eða voru þeir að taka þátt í bardögum?
Nú svo maður bæti aðeins við frá lestri um málaliðabransann þá eru sum þessi fyrirtækja einnig “dummy corps” fyrir ríkistjórnir og leyniþjónustur þegar þarf að sinna einhverjum sóðaverkum. Bretar hafa t.d. sent SAS-menn til Kólumbíu þar sem þeir eru afskráðir úr hernum og fara þangað sem málaliðar um tíma en snúa svo aftur í sveitirnar og einnig er það blessað CIA sem hefur verið með fjöldann allan af slíkum fyrirtækjum á sínum snærum í flugbransanum og ekki bara Air America í den heldur ennig fyrir fangaflugin í dag þar sem fólki er rænt og flogið með það til landa þar sem leyfilegt er að sjóða það lifandi eða taka sérstaka meðferð með rakvelablöðum á kynfæri þeirra.
Nú er mér nokk sama hvað Björgvin G. segir um að þetta sé ekki hernaðarfyrirtæki því þetta er það. Þeir auglýsa sig sem flughernaðarþjálfara fyrir heri allra þjóða, þeir eru með heilmikinn búnað tengdum stjórnun hernaðaraðgerða, þeir eru með heilmikinn búnað tengdan loftvörnum og loftbardögum og þeir selja sig til hvers sem er, hvenær sem er.
Þetta er ekki atvinna sem Íslendingar þurfa né eiga að tengja sig við, sérstaklega þar sem hendur þjóðarinnar eru blóði ataðar eftir ákvörðun tveggja manna um að taka þátt í þeirri svívirðu sem Írakstríðið var að ógleymdu því að hinar einkareknu fangaflugsvélar fyrir CIA flugu hér í gegnum lofthelgina, og ef eitthvað er þá eigum við að horfa til þess hvernig málaliðar þar, í Afganistan og í Afríku hafa hagað sér og snúa þessum mönnum við á punktinum.
Ef ekki þá eigum við að halda áfram á sömu braut og bjóða næst kólumbískum viðskiptahring frá Medellin til að opna hér evrópska efnaframleiðslustöð og bjóða þeim upp á aðstöðu í Helguvík eða Reykjanesbæ til fullvinnslu á hressandi nasadufti sem kallast kókaín ásamt innpökkun í neytendaumbúðir fyrir Evrópumarkað og hinu sívinsælu efnablöndu krakk.
Það myndi falla eins og lfís við rass við þessa málaliðastarfsemi, kólumbíski viðskiptahringurinn þarf bæði á einkareknum herjum og hernaðartengdri fluggæslu og fragtflutningi að halda.

[...] Ef þið vitið ekki hvað þetta er þá mæli ég með að þið lesið færsluna hjá AK-72. [...]
Takk Aggi fyrir frábæra færslu. Mun vísa á hana.
Flott færsla Aggi. Vonandi lesa sem flestir.
Málaliðabransinn er gruggugur svo ekki sé meira sagt og enginn getur mótmælt því að þeir hagnast meir, þeim mun meiri ófriður og óöld er í heiminum. Bransinn bólgnaði með veldisvexti á “hauka-árunum” í USA og Írak var þeirra Klondyke. Of snemmt að segja hvernig þessi einka-stríðsbransi muni þróast áfram, sjálfsagt sitja þessir menn og biðja og vonast eftir innrás í Íran eða eitthvað álíka, nú eða vaxandi spennu á Norðurslóðum. “Strategic long term planning”.
Margt um þetta fyrirbæri má lesa t.d. í “Shock Doctrine”.
Já, nú virðumst við vera orðin sú þjóð sem leitað er til af öllum þeim sem ekki fá landfestu annars staðar í heiminum.
Fallega, frjálsa landið mitt, hvað hefur þér verið gert ?
Takk Aggi fyrir að vera á vaktinni.
Geturu gefið mér link á hvar fréttir eru af því að fangar eru soðnir og skorið í kynfæri þeirra ??
Væri til í að skoða það betur, hef ekki heyrt af þessu og ef þetta er satt mun þetta án efa breyta skoðun minni á ýmsu í þessum bransa.
Það sem ég er að vitna til tengist CIA-fangafluginu þó málaliðar komi ekki við sögu þar nema við fangaflug líkt og Blackwater o.fl.
Þetta kemur fram m.a. í bók blaðamannsins Stephen Grey sem skrifaði bókina Ghost Plane: The true story of the CIA Rendition and Torture Programs. Þar er frá bls. 173 fjallað um aðgerðir CIA sem fengu aðsetur í Uzbekistan þar sem pyntingum var “out-sourcað” til einræðisherrans þar sem hafði dálæti á því að sjóða pólitíska andstæðinga sína þar. Á Wikipedia er m.a. vitnað til gagnrýni breska sendiherrans, sem ásamt ýmsum skýrslum er vitnað til í bók Greys og segir svo á Wikipedia:
“The international community has repeatedly criticized the Karimov administration’s record on human rights and press freedom. In particular, Craig Murray, the British Ambassador from 2002 to 2004, wrote about financial corruption and human rights abuses during his term in office and later in his memoirs, Murder in Samarkand,[13] pointing to reports of boiling people to death. The United Nations found torture “institutionalized, systematic, and rampant” in Uzbekistan’s judicial system.[14] For several years, Parade magazine has selected Karimov for being one of the world’s worst dictators, citing to his tactics of torture, media censorship, and fake elections. [15]”
Það sem CIA gerði var að fljúga með fanga þangað frá Afganistan m.a. og eftirláta Karimov þá sem þeir vildu yfirheyra og hann framkallaði þau svör með pyntingum sem þeir vildu heyra. Murray vakti svo athygli í sínu heimalandi á aðferðarfræði öryggislögreglu úzbekistans sem notaði svo þessa aðferð að pynta fólk til dauða með því að sjóða það.
http://en.wikipedia.org/wiki/Islam_Karimov
Varðandi svo kynfæraskurði þá kemur það einnig fram í sömu bók, lýsingar á einum fanga sem fluttur var til Sýrlands af CIA í gegnum eitt af fangaflugum sínum sem var dótturflugfélag og hafði verið rænt. Frá Sýrlandi var hann eftir tíma sendur með flugvél yfir til Marokkó þar sem hann hvarf inn í leynifangelsi þar. Eftir góðan tíma þar sem barsmíðum og öðrum “óhefðbundnum” yfirheyrsluaðferðum var beitt, var gripið til þes ráðs að binda viðkomandi niður í stól nakinn og svo var limur hans skorinn með rakvélablaði þunnum skurðum. Þetta var svo endurtekið með óreglulegu millibili allavega einu sinni í mánuði þar sem óttinn og biðin eftir þessu ollu því að einhverjum mánuðum síðar þá “játaði” fanginn það að hann hefði tekið þátt í samsæri AL Queda um að ætla að loka íbúðarbyggingu af BNA og fylla hana með gasi.
Upplýsingar um þetta má svo örugglega finna í skýrslum mannréttindasamtaka og eitthvað held ég að bresku blöðin hafi fjallað um þetta. Þetta er svona það sem ég get vísað í hvelli á.
Eitt enn, ég nefni þessa bók fyrst og fremst vegna þess að hún er bæði góð heimild og vel unnin, og svo hinsvegar að það eru mörg fleiri dæmi um þetta. Mig minnir að þar sé einnig talað um notkun CIA á málaliðum í hryðjuverkastríðinu.
Bush-stjónin einkavæddi bæði hernað og njósnir/yfirheyrslur og hann er langur listinn í bókinni hennar Naomi Klein “The Shock Doctrine. The Rise og Disaster Capitalism.” og þetta (skúffu)fyrirtæki er með fingraför CIA út um allt.
Ég leit stuttlega yfir heimasíðu þessa fyrirtækis og ég gat ekki betur séð en að þetta væri þjónustufyrirtæki við heri. Absúrd starfsemi en tímanna tákn auðvitað þegar allt er outsourcað.
Sem sagt, skv. þessu er þetta fyrirtæki ekki í hernaði, einungis heræfingum.
Fyrir mér er alveg nóg að starfsemin tengist hernaði með þessum hætti, við eigum ekki að láta bendla okkur við hernað og viljum þess vegna ekki veita þessa aðstöðu.
Á móti bendi ég að að mörg þessara málaliðafyrirtækja lýsa sér sér sem þjónustufyrirtæki s.s. Blackwater(nú XE Services) sem m.a. veitir þjálfunarþjónustu, Aegis o.fl.
Þjónustufyrirtækin Titan Corp og CACI sem voru eignuð um 36% illrar meðferðar og pyntinga í Abu Ghiraib, eru t.d.:”is a leading provider of Intelligence, Surveillance and Reconnaissance (ISR) systems, secure communications systems, aircraft modernization, training and government services”(Titan sem heitir nú L-3 Communications). Starfsemi CACI er t.d. lýst svona:”CACI services and solutions help federal clients provide for national security, improve communications and collaboration, secure the integrity of information systems and networks, enhance data collection and analysis, and increase efficiency and mission effectiveness”
Fallegt manifesto fyrir ljóta verknaði.
Er ekki fínt að hafa svona gaura hér ef okkur skyldi takast að safna aur fyrir blóðuga bolludaginn?
Rosalega skemtilegur pistill hjá þér og fróðlegur mjög. Annars væri gaman að fá þennan einkaher hingað til lands, leigja hann yfir hundadaga og gerast konungur yfir Íslandi eins og Jörgen vinur okkar gerði forðum daga. En já, þetta voru bara mínir 10 aurar.
[...] Read more… [...]
Hjó eftir því að þú minntist þarna á starfsemi fyrirtækisins í Afghanistan og fleira .. vorum við Íslendingarnir ekki sjálf að senda friðargæsluliða þangað, fullvopnaða, í einmitt þjálfunarstörf?
Jú,, við sendum friðargæsluliða sem er allt annar handleggur og þeir voru í stjórn á Kabúl-flugvelli og síðar meir í aðstoð við staðarlögregluna þangað sem þeir voru sendir annars staðar í landinu. Þar eru þeta opinberir fulltrúar ríkis, kyrfilega merktir í hvaða nafni þeir koma, þeir bera ábyrgð gagnvart heimaríkinu og skyldur gagnvart því en aftur á móti bera málaliðar eingöngu skyldu gagnvart launaseðli sínum og óljóst fyrir hvern þeir starfa oft ásamt því að þeir gangast ekkert undir ýmsa skilmála sem herir eiga að fara eftir samkvæmt alþjóðasáttmálum..
Það er líka mismunandi tekið á hermönnum/friðargæsluliðum annarsvegar og málaliðum hinsvegar í Genfar-sáttmálanum, jafnvel ef mig minnir rétt að málalliðar falli undir sama flokk og “unlawful combatants” sem Bandaríkjamenn hafa nýtt sér tiil að flytja Talibana o.fl. til Guantanomo.
Ég fann svo aðeins ítarlegri frétt í Fréttablaðinu fyrr úr vikunni. Þar er talað um að E.C.A. segist hafa verið í flutningum í Afganistan.