jump to navigation

Eitt stórt dæs 28. júlí 2010

Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Hrunið, Skýrsla Rannsóknanefndar Alþingis, Stjórnmál.
trackback

Stundum dæsi ég ógurlega yfir löndum mínum sem dæsa einnig yfir mér, suma daga meira en aðra og nú er eitt algjört megadæs í gangi hjá mér sem veldur þreytu á þeim: þrjár umræður tengdar hinu maðkaða Magma-máli.

Fyrsta stóra dæsið hjá mér hefur átt sér nokkurra daga undirbúning þar sem maður var farinn að verða vel þreyttur á því hve landinn virðist litið læra af Skýrslunni og Hruninu almennt. Óp um að allir þeir sem fettu fingur út í Magma og leggðust á móti vafasömum hlutum á borð við skúffufyrirtæki, skuggalegs aflandskrónubrasks, viðskiptaháttum á borð við að tilboðum væri lekið til Magma, óeðlileg lántaka með einstaklega lágum vöxtum frá seljendum og það með veð í hlutabréfunum sjálfum, seljendum sem seldu sitt með stóru tapi og óeðlilegri stjórnsýslu á bak við allt saman, óp um að allt þetta fólk væri vont fólk sem leggðist á móti “erlendri fjárfestingu” í landið.

Óp sem fengu mann til að halda að búið væri að gleyma Skýrsluni þar sem minnst er á svona hlutiog þegar feðgar tveir komu frá Rússlandi með “erlenda fjárfestingu” sem fengin var að láni hér heima svo þeir gætu keypt banka í gegnum óeðlilega stjórnhætti, banka sem þeir rændu svo. Feðgar sem eru nú á lista yfir sjö mestu skúrka efnahagshrunsins í erlendum fjölmiðlum.

Við skulum svo ekki einu sinni ræða nú almannahagsmunahlutann í þessu öllu heldur vinda okkur í næsta dæs mitt yfir landanum er stóra mál gærdagsins: orð dagsins hjá aðstoðarmanni menntamálaráðherra.  Ef miðað sé við Fésbókina og blogg þá trylltist landinn af hneykslun annarsvegar, hagaði sér eins og aldrei hefði sést annað eins í tölvupósti sem átti ekki að fara út fyrir hús og lét eins og þarna hefði komið í ljós nýtt Watergate. Ekki ætla ég að verja aðstoðarmanninn sem á að biðja afsökuanr opinberlega að mínum dómi og fara á námskeið í notkun tölvupósts en ég játa að mér finnst sumir ansi grófir að heimta brottrekstur hans út af einu orði, sérstaklega sömu aðilar sjá kannski ekkert að því að óheiðarlegt skúffufyrirtæki í Svíþjóð með bágt viðskiptasiðferði, eignist orkufyrirtæki í gegnum spillta bankamenn og stjórnmálamenn.

Hitt málið með tölvupóst þennan er upphlaupið með að þetta sé spuni hannaður af ríkistjórninni. Tveir menn með góða reynslu úr blaðamennsku, Friðrik Þór Guðmundsson og Illugi Jökulsson blása á þetta og fátt eitt við það að bæta nema að spuni er eitthvað til að stýra umræðu eða afvegaleiða frá einhverjum ákveðnum atriðum, nokkuð sem má sjá glögglega í þessari umræðu um að fólk sem sé á móti Magma séu útlendingahatarar sem eru á móti erlendri fjárfestingu, koma fókusinum annað. Ég sé ekki hreinlega ekki eftir lestur bréfsins frá aðstoðarmanninum hvaða spuni var í gangi og hvað átti að afvegaleiða frá? Getur einhver bent mér á það nákvæmlega? Er kannski ekki þessi umræða um spunann einfaldlega spuni í raun?

Og þá færum við okkur að þriðja hlutnum sem veldur  lokadæsi hjá mér. Þegar ljóst var hvað ríkistjórnin ætlaði að gera sem tapaðist í því að margir ákváðu frekar að eyða allri orku sinni í að gera orðanotkun að aðalatriði þá var þó einnig ákveðinn hópur sem reis upp og hafði verið að krefjast þess að ríkistjórnin myndi gera eitthvað með Magma og því tengt, sem hóf að þvarga um það að ríkistjórnin væri að þagga niður málið, Magma-málið hefði í raun verið spuni til að bægja athyglinni frá öðru eða álíka yfirlýsingar um hvað ríkistjórnin sé ennþá svo vond í þessu máli.

Ahem, öhm, öh, huh?

Lítum á þetta. Eftir andóf utan frá sem innan þings þá ákveður ríkistjórnin að stöðva staðfestingu á samning sem þykir frekar vafasamur þar sem þjóðin á í hættu að glata orkufyrirtæki í hendur braskara. Er það ekki af hinu góðu jafnvel þó e.t.v. sé verið að kaupa sér kannski örlítinn frest til að kafa betur í málin? Hún ákveður einnig að hefja opinbera rannsókn á þessu einkavæðingarferli þar sem ýmislegt vafasamt tengt stjórnmálamönnum og styrkjum átti sér stað, REI-málið og svo einnig að fulltrúar almennings hafa selt hlut í fyrirtækinu með tapi fyrir almenning sjálfan. Er það ekki af hinu góða að þetta sé rannsakað loksins? Einnig á að koma því þannig fyrir að orkufyrirtækin haldist í almannaeigu og farið verði að vinda ofan af þeirri óheillastefnu einkavæðingar orkufyrirtækja sem tekin var af Sjálfstæðisflokknum og skósveinum í Framsókn á sínum tíma. Er það ekki af hinu góða?

Ég dæsi yfir því vegna þess að þarna erum við ekki bara að sjá að ríkistjórn tekur tillit til radda almennings sem hingað til hefur verið lítið hlustað á, sérstaklega í tíð Sjálfstæðisflokks Davíðs Oddsonar sem sýndi almenningi oft á tíðum hroka og lítt dulbúna fyirrlitningu, heldur erum við einnig að sjá að það er loksins sagt hingað og ekki lengra við hýenur og hrægamma Hrunsins, það er sagt stopp við banksterana sem tengjast Magma-málinu nánum böndum, það er sagt að nú sé komið nóg við úlfahjörð frjálshyggjunnar sem veit fátt betra en að rífa í sig almenning og veski hans.

Maður á því að fagna svona hlutum en ekki fordæma eða gera lítð úr þegar eitthvað gerist í málunum, styðja það en jafnframt veita aðhald svo eitthvað komi gott úr þessu og fara að taka Skýrsluna alvarlega í stað þess að kvarta og kveina yfir því að þeir sem fetta fingur út í vafasamar fjárfestingar, innlendar sem “erlendar”, séu vont fólk og fókusera á aðalatriðin í stað þess að tapa sér í látum um atriði sem skipta engu máli þegar upp er staðið eftir 1 mánuð, eitt ár, 10 ár.

Þangað til þetta lærist þá ætla ég að dæsa yfir landanum sem dæsir örugglega jafnmikið yfir hræsnisfullum, prédikandi bjánum eins og mér.

DÆS!

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google Bookmarks
  • Blogplay


Ummæli

Sorry comments are closed for this entry