jump to navigation

Bankamannatekjur 2008 og 2009 30. júlí 2010

Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Atvinnumál, Fjármál.
trackback

Einar Karl Friðriksson rifjar upp í pistli á bloggsíðunni sinni mótmæli og vandlætingu SUS á birtingu tekna. Þar má sjá vitnað til fréttar um tekjur bankamanna frá árinu 2009 og er áhugavert að bera saman tölfræðina þar og tölfræðina vegna álagningar fyrir 2009.

Þar sem upplýsingar eru ekkert nákvæmar þá nota ég meðaltal fyrir tekjubilið fyrir tölurnar og er þetta því gróft. Ekki reikna ég heldur inn í tryggingagjald, lífeyrissjóð eða annan kostnað sem bætist ofan á þessi laun fyrir fyrirtækin.

Árið 2008 eru 273 aðilar í fjármálageiranum með yfir milljón í laun á mánuði. Þeir skiptast svona:

Lítum því næst á það sem kom fram með árið 2009 eftir Hrun. Þar er enn sem komið er frekar grófar upplýsingar þó maður reyni að gera sitt besta og tek ég einnig dæmi um laun einstakra manna.

Ef við hugleiðum þetta aðeins þá vegna þess að fréttin frá 2009 er ítarlegri unnin, er erfiðara að sjá með 73 manna tekjuhærri hópinn sem virðist þó hafa verið talsverðir hálaunamenn miðað við hina þrjá. Hreiðar Már og Sigurjón eru reyndar svo “láglaunamenn” í dag, teljandi fram í kringum 300 þúsund króna tekjur. Eiginlega kannski eina breytingin sem má sjá út úr þessu er að það hefur fækkað um 73 ofurlaunamenn en þó gæti vegna ónákvæmni í frétt, verið sami kostnaður fyrir fyrirtækin í raun.

Maður veltir því ósjálfrátt fyrir sér hvort launin hafi lækkað í raun þó þessi geiri sem skilar ekki neinum framleiðsluverðmætum heldur er þjónustugeiri, hafi ollið hér efnahagskreppu. Allavega grunar manni að þeir sem hæst hafa launin þarna haldi sínu en eins og venjulega þá er lækkað við fólkið á gólfinu og í stað þess að lækka kostnaðinn af þessum rándýru starfsmönnum þá er gripið til þess að skerða þjónustu sem kostar smáaura en veldur aukinni óánægju fórnarlamba Hrunsins.

Eins og t.d. að loka útibúinu á Stöðvarfirði.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google Bookmarks
  • Blogplay


Ummæli

Sorry comments are closed for this entry