Að sóa peningum í prump 8. febrúar 2010
Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Hrunið, Stjórnmál.trackback
Ég er pirraður yfir einni frétt í dag.
Það er ekki fréttin um Tryggva Þór enda kemur ekkert á óvart með þann mann lengur. Það er ekki frétt um að menn séu hneykslaðir á Arion-banka fyrir dekrið við Haga og Samskip enda er þetta banki, ekki heiðarlegt fyrirtæki með siðferði að leiðarljósi.Það er ekki heldur fréttin um spilavítið í gömlu Heilsuverndarstöðinni og á Hótel Nordica eftir forskrift fótboltabullna sem hafa fengið boltann of oft í hausinn, sem munð ýta undir spilafíkn og það er síður en svo þýdda fréttin af bloggi Egils Helga þar sem kemur fram að Davíð Oddson talaði tungum tvennum við hollenskan starfsbróðir sinn en fjölmiðlum láðist að geta þess hér á landi í sinni lélegu blaðamennsku hér á landi.
Nei, það sem pirrar mig virkilega eru frétt um að Mischon De Roya, sú lítils metna lögfræðistofa, skuli dirfast að rukka 25 milljónir fyrir prumpið sem þeir framreiddu vegna kröfunnar frá stjornarandstöðunni sem vildi fá álit sem hljómaði nákvæmlega eins og hún vildi í leðjuslagnum. 25 milljónir takk fyrir, tuttugu og fokking fimm milljónir sem betur hefði verið varið í heilbrigðisgeirann, menntageirann eða jafnvel þar sem það gagnast einnig: í rannsókn sérstaks saksóknara á glæpsamlegum gjörðum Landsbankamanna.
En nei, þessu fé var sóað í lögfræðinga sem mergsjúga samfélagið af fé sem gæti farið til aðkallandi mála, álit sem skipti engu máli nema fyrir sandkassann og til að gera þetta enn meira dýrindisprump sem pantað var af stjórnarandstöðunni, þá eiga 10 milljónir af þessu fé að renna til fyrrum starfsmanns Björgólfs Thors, Heimdælingi og vini Sigurðs Kára, fyrrum þingmanns og aðstoðarmanns Bjarna Ben, formannsins sem þessa daganna djöflast við að reyna að hámarka skaðann á íslensku samfélagi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, í voninni um að komast til valda á ný og dreifa athyglinni frá Vafningi sínum og öðrum glæpsamlegum vandræðum FL-okksins.
Ég segi eins og Jóhann Hauksson, þetta er hámark ósvifninnar og gott betur en það, þetta er eins og að borga fyrir að láta prumpa framan í andlitið á sér án þess að finnast það gott, hvað þá að maður vilji sóa peningum manns í slíkt athæfi til handa helbláu jakkafatagerpi í sandkassaleik með N1-pabbastrákum, pabbastrákunum sem vilja nú að maður borgi fyrir þennan leikaraskap þeirra.
Fnæs.

Ummæli
Sorry comments are closed for this entry