Hér á Suðulandi eru gamalkunnug andlit komin á stjá öll í nafni stjórnmálaflokkanna gamalkunnu. Nú á að ná völdum í bæjar- og sveitarfélögum í nafni Sjálfstæðismanna, framsóknarmanna eða samfylkingarmanna og stundum í nafni Vinstri grænna. Flestir þeirra sem eiga sjens eru þægir og góðir flokksmenn, framsóknarmenn, sjálfstæðismenn eða samfylkingarmenn og stundum Vinstri grænir. Síðan útloka flokksmennirnir sem fá flest atkvæði þá flokka sem hafa fengið færri atkvæði. Þeir verða nánast sem áhorfendur á bæjarstjórnarfundum. Alveg er undir hælinn lagt hvort þessir frambjóðendur hafi nokkurn áhuga á umhverfi sínu, vilji skapa betri bæ eða betri sveit. Að fara í sveitarstjórn er einfaldlega ein af fáum leiðum til þess að verða eitthvað í lífinu annað en óbreyttur Sjálfstæðismaður, framsóknarmaður, Samfylkingarmaður eða stundum Vinstri grænn. það er svo sannarlega kominn tími til þess að endurhugsa og endurskipuleggja sveitarstjórnarkerfið og hvernig þar er unnið. Það á ekkert að vera í klóm flokkanna (sem hafa breugðist þjóðinni). Það á ekkert að vera í klóm fortíðar.


Sammála, en verð að bæta einhverju við það svo athugasemdin birtist.