Það er að koma í ljós að ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu er að standa sig mjög vel. Sú ríkisstjórn tekur við erfiðasta búi lýðveldistímans en virðist vera að ná betri árangri en nokkur þorði að vona þrátt fyrir eilift tuð og populisma stjórnarandstöðunnar og raunar úr öllum áttum einnig úr eigin ranni.
Eftir hrun tekur við algjört valdaleysi eða tómarúm sem allir reyna að stökkva inn líka aðalpersónur hrunsins. Íslenska stjórnkerfið var jafn vanbúið að takast á við þau átök eins og það var vanbúið að greina og takast á við hrunadansinnn áður. Samt hefur ríkisstjórninni tekist eftir vonum og umfram það. Hún á hrós skilið. Nú ætti fólk að fylkja sér betur að baki ríkisstjórninni og draga úr þessu eilífa tuði. Þetta á ekki síst við um Ögmundararminn í Vinstri grænum og hægri arminum, ef arm skyldi kalla, í Framsókn. Sjálfstæðisflokkurinn virðist sem betur fer vera í sumarfríi.

