Ég sé að í dag höfum við færst skrefinu nær aðild að ESB. Að því gefnu að samningur verði góður munu lífskjör alls almennings batna við inngöngu og stjórnkerfið fá nauðsynlegt aðhald. Samskipti okkar við nágrannaþjóðir komast aftur á eðlilegan grunn. En hagsmunasamtök munu berjast stíft á móti hugsanlegri aðild.

