Ruddasiðferðið hefur hreiðrað um sig meðal þeirra sem ráða fjölmiðlum. Þeir ráðamenn eru reyndar úr sömu smiðju og stjórnuðu landinu. Fyrst er Ólafur Stephensen, sem var á góðri leið með að gera Morgunblaðið að alvöru blaði, rekinn til þess að hægt væri að beita blaðinu í þágu réttra skoðana. Næst var Jón Kaldal sem hafði þróað Fréttablaðið skemmtilega rekinn að því er virðist til þess að koma Ólafi Stephensen að, væntanlega vegna tilhlýðilegra skoðana hans. Báðir, fyrrverandi, mjög góðir, reknir. Loyalitet ekki til. Maður þakkar bara fyrir að manngerðin sem stjórnar blöðunum hefur ekki fest víðar rætur eins og t.d. í biskupsembættum.

