Categories

Nei- ið mitt

Nú rífast þeir um það hvað Nei-ið mitt þýddi. Það er best að segja það strax að ég var ekki að kjósa á móti ríkisstjórninni. Ég var heldur ekki að lýsa því yfir að okkur bæri ekki að borga. Ég var ekki að lýsa því yfir að ég vildi fara dómstólaleiðina. Það var heldur engin þjóðernishyggja í Nei-inu mínu. Ég var einfaldlega að ráðstafa atkvæði mínu með þann verueika í huga að samningurinn sem kosið var um er dauður vegna þess að við höfum fengið annað og betra tilboð. Nei -ið var því eðlileg þvinguð niðurstaða. Nú vona ég bara að Steingrímur fái frið til að semja. Ríkisstjórn hans og Jóhönnu er eftir allt saman eina ríkisstjórnin sem hefur siðferðilegan grundvöll til þess að fara hér með völd.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

1 comment to Nei- ið mitt