42


Leiðrétting á ummælum Unnar Kristjánsdóttur í DV
16. júlí 2010, 01:03
Filed under: Uncategorized

Í viðtali sem tekið var við Unni G. Kristjánsdóttir, formann nefndar um erlenda fjárfestingu í DV fær hún að halda nokkrum rangfærslum fram án áskorunar.  Það sem stakk mig mest var eftirfarandi:

Afstaða Silju Báru og Bjarkar í þessu máli var ljós frá upphafi og höfðu lögfræðiálit og rannsókn málsins engin áhrif á þær – gagnstætt mér sem hlustaði á rök annarra líka. Ég hef allan tímann borið virðingu fyrir skoðunum þeirra á málinu og tel mig hafa sýnt það í hvívetna enda aflaði ég gagna og setti fram mjög gagnrýnar spurningar til sérfræðinganna í gegnum allt vinnuferlið sem stóð frá því í sept. fram í mars 2010.”

Þarna er hún einfaldlega ekki að segja satt!  Það komu nefnilega lögfræði álit á báða vegu.  Að vísu voru þau sem voru ekki hagstæð fyrir Magma ekki pöntuð af samfylkingunni og það kann að valda því að hún ákvað að gleyma þeim.  Svo heldur hún því fram að “vissir” nefndarmenn séu vanhæfir en passar sig á því að nefna engin nöfn, en maður þarf að vera ansi tregur til að lesa ekki milli línana hverja hún á við.



Opið bréf til utanríkisráðherra
31. maí 2010, 20:19
Filed under: Stjórnmál

Sæll Össur

Sem íslendingi og mannvini hryllir mig við þeim glæpum sem stjórnvöld í Ísrael fremja á minnihlutahópum í landi sínu.  Í allt of mörg ár hafa ísraelar komist upp með hin ýmsu ódæðis í skjóli vesturlanda.  Nú er hins vegar svo komið að þetta er farið að minna full mikið á glæpi þriðja ríkisins gegn sjálfum gyðingum á sínum tíma.  Á meðan ekkert annað gerist en að menn sendi kurteysislegar fordæmingar eingöngu á orði þá munu þeir ekki láta sér segjast.  Tími orða er liðinn.
Ég vil því biðja þig um að fara þess á leit við ríkisstjórn lýðveldisins Íslands að stjórnmálasambandi við þetta ríki mannvonskunar verði slitið.  Það yrði ekki í fyrsta sinn sem Ísland yrði fyrst til að taka afdrifaríkt skref á alþjóðavetfangi og ef af verður getum við svo sannarlega litið stollt framan í heiminn.
Rök varðandi viðskiptahagsmuni tel ég ekki halda þar sem mannréttindi og gæska eiga að vera peningum yfirsterkari.

Með vinsemd og virðingu

Bjarki Hilmarsson

p.s.  bréf þetta verður birt á síðunni www.bloggheimar.is/bjarki



Erindi til umboðsmanns Alþingis
31. maí 2010, 17:40
Filed under: Stjórnmál, Trúmál

Vinkona mín Björk Sigurgeirsdóttir sendi þetta erindi til umboðsmans Alþingis í dag:

“Það er skilningur undirritaðrar að ekki sé leyfilegt að mismuna landsmönnum byggt á trú þeirra. Trúfrelsi er þannig varið að hluta til í sjötta kafla stjórnarskrárinnar, með áherslu á réttindi, og ennfremur í mannréttindasáttmála Evrópu (lög um mannréttindasáttmála Evrópu 1994 nr. 62 19. maí). Í lögum um mannréttindasáttmála Evrópu er vissulega gengið lengra og áherslan er á bann við mismunun.
Ég hef staðið utan trúfélaga í nokkurn tíma og hef m.a. furðað mig á fjáraustri Ríkisins til ‚hins útvalda trúfélags‘ af skattgreiðslum allra landsmanna, hver sem trúarsannfæring þeirra er. Það er ekki fyrr en nýlega sem ég áttaði mig á því að trúlausir greiða hærri skatta en aðrir á landinu og það byggt á ákvæði í stjórnarskrá.
Hið opinbera safnar saman þeim gjöldum sem ganga eiga til trúfélaga, sóknargjöld, eftir skráningum í hvert trúfélag fyrir sig. Jafn hátt (í krónum talið) framlag þeirra sem standa utan trúfélaga rennur eftir því sem ég best veit óskipt í ríkiskassann. Það er alveg ljóst að ég fæ enga endurgreiðslu þrátt fyrir að ég greiði ekki sóknargjöld.
Ég óska eftir rannsókn á því hvort sérstök skattlagning þeirra sem standa utan trúfélaga standist alþjóðlega mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að og hvort stjórnarskrá sé þarna í mótsögn við sjálfa sig og alþjóðlega sáttmála, að brjóta á mannréttindum þeirra sem standa utan trúfélaga.
Ennfremur óska ég eftir endurgreiðslu úr ríkissjóði á þeim sóknargjöldum sem af mér hafa verið tekin síðan ég skráði mig formlega utan trúfélaga.

kv,
Björk Sigurgeirsdóttir”

Einnig má lesa þetta á facebook síðu hennar

Þar til þetta verður lagað mun ekki ríkja raunverulegt trúfrelsi á Íslandi.



Ungir framsóknarmenn :D stysti brandari heims.
31. maí 2010, 12:21
Filed under: Stjórnmál, Uncategorized

Vinur minn var einusinni gabbaður á fund hjá ungum framsóknarmönnum.  Því var logið að honum að verið væri að fara í partý.  Svo þegar á staðin var komið reyndist þetta vera fundur þar sem  menn sátu virðulegir í kringum fundarborð, að vísu var bjór í boði.  Svo skiptust fundarmenn á um að tala og allt var mjög formfast og virðulegt, enda ungir framsóknarmenn á ferð.  Sá sem hafði gabbað vin minn á þessa samkomu hækkaði náttúrulega í áliti við að fá nýjan mann í félagsskapinn, það gerist jú ekki á hverjum degi sem einhver vill koma nálægt framsóknarmönnum.  Vinsældir hans jukust enn meira þegar vinur minn bað um orðið, ekki hafði hann bara komið með nýjan mann heldur líka mann sem hafði eitthvað til málana að leggja.  Nýji maðurinn sagðist ekki hafa mikið að segja og það væri eiginlega bara brandari sem hann ætlaði að segja þeim og hann væri ekkert viss um að þeim þætti hann fyndinn.  Þetta væri senilega stysti brandari á Íslandi.  Svo sagði hann:  “Ungur framsóknarmaður” .

Ég er að rifja þessa sögu upp í tilefni þessarar fréttar um viðbrögð “ungra” framsóknarmanna á norðurlandi við ummælum Guðmundar Steingrímssonar í kjölfar kosningaúrslitana í gær.

Þarna sýna þeir öllum landsmönnum hversu íhaldssamir og gjörsamlega úr takti við pólitíkina þeir eru, eins og framsóknarmönnum einum er lagið.

En hvað er ég að væla?  Feginn verð ég ef SDG heldur áfram, það tryggir hnignum framsóknar.



Hugrakkir Akureyringa…
30. maí 2010, 12:30
Filed under: Akureyri, Stjórnmál

Sá að Björn Þorláksson skrifaði þetta á Facebook:

“vaknaði í bæ þar sem mjög miklar breytingar hafa átt sér stað síðan í gær í stjórnsýslulegu tilliti. Akureyringar eru hugrakkir að kalla á svo miklar breytingar sem raunin varð. Ég er fylgjandi hugrekki. Við þurfum meir af því…”

Ég hef bara eitt við þetta að athuga.   Akureyrirngar sýndu akkúrat ekkert hugrekki í gær!  Þeir kusu flokk sem samþykkti menningarhúsið og slæma fjárhagsáætlun fyrir þetta ár.  Flokk sem gerði út á að lofa fólki því sem það vildi heyra en kannski ekki endilega því sem það þurfti.  Flestum finnst ég eflaust leiðinlegur og neikvæður að halda þessu fram en ef L listinn er svona frábær af hverju greiddi hann ekki atkvæði á móti vitleysuni í menningarhúsinu og af hverju samþykti hann síðustu fjárhagsáætlun?

Þau segjast ætla að efla atvinnumál og veiða inn atkvæði þannig, það hefur hins vegar alveg vantað útskýringu á því hvernig það á að gera það.

Vonandi hef ég rangt fyrir mér og ég vona ynnilega að bærinn minn dafni undir nýrri stjórn.  Og það er náttúrulega alveg rétt að allt er betra en íhaldið.



Kosningaumræða dagsins í dag í 15 ára simpsons þætti
29. maí 2010, 19:57
Filed under: Stjórnmál, grín

Er ekki pínu sannleikskorn í því hjá mér að svona sé þetta?
YouTube Preview Image



Ég veit hvar handklæðið mitt er :-)
25. maí 2010, 15:33
Filed under: dægurmál

Í dag er handklæðadeginum fagnað víða um veröld, þetta er einn af þessum dögum sem netið spilar stóran sess í.  Fyrir þá sem vita ekkert hvað ég er að bulla bendi ég á http://towelday.org/ Douglas Adams var óvenju greindur, framsýnn og fyndinn maður.  Hann skrifaði bestu bók sem ég hef lesið The hitch hiker’s guide to the galaxy Hér er grein sem hann skrifaði fyrir 11 árum um internetið og hún á vel við enn í dag How to Stop Worrying and Learn to Love the Internet



Tími fyrir Sóleyju og aðra pólitíkusa að vakna
17. maí 2010, 22:56
Filed under: Stjórnmál

Í viðtali við Sóleyju Tómasdóttur á visir.is talar hún um Besta flokkin sem brandara og lætur í veðri vaka að þessi brandari sé hættulegur fyrir framtíð barnana.  Heldur svo áfram og kennir öllum öðrum um en sínum flokki, dæmigerður pólitíkus af gamla skólanum sem allir eru búnir að fá nóg af.  Hún virðist ekki átta sig á því að það treystir engin fjórflokknum lengur, ekki hefur VG tekist að stöðva Magma energy, aðstoða bágstadda eða siðvæða stjórnmálin.    Hún talar um áherslu VG:

„Við munum náttúrulega halda okkar dampi við að kynna okkar stefnumál sem hafa ekki breyst,” segir Sóley en flokkurinn leggur þunga áherslu á nærþjónustu og veðlferðarkerfið í heild sinni.

Ekki nefnir hún hreinsun á spillinguni í borgarkerfinu og orkuveitunni og í raun hefur verið undarleg þögn um þau mál.  Allir frambjóðendurnir rembast við að skammast yfir besta flokknum í stað þess að einbeita sér að málefnum.  Þurfa þeir kannski á peningunum að halda?  Ég veit allavega að ég treysti þeim ekki, stjórnmálamenn af gamla skólanum eiga sér ekki framtíð vona ég.

VG talar um að nærþjónusta og velferðarmál séu þeirra aðall.  Eflaust er svipað uppi á teningnum hjá hinum, að vísu lofa sjálfstæðismenn áframhaldandi stöðugleika sem hlýtur að vera brandari en allavega þá hefur maður heyrt þetta allt áður og horft upp á þetta allt vera svikið þegar viðkomandi er komin til valda.

Besti flokkurinn hleypur í hringi í kringum hina flokkana hvað markaðssetningu varðar.  Menn kvarta yfir að hann hafi enga gáfulega stefnu og sé ábyrgðarlaus en til hvers að hafa stefnu eins og hinir flokkarnir þegar það er vitað að það er ekki farið eftir henni?  Varðandi ábyrgðarleysið vil ég bara benda mönnum á skuldsetningu orkuveitunar og hvað það kostar reykvíkinga.

góðar stundir.



Aumingjaskapur iðnaðarráðherra
17. maí 2010, 21:48
Filed under: Stjórnmál

Þetta verður stutt og laggott.  Mér finnst að Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra eigi að segja af sér.  Hún er greinilega ekki starfi sínu vaxin.   Hún hefur ekki hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi og þorir ekki einu sinni að svara í síman og reyna að svara fyrir sig!   Hún virðist þó allavega vita að hún hefur vondan málstað að verja, ég er viss um að hún myndi svara ef hún ætti von á að geta komist frá viðtölum með jákvæða ímynd.



Það sem fylgi besta flokksins segir okkur
1. maí 2010, 17:52
Filed under: Stjórnmál

Nú er best flokkurinn kominn með 4 fulltrúa í borgarstjórn samkvæmt skoðanakönnun.  Kjósendur annara sveitarfélaga hafa því miður ekki eins gott tækifæri og reykvíkingar til að segja sínum stjórnmálamönnum að éta skít.  Ég hef verið skammaður fyrir að vera orðljótur hérna en svona bara er þetta.  Fólk er ekki að velja besta flokkin út af málefnum heldur hreinni örvæntingu.  Það er ekkert raunhæft, heiðarlegt og skynsamlegt í boði.  Hefðbundnir stjórnmálaflokkar hafa gjörsamlega brugðist okkur.

Ég hef margoft sagt að Besti flokkurinn sé skásti valkosturinn  í Reykjavík, ekki vegna gæða flokksins heldur vegna þess að það er ekkert betra í boði.  Sem leiðir að því sem ég vil koma á framfæri:  Frambjóðendur hinna flokkana eiga að taka ábendingunni og stíga til hliðar.  Fólkið vill þá ekki.  Ef það yrði endurnýjun í flokkunum þá væri örlítil von um ábyrgara fólk við stjórnvölin því að þeir sem nú koma til með að komast til valda á vegum flokkana eru þeir sem eru með bestu tengslin í spillinguna, hvernig öðruvísi sigrar maður í prófkjöri?  Einu ólýðræðslegasta fyrirkomulagi sem til er.