header image
 

Leiðir út úr upplausnarástandi

Eftir hamfarir skapast upplausnarástand. Hversu lengi þetta upplausnarástand varir ræðst af því hvernig málin eru höndluð af þeim sem stjórna. Oft skapast mikil ringulreið innan þess hóps sem er falið að stjórna. Stjórnendum finnst þeir ekki lengur hafa stjórn á ástandinu og þá er sá valkostur að gefast upp oft auðveldari í huga þeirra en sá að takast á við erfiðleikana sem framundan eru.

Í fyrri pistlum mínum hef ég bent á aðferðir til þess að takast á við þau vandamál sem okkar þjóð stendur frammi fyrir. Því miður hafa stjórnvöld reynt að keyra hlutina ein og óstudd í stað þess að virkja þjóðina í að aðstoða sig. Þannig hafa þau málað sig út í horn aftur og aftur og þurfa síðan að finna leið til að komast úr horninu.

Það er einnig sorglegt að sjá hvernig stjórnendur eru ekki að hugsa út í hvaða hlutir geti gerst. Engin viðbragðsáætlun til fyrir því að forseti synji lögum. Engin viðbragðsáætlun til fyrir því hvernig eigi að höndla PR krísuna sem sést í erlendum fjölmiðlum í dag. Maður fer að spá í hvort yfir höfuð sé búið að spá í hvað geti gerst á næsti vikum og mánuðum, ekki í tengslum við IceSave sjálft, heldur atburðir eða sveiflur á erlendum vettvangi eða innlendum sem gæti haft áhrif á mögulegt uppbyggingarstarf hérlendis. Þeir sem stunda krísustjórnun þekkja það vel að maður þarf að hugsa út í allar þær mögulegu stöður sem gætu komið upp og reyna að fyrirbyggja þær eða draga úr áhrifum þeirra.

Það er von mín að stjórnmálamenn okkar þroskist aðeins…hætti að stunda pólitískt niðurrif og fari að fylgja þekktum aðferðum við að byggja upp í stað þess að alltaf horfa á að brjóta niður…

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • del.icio.us
  • Facebook

~ by disaster on 5. janúar 2010.

Leave a Reply




Spam Protection by WP-SpamFree Plugin