Vegna skipunar minnar sem Umboðsmaður heiðvirðra bloggara er rétt að taka fram eftirfarandi, í kjölfar fjölmiðlaumræðu:
Fyrirtækið ”Ég vil líka græða! ehf.” sem var í 75% eigu fyrirtækis míns “Áhættulaus fjárfesting ehf.” og 25% í eigu fyrirtækisins ”Með buxurnar á hælunum ehf.” sem var framselt til ungs háskólanema vegna veðmáls, var í lok árs 2008 selt til fyrirtækisins “Pabbi gerði bara eins og allir aðrir ehf.” sem var í eigu barna minna en hefur síðan verið afskráð.
500 milljón króna skuld fyrrnefnds fyrirtækis vegna ógreidds kúluláns sem notað var til hlutabréfakaupa með veði í engu nema bréfunum sjálfum er því mér algjörlega óviðkomandi.

2 responses so far ↓
Hin pólitíska framtíð er þín!
Þú ert fanta góður Umbi, brellurnar steinliggja og nú er bara að stofna nýtt eignarhaldsfélag fyrir eignina “pólitískt skipaður eða ráðinn”
Leave a Comment