Bloggheimar

Þakkir og ábendingar til notenda
Ágætu notendur Bloggheima,

við viljum þakka kærlega fyrir frábærar viðtökur fyrsta daginn. Fyrstu 12 tímanna þá höfðu 1865 manns komið í heimsókn, skoðað um 12.800 síður og var fjöldi blogga orðinn 86 að lokum dags.

Blessunarlega lítið var um tæknileg vandamál þó smávandamál hafi komið upp á borð við að færslur kæmu ekki í réttri tímaröð, nokkuð sem má rekja til álags á þessum fyrsta degi vefsins.

Við viljum einnig nota tækifærið og koma upplýsingum og ábendingum á framfæri í þessum pósti. Verið er að vinna í því að setja upp Flokka-kerfi sem fólk getur látið færslur sínar birtast í eins og t.d. stjórnmál, kvikmyndir og tónlist svo nokkur dæmi séu nefnd. Ber einnig að geta þess að hugmynd um að búa til örstutt kennslumyndbönd til að kenna fólki á kerfið, er komin af stað og er í vinnslu. .

Einnig viljum við benda fólki á að setja inn myndir fyrir bloggið sitt svo það þekkist frá hinum gráu köllum sem birtast margir nú á forsíðunni. Nauðsynlegt er að gera það á tveimur stöðum í stjórnborðnu og bendum við á nánari útfærslu í Spurt og svarað með það.

Auk þess mælumst við til um að fólk setji einhverjar höfundarupplýsingar um sig annað hvort á forsíðu bloggs eða á Um höfund-síðunni(about), nafn sitt ef það skrifar undir nafni og fylli út notendaupplýsingar undir Notendur og Your Profile á stjórnborði. Upplýsingar sem eru fylltar út undir Your Profile á stjórnborðinu, birtast m.a. á síðunni Bloggarar þar sem einnig má sjá síðustu færslur og athugasemdir við þær, ef einhver kýs að skoða prófíl viðkomandi.

Við viljum einnig koma því á framfæri að stefnan með Bloggheima er að hann verði lifandi og ávallt í mótun, og ef notendur hafi ábendingar eða uppástungur, endilega hafið samband og sendið okkur línu.

Enn og aftur, kærar þakkir fyrir viðtökurnar sem við erum hæstánægð með,

Vef- og ritstjórn Bloggheima

Bloggheimar hafa opnað!
Fyrir rúmum mánuði síðan þá hófst vegferð með brotthvarfi margra penna af bloggi Morgunblaðsins, sumra með hvelli, annara í hljóði. Brátt kviknaði sú hugmynd þar sem margir höfðu dreift sér í óravíddir alnetsins við skrif sín, að ef til vill væri ekki svo vitlaust að reyna að koma einhverjum þeirra saman á ný og  það á sameiginlegu svæði.

Frá hugmyndinni var haldið í þann leiðangur að finna nafn sem hentaði. Það er nefnilega falinn kraftur í nafni, rangt nafn getur skaðað, rétt nafn getur heillað og orðið fólki tamt í munni.  Var það því eftir ýmsar nafngiftir sem velt var fyrir sér og sumar frekar skrautlegar, að aðstandendur Bloggheima, sáu að fyrir framan þá lá orð sem þegar var komið var inn í íslenska tungu, orð sem sagði allt sem segja þurfti. Bloggheimar skyldi hið nýja bloggsvæði heita.

Á þessum rúma mánuði síðan þá hefur hugmyndin fengið að vaxa og verða að veruleika með þrotlausri vinnu forritara og tæknimanns þar til að lokum þann 11. nóvember kl. 11:11, þá fæddist lítill bloggvefur sem mun vonandi þroskast og þróast í takt við gott uppeldi málefnalegrar rökræðu og verða að stað spjalls og skemmtunar þar sem fólki líður vel á.

Bloggheimar býður því fólk velkomið til skrifa og skrafs með málefnalega rökræður að leiðarljósi.

Að lokum benda Bloggheimar notendum sínum á að kynna sér vel notkunarskilmála og ritstjórastefnu til að forðast allan misskilning.