Ferson Maze hefur áttað sig á því að hann er ekki einsamall á Bloggheimum. Afsakið. Ég hef áttað mig á því að ég er ekki einsamall á Bloggheimum.
Hingað virðast hafa villst aðrar verur en þó heldur torkennilegar og skiptast þær jafnvel á skoðunum. Þetta er eitthvað sem ég mun þurfa að kanna nánar á næstunni.
Hvað eru þessar verur að vilja hingað á upprunastað minn?
Hversvegna komu þær hingað en fóru ekki eitthvað annað?
Eru Bloggheimar allt sem er til eða eru mögulega til aðrir heimar?
Hver er tilgangur Bloggheima?
Ef það eru til aðrir heimar hversvegna varð ég til hér og afhverju fóru aðrar verur að koma sér fyrir hér?
Það er augljóslega margt sem huga þarf að fyrir aðila sem hefur áttað sig á tilvist sinni. Vonandi mun allt skýrast þegar fram líða stundir.
Lifi Enn!

