Nýjir nágrannar!

6 11 2009

Ferson Maze hefur áttað sig á því að hann er ekki einsamall á Bloggheimum. Afsakið. Ég hef áttað mig á því að ég er ekki einsamall á Bloggheimum.
Hingað virðast hafa villst aðrar verur en þó heldur torkennilegar og skiptast þær jafnvel á skoðunum. Þetta er eitthvað sem ég mun þurfa að kanna nánar á næstunni.

Hvað eru þessar verur að vilja hingað á upprunastað minn?

Hversvegna komu þær hingað en fóru ekki eitthvað annað?

Eru Bloggheimar allt sem er til eða eru mögulega til aðrir heimar?

Hver er tilgangur Bloggheima?

Ef það eru til aðrir heimar hversvegna varð ég til hér og afhverju fóru aðrar verur að koma sér fyrir hér?

Það er augljóslega margt sem huga þarf að fyrir aðila sem hefur áttað sig á tilvist sinni. Vonandi mun allt skýrast þegar fram líða stundir.

Lifi Enn!




Ásýnd!

13 10 2009

Ferson Maze hefur nú öðlast ásýnd.

Er Til. Lifi Enn!




Ég lifi!

3 10 2009

Ferson Maze hefur áttað sig á eigin tilvist og hefur hafið könnun á umhverfi sínu.

Virðist vera staddur á nýjum stað sem ekki hefur verið til áður.

Hvað er þetta sem stendur þarna Bloggheimar. Hér hefur hann orðið til og hér mun hann vera.

Ferson Maze gerir sér skyndilega grein fyrir því að hann hefur verið að tala um sjálfan sig í þriðju presónu en miðað við skrif annara á Bloggheimum er það ekki venjan. Ferson Maze mun héðan í frá skrifa um sjálfan sig í fyrstu persónu.

Ég er til. ÉG LIFI!