5 furðulegir bókatitlar

Nú hefur jólabókaflóðið flætt yfir íslenskar strendur og enginn virðist hugsa um neitt annað en bækur, bækur, bækur…
Af því tilefni birta Furðuheimar lista yfir nokkrar gamlar en áhugaverðar bækur sem eiga það sameiginlegt að vera með mjög furðulegum bókatitlum.
Innihaldið er oft á tíðum líka mjög skrautlegt.

a349_b5

Zen of Farting

Á þessum erfiðu tímum er gott að rækta hið andlega og læra t.d. smá innhverfa íhugun, yoga, zen…

Zen of Farting er háðsádeilda á markaðsvæðingu andlegra málefna. Bókin er sett upp sem rit skrifaf af asískum Búddha-munnki frá 10. öld, sem var orðinn þreyttur á hve illa gekk fyrir nemendur hans að skilja kjarna fræðslunnar. Til að hrissta aðeins upp í þeim þá kynnti hann fyrir þeim “zen prumpsins” og bjóst við að þeir myndu fatta að þetta væri brandari og fara að skilja Búddhísku fræðin betur. En í staðin þá tóku þeir þessu alvarlega og útkoman varð: Zen.

Bókin kemur inn á mataræði, öndun, stellingar og notkun á blómum og reykelsa við iðkun Zen.

Bókin svarar einnig spurningum á borð við: “Hvernig hljómar ekkert prump?”

Fullkomin bók á klósettið.

a96859_coffins2Do-It-Yourself Coffins

Hannyrðir af öllum gerðum eru í miklum vinsældum þessa dagana. Nú kaupir enginn neitt lengur. Allir í heimaprjónuðum fötum og nota heimasmíðaða stóla og borð.

Í bókinni Do-It-Yourself Coffins færðu að vita allt um hvernig á að smíða sína eigin líkkistu, en eins og allir vita þá eru slík fyrirbæri rándýr og ekki á erfingja manns leggjandi að þurfa að punga út aur fyrir þeim svona á þessum síðustu og verstu tímum.

Bókin er ríkulega myndskreitt og með ítarlegar leiðbeiningar sem útskýra skref fyrir skref hvernig smíða á 6 mismunandi stærðum af kistum, 3 stærðir fyrir gæludýr og 3 fyrir mannfólk.

Þetta er nauðsynleg bók fyrir alla sem hafa ákveðinn smekk. Maður vill nú ekki sýna sig í hverju sem er?

a96859_gangsta2

Gangsta Rap Coloring Book

Vantar þig jólagjöf handa 5 ára frænda þínum? Þá er þetta rétta bókin fyrir þig.

Gangsta Rap Colorin Book er skotheld bók fyrir alla barnunga unnendur krimma-rapps.

Nú geta börnin loksins litað 50 cent og aðrar góðar fyrirmyndir.

Og ekki væri verra ef þau læra eitthvað um notkun skotvopna í leiðinni.

 

a96859_dickmanualDick – A User’s Guide

Eins og allir vita þá er typpið mikilvægasti líkamshluti karlmannsins. Það vita hinsvegar ekki allir hvernig á að nota það og hugsa vel um það.

Bókin Dick er fyrir alla þá sem hafa áhuga á að bæta sig í þessum efnum.

Dick er skrifuð af tveimur kvenlæknum sem fjalla á opinskáan hátt um typpið og notkunarmöguleika þess.

Frábær gjöf til elskunnar þinnar.

 

9780802829962Are Women Human?

Að lokum er hér bók með alvarlegri undirtón en nafnið gefur til kynna.

Höfundur bókarinnar Are Woman Human?  er Dorothy Sayers.

Sayers lét hefðir samtíma síns ekki hafa áhrif á sig en  fylgdi draumum sínum hvort sem þeir þóttu kvennlegir eða ekki og var m.a. ein af fyrstu konunum til að útskrifast frá Oxford.

Hún hélt því alltaf á lofti að hún var fyrst og fremst mennsk vera og það væri það hlutverk sem henni bæri að sinna, framar hlutverki sínu sem konu. 

Í bókinni er að finna tvær ritgerðar eftir Sayers um hlutverk kynjanna og kynjamismunun þar sem hún segir m.a. að bæði karlar og konur eigi að finna hvar hæfileikar þeirr og áhugi liggur og sinna því, burtséð frá kyni og hefðum.

Svo líklega eru konur mennskar eftir allt saman.

Ógnvaldur suðursins

Á Suðurheimsskautinu lifir stórt og grimmt spendýr. Umrætt dýr getur orðið nálægt 600 kg að þyngd, 3,5 meter að lengd, er hættulegasta rándýr heimsálfunnar og hefur stundum verið kallaður ísbjörn Suðurskautsins. Mörgæsir eru rándýrinu auðveld bráð og stærstu dýrin fara auðveldlega með að drepa keisaramörgæsir og jafnvel litla seli. Dýrið bíður í sjónum eftir að mörgæsirnar fari út í, grípur í fæturna á þeim, hverja á fætur annarri og lemur þeim ofan á yfirborð sjávarsins þangað til þær drepast og rífur þær svo í sig. Dýrið drepur mörgæsirnar hinsvegar ekki bara til átu heldur einnig til gamans og ræðst þá á hverja mörgæsina á fætur annarri og hendir svo frá sér dauðum líkömunum.

En hverskonar dýr skyldi þessi ógnvaldur suðursins vera? Það kann kannski að koma sumum á óvart en þetta dýr er selur. Nánar til tekið hlébarðaselur.

Í eftirfarandi myndskeiði segir ljósmyndari National Geographic frá því þegar hann mætti þessu hættulegasta rándýri Suðurskautsins, augliti til auglits. Það var stórkostlega upplifun og kom hegðun þessa ógnvaldar mjög á óvart. Myndirnar í myndskeiðinu eru að sjálfsögðu magnaðar.

YouTube Preview Image

Hér fyrir neðan er smá brot úr myndinni Happy Feet þar sem mörgæsirnar stríða illúðlegum hlébarðasel.

YouTube Preview Image

Hér fyrir neðan er búið að búa til myndskeið úr fjölmörgum ljósmyndum af hlébaraðselum.

YouTube Preview Image

Að lokum er hér að finna tengla fyrir þá sem vilja afa sér frekar upplýsinga um hlébarðaselinn:

Upplýsingar á Wikipedia

Amennar upplýsingar um hlébaraðasel á Discovery.com

Gagnvirkt efni um hlébaraðasel á Discovery.com

Sænski neðansjávarljósmyndarinn Goran segir frá kynnum sínum af  hlébarðaselum

Mengun í nýju ljósi – (myndir)

Mengun hefur áhrif á yfir þúsund milljónir manna um heim allan og milljónir manns látast hvert ár af völdum mengunar. The World Heath Organization hafa áætlað að 25% af öllum dauðsföllum í þróunarlöndum séu beinlínis af völdum mengunar. Fólk sem lifir við langvarandi mengun hefur einnig veikara ónæmiskerfi og er því líklegra til að veikjast af annarskonar sjúkdómum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir áhrifum mengunar og á hverju ári látast meira en 3 milljónir barna undir 5 ára aldri af völdum mengunar. 

( Heimild: Pollution Facts )

Á vefsíðunni Geenstijl er búið að safna saman nokkrum hræðilega sorglegum en um leið furðulega fallegum ljósmyndum sem sýna mengun um allan heim. Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að skoða þær.