Ah! Mikið er gott að heyra þessa rödd tala máli nímenninganna. Dásamleg kona. Reyndi að heyra betur í frægustu rödd útvarpsins í hádegisfréttunum og þeir vita betur en vefur og sjónvarp. Í fréttinnni á sjálfum rúv-vefnum er ekki orð um hverjir eru á myndinni og ekki minnst á þá bestu ever… (Jæja, nöfnin eru loks komin á vefinn…). Hefði viljað heyra þetta betur en Sjónvarpið veit ekki einu sinni hver hún er… Bogi Ágústsson fréttaþulur á sjónvarpinu horfir greinilega ekki á fréttirnar sem hann færir… enda alveg að sofna eins og vanalega. (jæja, textaborði með nafninu er kominn inn) Edda Andrésdóttir fréttaþula á Stöð 2 veit hins vegar vel hver Ragnheiður Ásta Pétursdóttir er en þeir sem taka myndirnar ekki (ómarkviss og furðuleg myndataka ; eru pappakassar mikið atriði?). Smugan veit líka hver þarna er á ferðinni en myndin hefði mátt vera betri. Þessi mynd Harðar Sveinssonar á DV er best af þeim sem ég hef séð. Að öðru leyti er sjónvarpsfréttin á rúv og myndefnið sömuleiðis vel unnið. Það er lítil tign yfir tilsvörum þingforseta.
Posted on on júní 24th, 2010 in
Alþingi, Fjölmiðlar |
No Comments »
- „Ekki svo að við viljum gera lítið úr mikilvægi þess að hér sé heilbrigt andrúmsloft. En við höfðum verið í ágætu samráði við ráðuneytið að við töldum um þetta mál.”
- “Umhverfisráðherra segir óvissu ríkja um heilsufarsáhrif af langvarandi innöndun brennisteinsvetnis og því hafi hún talið nauðsynlegt að setja mörkin þannig að almenningur fái notið vafans.” [Þetta er tilvitnun í fréttatilkynningu um reglugerðina (sjá hér að neðan) en ekki viðtal við umhverfisráðherra]
- “Gústaf segir reglugerðina geta haft gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir fyrirtækin. „Það eru ekki allar borholur nálægt byggð. Það er því mjög blóðugt að kosta til hugsanlega tugum milljóna til þess að hafa eftirlit með því að styrkur brennisteinsvetnis fari aldrei yfir ákveðin mörk einhversstaðar úti í óbyggðum,” segir Gústaf.” [gerir http://www.inspiredbyiceland.com/ ekki út á mannlíf og óbyggðir, sem Gústaf talar niður til?] Útdráttur úr Visir.is
Spurningin er, hví hefur aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, síðasta orðið í greininni? Og hví skipta ríkir almannahagsmunir ekki neinu fyrir óþekktan höfund greinarinnar?
Reglugerðin um leyfilegt magn brennisteinsvetnis í andrúmslofti
Jæja, stundu síðar kemur viðtalið við umhverfisráðherra.
Posted on on júní 22nd, 2010 in
Fjölmiðlar, Umhverfismál |
No Comments »
“Prófsteinn á ríkisstjórnir er ekki hvernig þær eru samansettar heldur hvað þær gera og þá hvort og hversu vel þeim tekst að starfa í þágu þjóðarinnar. Það þýðir á þessum örlagatímum að standa vörð um auðlindir okkar til sjávar og sveita og stuðla að opnu, lýðræðislegu þjóðfélagi.” Ögmundur Jónasson í viðtali við mbl.is.
“Það sem við þurfum er vissulega góð málefnaleg samvinna og opið lýðræði. Það er verkefnið en ekki að stuðla að flokkspólitískri samtryggingu í þjóðfélaginu.“ Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, í sama viðtali.
Helsta nýjungin á þessu kjörtímabili eru mismunandi skoðanir þingmanna sama flokks, hvort sem hann er í stjórn eða ekki. Ekkert gefið fyrirfram. Það eflir þing og er afar hressandi. Fjölbreytnin fær að njóta sín og utanþingsráðherrar hafa haft jákvæð áhrif almennt á tjáningu ráðherra.
Posted on on júní 19th, 2010 in
Alþingi, Fjölmiðlar, Pólitík |
No Comments »
Þessi partur úr mynd Monty Python, Ævi Brians, kemur helst í hug eftir að hafa hlustað á reiðilestur einstaka hrunverja í gærkveldi.
Þeir jusu yfir OKKUR skömmunum sem þeir ætluðu mótflokkunum… Þarna fór lítið fyrir virðingu við einn eða neinn hjá einstaka frummælenda. Pólitísk blinda sem talar steingeltu máli. Við sem heima sitjum hlustum furðulostin á ósköpin. Auðvitað eru stjórnarliðar ekki fullkomnir en stjórnarandstaða veldur sömuleiðis illa hlutverki sínu. Sjálfstæðismenn eru fastir í illskiljanlegu rexi, Hreyfingin hleypur í fjölmiðla við 3. umræðu, O.S.FRV. Það er þörf fyrir víðtæka endurskoðun og lækningu meina. Og við erum þreytt á pólitískri lygi sem bítur í skottið á sér.
Virðing þingsins
Posted on on júní 15th, 2010 in
Alþingi, Kvikmyndir |
No Comments »
Hverjir fengu umfjöllun á mbl.is? Bjarni Ben, Þórunn, Sigmundur Davíð, Steingrímur J., Margrét og Sigríður Ingibjörg. Hverjir fengu umfjöllun á visir.is? Bjarni Ben, Þórunn, Sigmundur Davíð, Þráinn, Sigríður Ingibjörg, Steingrímur J. Í seinni fréttum rúv? Bjarni Ben, Sigmundur Davíð og Steingrímur J.
Hverjir tóku til máls?
Almennar stjórnmálaumræður :
21:00 Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir)
21:03 Bjarni Benediktsson
21:15 Þórunn Sveinbjarnardóttir
21:25 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
21:35 Steingrímur J. Sigfússon
[hér fer vaktin á rúv]
21:45 Margrét Tryggvadóttir
21:55 Þráinn Bertelsson
22:01 Einar K. Guðfinnsson
22:06 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
[hér eru vefmenn mbl.is og visir.is farnir að sofa, eyjan.is sömuleiðis]
22:12 Eygló Harðardóttir
22:17 Lilja Rafney Magnúsdóttir
22:24 Birgitta Jónsdóttir
22:32 Unnur Brá Konráðsdóttir
22:39 Róbert Marshall
22:45 Gunnar Bragi Sveinsson
22:52 Margrét Pétursdóttir “Lifi gagnrýnin hugsun, róttækni og pönk.”
22:57 Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir)
Sparnaður að halda ekki vakt til loka? Að spara í mannahaldi og útpíska þeim sem eftir eru, er slæm pólitík.
Fjölmiðlamenn eru annars þónokkrir valdafíklar og drukkna í (pólitískri) stjörnuvæðingu. Eyjan kallar til að mynda alla þingmenn Samfylkingarinnar sem ekki eru ráðherrar, “óbreytta þingmenn” (!?). Í dag bætir Eyjan um betur og kallar þá “minni spámenn”…
Posted on on júní 15th, 2010 in
Alþingi, Fjölmiðlar |
No Comments »
Og fjölmiðlar valda ekki hlutverki sínu. Davíð ríkir á Mogganum og Ólafur á Fréttablaðinu. Hver nennir orðið að lesa blöðin? Kannski eru þeir að ganga frá Flokknum endanlega og var það eflaust ekki ætlunin, eða hvað? Úr hrunpyttinum. Með tilliti til trjánna. Skárra að hlæja að þessu.
Sjónvarpið gleymir sér í fótboltanum og hindrar útsendingu umræðna á Alþingi á netinu allt kvöldið með: “Þessi útsending er einungis aðgengileg innan Íslands.”
Posted on on júní 14th, 2010 in
Alþingi, Fjölmiðlar |
No Comments »
Látið ykkur ekki detta í hug að gleyma almannahag. Í útlandinu hefur Danielle Mitterrand, fyrrverandi forsetafrú Frakklands, barist áratugum saman gegn einkavæðingu vatns. Stofnun hennar heitir France Libertés. VATNSBERAR.
Í frétt á vefsíðu Vísis segir Helga að AGS (IMF) kvarti yfir hversu seint gangi að einkavæða auðlindir Íslands og hún segir það að finna í skýrslunni frá 20. apríl. Hún hlýtur að meina þá frá 8. apríl sem birt var 20. apríl (pdf-skjal).
Ég renndi lauslega yfir þetta skjal en ég sé ekki að óskað sé eftir einkavæðingu auðlinda. Það er satt að þeir orkufreku koma nokkuð við sögu en ég finn ekki aðra aðför að auðlindunum. Sjálf hef ég áhyggjur af því að minnkandi ríki verði auðveldari bráð fyrir alþjóðafyrirtækin, nú eða gráðuga Íslendinga.
Undir “A. Macroeconomic Framework” stendur:
“Regarding growth, delays in energy-intensive investment projects dampen immediate prospects, but the recalibration of fiscal policy in 2010 and private sector debt restructuring are expected to partly offset the impact.” (bls. 6)
“The main short-run risks are further delays in investments in energy-intensive sectors…” (bls. 7)
Og ein taflan ber titilinn:
“…and the decline in investment deeper, reflecting lower investments in energy-sector projects.“ (bls. 27)
“FDI in the energy-intensive sector is now expected to be mostly debt-creating rather than pure equity, resulting in an accumulation of about 20 percent of GDP in debt over the medium-term.” (bls. 47)
“Key factors driving the decline include asset recovery, deleveraging by Icelandic multinationals [sic], private sector debt restructuring, and current account dynamics.” (bls. 48)
Undir lokin er skýrsla Pers Callesen og Björns Ólafssonar og þar stendur á fyrstu síðu: “The contraction this year is generally in line with previous estimates, with somewhat more robust consumption offsetting further delays in energy-intensive investment projects.”
Jemen, ekki var þetta skemmtileg lesning.
Posted on on júní 14th, 2010 in
Alþingi |
No Comments »
Annaðhvort er fréttin villandi eða kallinn meinar þetta virkilega. Hvað, eigum við að vera ánægð?
“Schymik segir Þýskaland hafa hagsmuna að gæta og sjái mikla kosti við inngöngu Íslendinga í ESB. Það snerti náttúruauðlindirnar. ,,Fyrir utan fiskinn eru það endurnýjanlegar orkuauðlindir. Einnig ræðst það af mikilvægri legu landsins í N-Atlantshafi, sem eins konar gátt til Norðurskautsins. Íslendingar sem ein Norðurlandaþjóðanna aðhyllast svipuð samfélagsleg gildi og Þjóðverjar og þá í sambandi þessara 27 þjóðríkja, þar sem einnig eru sterk áhrif frá Miðjarðarhafsríkjunum.”
Í baráttu innan sambandsins telja Þjóðverjar því að hagsmunir þeirra og Íslendinga geti farið saman, ólíkt mörgum þeim þjóðum sem gengið hafa í sambandið á nýliðnum árum.” Útdráttur úr Litlar líkur á rúv.
Ég fyrir mitt leyti vil hvorki Þjóðverja né aðra í ESB í landhelgina, ekki heldur í orkuauðlindirnar, skreyttum tískuorðinu “endurnýjanlegar”, sem er merkingarlausara en margir halda. Ég vil sömuleiðis að þeir láti Norðurskautið í friði. Svo vil ég eiga samleið með ólíkum þjóðum og kann afskaplega vel við mig við Miðjarðarhafið. Þar býr gott fólk sem lifir lífinu lifandi. Við eigum t.d. margt sameiginlegt með Grikkjum.
ps
Mönnum væri kannski hollt að lesa bók Marks Mazower því það sem haft er eftir sérfræðingnum hljómar ansi “über alles – lega” þar sem Norðurlandaþjóðirnar fá náðarsamlegast að fljóta með… Endurómur miður skemmtilegra tíma.
Posted on on júní 11th, 2010 in
Uncategorized |
No Comments »
Er heilbrigð skynsemi bannvara á Alþingi?
Er áhuginn á stjórnlagaþingi einhver eða eru umræður á Alþingi lélegur vígvöllur flokksveldanna?
Hvenær í ósköpunum koma alþingismenn til með að muna að á þá er hægt að horfa á netinu og í sjónvarpi !!
Og þeir koma ekki vel út, svo ekki sé meira sagt.
Þjóðin kaus þetta fólk á þing og borgar því kaup til þess að það fjalli af alvöru um mál er hana varðar og það skal samkvæmt lögum gert í heyranda hljóði.
Lágmark að þingmenn taki hlutverk sitt alvarlega. Ef þeir valda ekki hlutverkinu mega þeir fara.
En þarna standa þeir allsberir fyrir framan þjóðina og eru í einhvers konar skollaleik.
Sárgrætilegt.
Posted on on júní 9th, 2010 in
Alþingi |
No Comments »
Hafa styrkþegar ekkert betra að gera á Alþingi? Eða hvað eru leikbrúður hagsmunaaðila yfirleitt að gera þar? Teikningin hans Halldórs nær þessu svo vel.
Posted on on júní 7th, 2010 in
Alþingi |
No Comments »