Archive for the ‘Kvikmyndir’


Hvað hafa stjórnarliðar gert fyrir okkur?

Þessi partur úr mynd Monty Python, Ævi Brians, kemur helst í hug eftir að hafa hlustað á reiðilestur einstaka hrunverja í gærkveldi.
Þeir jusu yfir OKKUR skömmunum sem þeir ætluðu mótflokkunum… Þarna fór lítið fyrir virðingu við einn eða neinn hjá einstaka frummælenda. Pólitísk blinda sem talar steingeltu máli. Við sem heima sitjum hlustum furðulostin á ósköpin. Auðvitað eru stjórnarliðar ekki fullkomnir en stjórnarandstaða veldur sömuleiðis illa hlutverki sínu. Sjálfstæðismenn eru fastir í illskiljanlegu rexi, Hreyfingin hleypur í fjölmiðla við 3. umræðu, O.S.FRV. Það er þörf fyrir víðtæka endurskoðun og lækningu meina. Og við erum þreytt á pólitískri lygi sem bítur í skottið á sér.
Virðing þingsins

Kvikmyndahátíðinni í Cannes lauk í kvöld

Eilítið innlit í myndirnar 19 sem áttu sjens í Gullpálmann.