Archive for the ‘Umhverfismál’


Heilbrigt andrúmsloft eða hagsmunir…

- Ekki svo að við viljum gera lítið úr mikilvægi þess að hér sé heilbrigt andrúmsloft. En við höfðum verið í ágætu samráði við ráðuneytið að við töldum um þetta mál.”
- “Umhverfisráðherra segir óvissu ríkja um heilsufarsáhrif af langvarandi innöndun brennisteinsvetnis og því hafi hún talið nauðsynlegt að setja mörkin þannig að almenningur fái notið vafans.”
[Þetta er tilvitnun í fréttatilkynningu um reglugerðina (sjá hér að neðan) en ekki viðtal við umhverfisráðherra]
- “Gústaf segir reglugerðina geta haft gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir fyrirtækin. „Það eru ekki allar borholur nálægt byggð. Það er því mjög blóðugt að kosta til hugsanlega tugum milljóna til þess að hafa eftirlit með því að styrkur brennisteinsvetnis fari aldrei yfir ákveðin mörk einhversstaðar úti í óbyggðum,” segir Gústaf.” [gerir http://www.inspiredbyiceland.com/ ekki út á mannlíf og óbyggðir, sem Gústaf talar niður til?] Útdráttur úr Visir.is
Spurningin er, hví hefur aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, síðasta orðið í greininni? Og hví skipta ríkir almannahagsmunir ekki neinu fyrir óþekktan höfund greinarinnar?
Reglugerðin um leyfilegt magn brennisteinsvetnis í andrúmslofti
Jæja, stundu síðar kemur viðtalið við umhverfisráðherra.