Dylgjur sérfræðings
Annaðhvort er fréttin villandi eða kallinn meinar þetta virkilega. Hvað, eigum við að vera ánægð?
“Schymik segir Þýskaland hafa hagsmuna að gæta og sjái mikla kosti við inngöngu Íslendinga í ESB. Það snerti náttúruauðlindirnar. ,,Fyrir utan fiskinn eru það endurnýjanlegar orkuauðlindir. Einnig ræðst það af mikilvægri legu landsins í N-Atlantshafi, sem eins konar gátt til Norðurskautsins. Íslendingar sem ein Norðurlandaþjóðanna aðhyllast svipuð samfélagsleg gildi og Þjóðverjar og þá í sambandi þessara 27 þjóðríkja, þar sem einnig eru sterk áhrif frá Miðjarðarhafsríkjunum.”
Í baráttu innan sambandsins telja Þjóðverjar því að hagsmunir þeirra og Íslendinga geti farið saman, ólíkt mörgum þeim þjóðum sem gengið hafa í sambandið á nýliðnum árum.” Útdráttur úr Litlar líkur á rúv.
Ég fyrir mitt leyti vil hvorki Þjóðverja né aðra í ESB í landhelgina, ekki heldur í orkuauðlindirnar, skreyttum tískuorðinu “endurnýjanlegar”, sem er merkingarlausara en margir halda. Ég vil sömuleiðis að þeir láti Norðurskautið í friði. Svo vil ég eiga samleið með ólíkum þjóðum og kann afskaplega vel við mig við Miðjarðarhafið. Þar býr gott fólk sem lifir lífinu lifandi. Við eigum t.d. margt sameiginlegt með Grikkjum.
ps
Mönnum væri kannski hollt að lesa bók Marks Mazower því það sem haft er eftir sérfræðingnum hljómar ansi “über alles – lega” þar sem Norðurlandaþjóðirnar fá náðarsamlegast að fljóta með… Endurómur miður skemmtilegra tíma.
