Uncategorized

...now browsing by category

 

Ekkert fyndið lengur!

miðvikudagur, nóvember 11th, 2009

Borgarfulltrúar fá álagsgreiðslur fyrir að vinna vinnuna sína!?! Þetta er hreinlega ekki fyndið. Það hefur sýnt sig að einungis er um hlutastarf að ræða þar sem að borgarfulltrúar hafa samtímis getað setið á Alþingi eða jafnvel á ráðherrastól, nú eða stundað nám við erlenda háskóla. Svo sitja þeir í stjórnum almenningsfyrirtækja (væntanlega á venjulegum vinnutíma) og fá aukalega greitt fyrir það og svo fá þeir vitaskuld ýmsan tilfallandi kostnað við hitt og þetta greiddan sem almenningur þarf að kreista af ört minnkandi launum sínum eftir skatta.

exbéAllavega er það á hreinu að núverandi ástand er móðgun við heilbrigða skynsemi. Það er mikill lýðræðishalli fólginn í því að kjósa of fáa fulltrúa í sveitarstjórnir og leyfa þeim svo sjálfum að vasast með skipanir í nefndir og ráð. Hvers vegna leyfum við fjórflokknum endalaust að ráðskast með öll okkar mál?

Ég vil hreinlega ganga svo langt að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í eitt eða tvö og fjölga í leiðinni lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Í dag eru þeir 70 samtals í 8 sveitarfélögum, sjá hér. Það mætti hæglega ná fram töluverðum sparnaði í leiðinni með því að skilgreina setur í bæjarstjórnum sem hlutastarf eða greiða fyrir hvern fund fyrir sig og sleppa þessum fjölmörgu bitlingum.

Lykilatriðið er að fá sem flesta að ákvarðanatökum og auka lýðræði, gegnsæi og ábyrgð borgaranna. Það er töluvert af fólki sem notar frítíma sinn án nokkurrar þóknunar í að reyna að hafa áhrif í gegn um hverfasamtök og hagsmunasamtök en með mjög takmörkuðum árangri, því miður.

Hversu lengi lætur fólk þetta svínarí viðgangast?

Til hamingju!

miðvikudagur, nóvember 11th, 2009

Til hamingju Bloggheimar – til hamingju bloggarar!