• bloggheimar.is
  • Stjórnborð

Minnispunktar úr músarholu

Just another Bloggheimar weblog

← Litla músin og franska byltingin 1789
Íslandsvinurinn Frankenstein og framtíð þvagblöðrunnar →

Galdrafár geisar á Suðurlandi – svartir kettir, afturgöngur og skelfdar bæjarstjórnir

Á Selfossi eru menn hræddir við ketti. Þeir hafa verið að lesa gamlar galdraskræður sem halda því fram að kettir séu djöfulóð dýr og svartir kettir séu beinlínis af hinu illa. Galdrafár hefur geisað í bæjarstjórninni, svo megnt að öll bæjarstjórnin greip til þess ráðs á síðasta kjörtímabili nota bene, að ganga að sem flestum köttum dauðum og krefjast þess að eftirlifandi kattarhræður yrðu hafðar í bandi á lóð eigenda sinna undir ströngu eftirliti.  Grunur leikur á að uppruna þessa galdrafárs megi rekja til Skruddu einnar, gamallar galdrabókar Flóa- og Skeiðamanna sem Bjarna Harðar tókst að grafa upp í dánarbúi bónda eins uppi á Skeiðum. Bæjarstjórnin komst í skrudduna og nú er fjandinn laus í bókstaflegum skilningi. Menn hafa einnig tekið eftir því að óvenjulega líflegur draugagangur hefur verið undanfarið í draugasafninu, og loga þar hrævareldar á næturnar. Nú er svo komið að jafnvel galdrakunnustu menn eru orðnir smeykir.

Gripið hefur verið til þess ráðs að setja upp sérstakt embætti kattafangara og gengur hann um með horn og klaufir í svörtum búningi og veiðir saklausar kisurnar og stingur þeim í skjóðu sína og drekkir kisunum síðan í hyl í Ölfusánni.  Hrelldir kattareigendur emja og veina og heyrst hefur að verið sé að magna seið gegn bæjarstjórninni.  Fjölkyngnin í bæjarfélaginu á sér engin mörk enda hefur komið upp sú hugmynd að leita til geistlegra manna, þ.e. presta til þess að reyna að kveða niður þetta illvíga galdrafár. Einn presturinn sást um daginn vera að fylgjast með þegar lífsýni var tekið úr Bobby Fischer, en aðrir segja að Fischer gangi nú laus og sé farinn að tefla fjöltefli á fimmtudagskvöldum í Sunnlenska bókakaffinu og eru víst fáir sem standast honum snúning.

En hvað á að gera?  Kvittur hefur komið upp um að kattaútrýmingarherferðin sé einungis upphafið á einhverju meira og stærra. Nornir í Árborg mega víst fara að vara sig enda gætu galdrabrennur orðið næsta skref. Einhver þóttist sjá nakta konu á kústskafti fljúga yfir Kentucky Fried Chicken staðnum á miðvikudagskvöldið og einhver annar sagðist hafa séð Meistarann úr Meistaranum og Margarítu eftir Búlgakov fá sér pylsu í pylsuvagninum.  Aðrir halda því fram að brennisteinsfnykur sé farinn að berast úr áhaldahúsinu og einhver þóttist sjá Fást sjálfan bregða sér inn í Krónuna að kaupa lakkrís.

En bæjarstjórnin er með stjórn á þessu öllu saman, eða það segir hún a.m.k. og á meðan fer köttum í Árborg ört fækkandi.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

júlí 9th, 2010 in Almenn umræða, Bókmenntir, Listir, Stjórnmál   |

3 Responses to “ Galdrafár geisar á Suðurlandi – svartir kettir, afturgöngur og skelfdar bæjarstjórnir ”

  1. # 1   Ragnheiður Says:
    júlí 10th, 2010 at 12:54 fh.

    Aumingja Selfyssingar!

    Svona eru málefnin sem fela aumingjaskap pólitíkusa á staðnum.

    Kettir eru orðnir aðal sökudólgarnir á Selfossi!! Hvítþvoum okkur af hruninu með því að skikka ketti til að ganga í bandi. Ó, hvílíkur munur að hafa fundið blóraböggla!

    Gott að sumir hafa húmor fyrir heimóttuskap og forpokun þeirra sem skilja ekkert: þ.e. sjálfstæðismönnum. Flott hjá þér Ingibjörg Elsa!!

    Setjum þessa pólitíkusa í poka og í ána með þá… : )
    Þeir geta ekki einu sinni gengið um í bandi án þess að skammast sín..

  2. # 2   Agnar Kristján Þorsteinsson Says:
    júlí 10th, 2010 at 11:49 fh.

    Ég er gersamlega ósammála boðskapi þessa pistils varðandi kettina enda finnst mér þetta gott framtak hjá Árborg, en assgoti er þetta skemmtilega skrifaður pistill hjá þér.

  3. # 3   aagnarsson Says:
    júlí 10th, 2010 at 11:54 fh.

    Nú fer ég að koma um hverja helgi til að sjá ykkur,
    ég er viss um að það verður brjálaður ferðamannastraumur að
    sjá þetta undur.

  • Síður

    • Um mig
  • Sarpur

    • júlí 2010
    • maí 2010
    • febrúar 2010
    • janúar 2010
  • Categories

    • Almenn umræða (7)
    • Bókmenntir (19)
    • Listir (2)
    • Stjórnmál (3)
    • Tónlist (1)
    • Trúmál og guðfræði (1)
    • Umhverfismál (3)
  • Search on This Blog

  • Meta

    • Nýskráning
    • Log in
    • Valid XHTML
    • XFN
    • WordPress


Minnispunktar úr músarholu © 2007 All Rights Reserved. Using WordPress Engine
Entries and comments.

Anubis 1.0 made by Nurudin Jauhari. Powered by WordPress MU.