Af hverju eru engar ákærur komnar gegn mönnum sem hafa með gáleysi sínu eða látið stjórnast af annarlegum kenndum í garð annara manna ekki verið gefnar út?
Af hverju er ekki en búið að frysta eigur manna sem komu landinu á kaldan klakan?
Af hverju bera þeir menn sem settu landið í gjaldþrot ekki sína ábyrgð?
Það er verið að tala um að horfa til framtíðar ,við skulum fyrst gera upp fortíðinna og horfa á nútíðinna hvernig við getum lagað það sem er að gerast í dag til framtíðar .
Almenningur mun ekki sætta sig við að þeir menn sem ollu hruninu með græðgi að leiðarljósi beri ekki ábyrgð á gjörðum sínum. Það er með öllu ólíðandi að menn sem græddu á því að leika krónunna grátt skuli getað leikið sér og ullað framan í fólk .
Ég ákæri opinbera starfsmenn sem áttu í starfi sínu að hafa eftirlit og grípa í taumanna þegar útséð var með að hagkerfið þyldi ekki slíka raun sem raun varð vitni .
Ég ákæri Stjórnendur Seðlabanka Íslands á árinu 2008 sem með gjörðum sínum voru þess valdandi að bankastofnannir hrundu hver af annari og gerði Seðlabanka Íslands gjaldþrota.
Ég ákæri Stjórnvöld á þeim tíma þegar hrunið var að hlusta ekki á aðvarannir úr öllum áttum um að Íslenska hagkerfið myndi kollvarpast ef ekkert yrði að gert.
Ég ákæri stjórnendur Bankanna á þessum tíma fyrir stórkoslega aðför að sjálfstæði Íslands ,með öðrum orðum Landráð.
Ég ákæri eigendur banka og annara fjármagnstofnanna um að svíkja út fé og selja gallaða vöru til viðskiptamanna ásamt því að koma undann ógrynni fjár .
Ég ákæri Alþingismenn fyrir linkind gagnvart þessum sömu mönnum og þora ekki eða vilja ekki gera þær ráðstafanir sem þarf til að koma lögum yfir þá aðila sem ollu að stærstum hluta þessu hruni.
Það að kenna Icesave um það að við fáum ekki lán eða fjármagn til framkvæmda er bara hálfur sannleikurinn ,má benda á að meðal annars sem tefur afgreiðslu lána frá Norðurlöndum er að ekkert bólar á að þeir menn sem voru viðriðnir hrunið skuli en ganga lausir allra mála .
Ég spyr ef bankakerfið þolir ekki afskriftir hins almenna borgara hvernig getur þá bankakerfið þolað allar þessar afskriftir útrásamanna sem nema hundruð milljarða ?
Ég kaupi ekki svona fullyrðingar að bankakerfið fari á hausinn aftur þó að afskriftir almennings bætist þar við.
Ef að menn vilja vinna þannig að málum að fólk geti borgað og lifað sómasamlega á að færa vísitölunna eins og hún var í kringum áramót 2007-8 . Fólk er ekki að fara fram á að fella allar skuldir niður heldur að það sé gert fært að borga án þess að stofna sér og sínum í hættu með því að eiga ekki fyrir mat eða trygga umönnun fyrir börn sín.
Hvað er að því að taka tímabundið vísitölunna úr sambandi ég hefði helst viljað sjá hana burt .
Enn og aftur minnist ég á þor .að Alþingismenn þori að taka ákvarðanir en séu ekki alltaf í einhveri vinsældarkosningu sem reyndar virðist ekki skila sér eins og sést á framsóknarmönnum.
Það er alltaf verið að tala um að þetta séu óvenjulegar aðstæður ,þá skulu menn taka á málunnum á óvenjulegan hátt ,það sýndi sig að venjulegar aðferðir dugðu ekki til að halda málum í horfum. Þá er næst að nota óvenjulegar aðferðir ,fara út fyrir rammann og skoða málinn utanfrá og athuga þaðan hvað hægt sé að gera .
Í því felst að fá utanaðkomandi menn, en ekki eins og þennan kanadamann sem sagði fyrir 2 árum að hann vonaði að allt hryndi þá gæti hann grætt á óförum annara ,við höfum ekkert með svoleiðis mann að gera hvað þá að hampa honum í einhverjum þætti sem er að verða svona í rammanum,svona maður getur bara verið heima hjá sér.
Ríkistjórnin hefur lokað skjaldborg heimillina segist hafa komið með tugi mála til bjargar ,en hafa þau gagnað að einhverju ráði?
Hvers vegna versnar þá ástandið ef hún hefur komið með tugi mála ?
Nei en og aftur segi ég óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar aðgerðir .En eru stýrivextir með þeim hæstu í heiminum eru einhver önnur markaðslögmál hér en annarsstaðar í veröldinni ? Er það eitthvert ófrávíkjanlegt lögmál að ekki megi taka úr sambandi vísitölunna sem sett voru til bráðabirgða með svokölluðum Ólafslögum .
Eitt smáatriði að lokum sem þorri manna glímir við það eru veðsetningarnar á húskofunum sem við eigum eða réttarasagt ekki eigum .Margt fólk fær ekki úrlausn mála sinna að því að veðsetning er kominn í botn og rumlega það. Það eru þau svör sem margir fá að því miður getum við ekki hjálpað vegna þess að það er ekkert veð til .
Er það það sem bankar vilja fá endalausir eignir til sín sem engin borgar af til þeirra, er það góð stjórn og til að auka verðgildi banka ?
Alþingismenn eiga að hafa þor til þess að samþykkja lög eða réttara sagt bæta við lög að menn séu lausir allra mála ef til uppboðs kemur .Ég held að það leiði til þess að bankar og aðrar fjármálastofnannir verði viljugri að hjálpa fólki .
Stjórnarskrá segir að ekki megi taka eignir fólks nema fullar bætur komi til .