Lán í óláni

This entry was posted by joelsson on fimmtudagur, 24 júní, 2010 at

Ég trúi því ekki að ríkisstjórninn ætli að fara að sniðganga dóm sem felldur er af Hæstarétti .Hvaða skilaboð eru það til manna sem brjóta af sér? jú allt í lagi að brjóta af sér því við getum alltaf borið því við að skilja ekki dóminn .

Að halda því fram að höggið verði of stórt er ósamræmi við það sem Íslandsbanki og Arion banki halda fram ,þeir segjast geta staðið þetta af sér .
Ætlar Gylfi að semja upp á nýtt við alla þá aðila sem tóku þessi lán í góðri trú um að þau væru í lagi þar sem það voru sérfræðingar sem við almenningur töldum nú að hefðu vit á þessum málum.(Við munum ekki samþykkja slíka samninga .)
Otuðu þessu að fólki linulaust .Eigendur bankanna hljóta að hafa vitað hvað þeir voru að gera Þó að þeir þessir sömu vissu að þeir voru að brjóta lög og tóku svo stöðu gegn íslensku krónunni til að græða enn meira .Alþingismenn Ráðherrar og aðrir embættismenn hljóta að hafa vitað um að þetta athæfi banka og annara fjármálafyrtækja hafi verið ólöglegt en hreyfðu engum mótmælum ef það þá voru einhver hafa þau farið hljótt .

Dómur Hæstaréttar er skýr að mínu áliti þó ég noti ekkert nema heilbrigða skynsemi .
Varðandi verðtryggðu lánin er þetta allt samhangandi aðgerðum bankanna, með því að taka stöðu gegn krónunni varð það til þess að gengið féll og féll allt hækkaði sem leiddi til þess að verðbólgan jókst sem aftur leiddi til þess að verðtryggðu láninn hækkuðu en á endanum hrundi kerfið það þoldi ekki ekki endalaust innantökur og ekkert var eftir til að halda uppi kerfinu og þarna þarf leiðréttingar við ,það er samt ekki hægt að blanda þessum 2 lánum saman þar sem annað var ólöglegt en hitt löglegt .
Það voru gjörðir eigenda gömlu bankanna sem ollu þessum atvikum öllum ,Það þarf að koma með nýjan hugsunnarhátt þar sem meðalmennskan víki það er að enginn skal hafa það betra enn næsti maður eða verra fer eftir atvikum .Við komust ekkert áfram með því ,

Allir Alþingismenn voru varaðir við því að láta þessi gengistryggðu lán fylgja nýju bönkunum en á það var ekki hlustað.
Dómur er dómur og menn verða veskú að fara eftir því en ekki reyna að finna einhverja leið framhjá og jafnvel hóta hæstarétti ég tel að með því sé verið að brjóta stjórnarskránna um að dómsvald,framkvæmdavald og löggjafarvald skuli vera aðskilið.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Twitter
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google Bookmarks
  • Blogplay
  • MySpace

Leave a Reply



Spam Protection by WP-SpamFree Plugin