Stöndum sem einn maður

miðvikudagur, mars 10, 2010 Posted by joelsson

Þá er búið að kjósa um Icesave og kolfellt af hinum almenna leikmanni .

Hvað þýðir þetta fyrir okkur ?Hversu lengi á að taka að koma samningum í höfn þar sem allir geta verið sáttir ?Mér sýnist nú að Hollendingar séu nú ekki á þeim buxunum að semja neitt sérstaklega við okkur en ég held að þar á bæ sé hrikalegur misskilningur á ferðinni þar sem þeir halda að við ætlum ekki að borga ,þarna þarf að leiðrétta hlutina strax.

Það gerist ekkert hér á landi fyrr en búið er að landa þessum samningi hvort sem okkur líkar betur eða verr ,það er bara staðreynd sem við verðum að horfast í augu við og hætta að þverskallast við. Hætta þessum skítamokstri í allar áttir heldur ráðast á vandan í sameiningu og láta af fúkyrðum og” ég veit allt betur en þið”.

Það að vinna gagnert að því að koma stjórninni frá hvað sem það kostar ber ekki vott um ábyrgðarfulla stjórnarandstöðu .Það er tvennt ólíkt að vera með andstöðu eða að vera með niðurrifstarfsemi .sem mér finnst sumir vera að gera gagnvart þjóðinni .

Einnig finnst mér allmargir þingmenn eingöngu að vera að hugsa um sjálfan sig og sína framabraut en gleyma að þeir eru að vinna fyrir þjóðinna .

Það sem ég er að reyna segja á einfaldan máta Hættið þessu orðaskaki og farið að vinna sem einn maður oft var þörf en nú er nauðsyn.

Hvað er fórnarkosnaðurinn orðinn hár með allri þessari bið á öllum vígstöðvum?

Ekki hugnast mér það að fórna Núverandi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra fyrir Ögmund, hann fór út á ögurstundu .

Eitt er það mál sem mig langar að minnast á og er forkastanlegt að utanríkisráðuneyti sé ekki búið að taka á og tek það fram að það er búið að hafa samband oft við ráðuneyti og ekki vildi ráðherra taka þessu máli alvarlega .þar á ég við baráttu móður um að fá barn sitt heim frá Bandaríkjunum og eru nú Faðir og móðir barnsins að reyna að fá það heim en síðast þegar fréttist hefur þessi barátta engan árangur borið og ekki lyftir Íslenska stjórnkerfið litla fingur til hjálpar ,þar sem svik og lygi hefur verið viðhöfð af viðkomandi föður barnsins .Slík mál kosta fjármagn og þetta mál er að setja viðkomandi fjölskyldu á hausinn. Ég spyr er ekki einmitt utanríkisráðuneyti til að hjálpa við slík mál eða þá dómsmálaráðuneyti ?

Meira að segja Bandarískum borgurum og embættismönnum er farið að blöskra sinnuleysi Íslenskra stjórnvalda í þessu máli og eru farnir að hjálpa sem þeir geta .

Það virðast vera margar brotalamir í íslenska stjórnkerfinu sem þarf að fara að taka á .

Eitt að lokum : Hvar stendur stjórnalagaþingið sem lofað var ?

Hvar er skjaldborginn um heimilin sem lofað var ? gildir það bara um þá sem áttu milljarða skuldir .

En á ný vil ég árétta það að við sem  borgum  gerum þá kröfu að þeir sem gerðust brotlegir við lög eða hinn  siðlausa hátt verði látnir bera ábyrg á sínum gjörðum það að bera því við að þeir séu ekki í persónulegum ábyrgðum er þvættingur til að fegra sitt eigið ego og á ekki að taka mark á ,því þeir sömu stjórnuðu og bera því ábyrgð annað er orðhengilsháttur .

Leið til að létta lundina

þriðjudagur, mars 2, 2010 Posted by joelsson

Var aðeins að vafra á netinu og fann hér skemmtilega stuttmynd sem sýnir hvað við getum gert til að gera lífið léttara mælt með að fólk sem vinnur í almennings tengslum horfi á .

nálgist hér

Fábjánaskapur Þráins Bertelssonar

þriðjudagur, mars 2, 2010 Posted by joelsson

Mín fyrstu viðbrögð þegar ég heyrði í honum þránni var að hlæja ,hvílíkur bjáni getur maðurinn veriðdog_w_attitude að halda slíku fram að allir þeir sem styðja það að fella niður listamannalaun séu fábjánar og halda því fram að 5% þjóðarinnar séu fábjánar.

Mikið hlýtur honum Þránni að líða illa í kringum fábjánana sem eru í kringum hann .Það mætti þá halda að 5% af þingmönnum væri fábjánar og þá hlítur honum að líða illa á þessum vinnustað sínum .

Ég segi skammastu þín Þráinn að tala svona niður til fólksins sem þú vinnur hjá og  hlýtur laun sem þingmaður og hlýtur listamannalaun ofan á það sem á náttúrulega ekki að líðast .´Eg spyr til hvers voru þessi listamannalaun stofnuð í upphafi ?

Þau voru örugglega ekki stofnuð til þess að þeir sem væru á þeim hefðu þau sem aðrar tekjur heldur hefðu þau meðan að viðkomandi væri að vinna að ákveðnu verkefni og gæti einbeit sér að þeim meðan hann eða hún væri að byggja sér upp grundvöll til varanlegrar tekna af sínum listum.

Það er með öllu ólíðandi að maður sem er kosinn þingmaður skuli tala svona til þjóðar sinnar , Ég fer fram á að viðkomandi segi af sér sem þingmaður og hann biðji þjóð  sína  afsökunnar á orðum sínum  .

Það er kominn tími til að menn beri ábyrgð á því sem þeir láti út úr sér þannig að menn læri að bera virðingu fyrir öðrum og beri virðingu fyrir hvað meirihluti þjóðarinnar heldur um hin ýmis mál .

Icesave 4 þáttur

þriðjudagur, febrúar 23, 2010 Posted by joelsson

1254236955nQhxi2

Mín skoðun er sú að allt er gert til að viðhalda umræðu um Icesave í óvissu gagngert til að fela allt það sukk sem viðgengst hefur á hinum svokölluðu góðæri  og er enn að gerast sem kemst ekki almennilega upp á yfirborðið vegna mjög mikillar umræðu og umfjöllunar hjá fjölmiðlum og það er ekkert talað um annað en Icesave .

Ég hef bent á það að þessi vandi er ekki nema 11 % af þeim vanda sem við eigum í og finnst mér eitt of miklum tíma í þetta einstaka mál meðan önnur mál halda áfram nánast stjórnlaust og án eftirlits ,Bankar fá að haga sér eins þeir vilja ,menn fá fyrirtæki sem þeir settu á hausinn afhent bara sí svona án þess að borga krónu fyrir enda geta þeir það ekki þar sem þeir segjast ekki vera í persónulegum ábyrgðum fyrir því fyrirtæki sem þeir áttu ,heyr á endemum auðvita eru menn ábyrgðir á þeim gjörðum sínum sem settu fyritæki á hausinn. Ekki settu fyrirtækin sig sjálf á hausinn.

Að afhenda fyritæki mönnum sem eru með réttarstöðu grunaðs manns um stórfellt svik eða þaðan af vera er hneyksli og sýnir hversu skammt við erum á leið í siðbætingunni. Sem er kannski sngin furða því það kemst ekkert annað að enn Icesave .Það fæst ekki lánsfé til landsins til að hefja uppbyggingu ,bankarnir halda að sér höndum  til að hjálpa þó þeir séu stútfullir af peningum , Bankastjóri kemur fram í þætti á vegum útvarps og segir við þjóðinna við getum ekki afskrifað vegna þess að þeir vita ekki hver getur borgað ,ja sérhver er nú viskan í mönnum var þetta ekki sami maður og setti Icebankann í þrot og eigum við að trúa svona þvættingi. Ja ég bara spyr .

Mín skoðun er sú að við eigum að samþykkja Icesave ríkisábyrgðina .Nota tíman til að byggja okkur upp aftur ,það er orðið dýrt fyrir okkur að draga  þetta mikið lengur .

Við verðum að spyrja okkur Höfum við efni á að það frost sem er í efnahagslífinu haldi  áfram mikið lengur ? Heimilum er að blæða út vegna að ekkert kemst að nema Icesave er stjórnarandstaðan það stærsti þröskuldurinn er hún að hugsa um þjóðarhag eða eiginnhagsmuni eins og ég nefndi í uppahafi pistil þennan.

Ég er þess fullviss að það verði hægt að ná betri samningum við breta og hollendinga eftir að kreppan er að mestu liðinn hjá .

Það er líka til önnur lausn það er sú að hætta öllum samningaviðræðum við þá ,fella ríkisábyrgðina í kosningum ,þá ferAGS getum þá stjórnað okkur sjálf án íhlutunar þjóða og séð til hvernig okkur reiðir af .Er það það sem við viljum?

Enn á ný nefni ég stjórnlaga þingið sem var lofað að kæmi hvar er það statt í öllu þessu .Ég treysti ekki þingmönnum til að fjalla um og koma með tillögu að nýrri stjórnaskrá fyrir þjóðina . Hvernig geta menn fjallað um stjórnaskrá þegar sömu menn geta ekki fjallað um einföld mál eins og koma þeim sem ollu þessu írafári sem setti allt á annan endann og í raun setti heilt þjóðfélag á hausinn .

Þessir menn halda áfram eins og ekkert hafi í skorist siðblindir og hrokafullir sína enga iðrunn biðjast ekki einu sinni afsökunnar .Þessum mönnum er verðlaunaðir eins og ég hef talað um áður það er hlutverk þingmanna að setja lög þannig að hægt sé að draga þessa menn til ábyrgðar og ná í þann auð sem þeir komu undan það er á allra vitorði en ekki hægt að gera neitt vegna skorts eða galla í lögum en nei ekkert annað kemst að en Icesave 4 þáttur

Nýtt Ísland eða gamla einkavinavæðinginn áfram

laugardagur, febrúar 6, 2010 Posted by joelsson

Hvert viljum við stefna ? Viljum við nýtt Ísland eða gamla höfðingjaveldið þar sem nokkrar ættir ráða yfir landi og miðum ? Það þarf breytingar og helst í gær .

Hvað líður með kosningar í stjórnlagaþingið þar sem hugmyndir voru um að breyta stjórnarskránni til nútíma ,koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur sem gerðist haustið 2008.Það virðist sem lítið gerist í þessum málum ,það eru sömu valdaklíkurnar sem ráða ,ekkert eða lítið sést að menn séu dregnir til ábyrgðar fyrir  já ég vil segja stolnum peningur af okkur almúganum.

Þegar kvótinn var settur á á sínum tíma hélt ég að það væri til að vernda fiskinn í sjónum en ekki til að gefa hann nokkrum nokkrum mönnum hringinn í kringum landið .síðan komu heimildir til að framselja og leigja kvótann sem voru mikil afturför

Þá kemur þar til að það var auglauslega stefnt að því að fáeinir útvaldir áttu að eignast kvótann ,sem reyndar er furðulegt því það stendur í lögunum að fiskurinn er eign þjóðarinnar .þar er upphafið af sukkinu og svínaríinu sem sett hefur þjóðina á hausinn.

Svo fara menn á límingu yfir því að þjóðin vill fá þessa heimild til baka og að menn verði að borga fyrir eða leigja kvótann af þjóðinni .Hver er að tala um að taka alfarið kvótann af mönnum ég hef ekki heyrt það heldu geta menn fengið hann gegn borgunn.

Það getur vel verið að menn hafi keypt kvóta en þá hafa þeir keypt hann af öðrum útgerðaaðilum en ekki ríkinu sem hefur úthlutað kvóta hingað til án borgunnar eða allavega þá upphæð sem vart er talandi um .Og það að öll fyrirtæki fari á hausinn verði af þessu er mikill grátkór ,þá er fyrirtækjum ekki vel stjórnað og varla á setjandi.

Það var athyglivert að hlusta á Gunnlaug Guðmundsson ræða um fortíð,nútíð og framtíð á Bylgjunni í þættinum Ísland í bítið Föstudaginn 5 feb. ,því miður fann ég ekki hljóðupptöku á Bylgjunni og fann ekkert um þetta á stornuspeki.is

Og hvet stjórnendur til að setja þetta efni á síðurnar þar sem hægt er að nálgast þetta .

En snérist í grófu máli um ættarveldi í fortíð ,um helminga skifta regluna í nútíma og svo hvernig við viljum að Ísland verði í framtíð.

Ég hef áður talað um að það þyrfti skýra línu milli framkvæmdavald ,löggjafarvald og dómsvalds .Þetta er hægt að gera þrátt fyrir fámennið hér á landi .Eins og þetta er í dag er mikil hætta á vina og ættarráðningum í störf þar sem jafnvel er horft framhjá hæfari mönnum og hefur gerst og er að gerast þrátt fyrir að kominn er stór krafa um önnur vinnubrögð .Alþingismenn virðast vera ofurseldir til flokksforustunnar og virðist vera að sjálfstæði sé tekið af mönnum sem starfa á alþingi og þeir séu stöðugt að greiða atkvæði gegn sannfæringu sinni .þessu þarf að linna með breyttu kosninga kerfi þar sem kosið er um einstaklinga en ekki flokka .Forsætisráðherra verði kosinn beinni kosningu .Ég vil fara að sjá eitthvað gerast í þessum málaflokki .

Getur það verið að menn sætti sig við að vera viljalaus verkfæri í höndum þeirra sem fara með framkvæmdarvaldið og að í raun er það framkvæmdavaldið sem stjórnar alþingi og stjórnar því hverjir eru skipaðir til dómara ,þarna hefur orðið brenglun í lýðræðisþjóðfélagi sem við viljum vera ,þarna þrífst spilling og einkavina hjálpsemi .

Alþingismenn verða að hafa kjark og þor til að breytu þessu og það er krafa um slíkt en því miður er lítið um slíkt .

Brot á 26 grein ef hætt er við

laugardagur, janúar 16, 2010 Posted by joelsson
Farið yfir gögn

Stjórnmálamenn tala um að það sé möguleiki að ekki verði atkvæðagreiðsla á Icesave ,Ég get ekki betur séð að slíkt er brot á 26.gr stjórnlaga Íslenska ríkisins Ég tel einnig að brotin hafi verið sú grein 2004 þegar dregið voru til baka fjölmiðlalöginn. Á hverju byggi ég þetta jú ég byggi þetta á orðalagi í 26 gr. Þar segir :

“Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.”

Það kemur skýrt fram að það skuli leggja til atkvæðagreiðslu sem fljótt sem kostur er Það kemur hvergi fram að það sé hægt að draga til baka lögin eða hætta við að leggja viðkomandi lagafrumvarp fyrir þjóðinna . Það að ekki skuli vera lagt fyrr en í mars er með öllu ófært og það að segja við okkur almúgan að það sé ekki hægt út af hversu langann tíma tekur að samkeyra kjörlistann er ekki sannfærandi á öld tölvunnar .

Ég er nú ekki löglærður maður en get ekki séð með lestri stjórnlaga að það gefi tækifæri til að draga til baka þau lög sem á að bera undir þjóðinna . Verði það gert tel ég það vera brot á stjórnarskra og ber að taka á því samkvæmt því .

Það að menn skuli vera að flækja einfaldleikan ber vitni þeirra manna um sérhagsmuni.

Framtíðarsýn Íslands

laugardagur, janúar 2, 2010 Posted by joelsson

Enn er nýtt ár genþjórságið í garð ,hvernig mun þetta ár verða fyrir okkur ? Munu þau ósköp ganga yfir okkur sem sagt er að muni gerast eða getum við haft áhrif á það?

Er allt fyrirfram ákveðið og erfitt sé að leika á örlagadísirnar? Mín skoðun er sú að allt er þetta undir sjálfum okkur komið hvernig við hugsum og hvernig við framkvæmum .Allar breytingar þurfa að byrja hjá okkur sjálfum ,við þurfum að líta inn á við og athuga hverju við getum breytt og lagað hjá okkur sjálfum áður en við getum sagt við náungann að þetta er ekki nógu gott hjá þér þú þarft að laga þetta

Hvernig Ísland viljum við hafa í framtíðinni ?

Viljum við að nokkrir menn stjórni landinu eins og verið hefur í gegnum aldirnar ,nokkrir menn sem hafa peninganna það er ekkert horft fram hjá því að þannig hefur það verið en þarf það þannig að vera ?Hvar byrjum við á breytingunum ?

Eins og ég  minntist á fyrr byrjum við á  að naflaskoða okkur sjálf ,næsta skref yrði líklega að skoða hvernig og hverja við viljum fá til að stjórna landinu í okkar umboði eða hvernig við viljum að stjórnskipunninn er og hvernig viljum við velja þá. Einnig hefur lítið verið talað um einn áhrifa mikinn hóp innan stjórnkerfisins sem eru embættismenn þeir eru mjög valdamiklir og í raun ráða því sem þeir vilja ráða.

Þarna þarf að breyta  embættismannakerfinu á þann veg að menn séu ekki of lengi á sama stað .Því að það verður alltaf tilhneigingin þegar menn eru orðnir lengi á sama stað eru þeir eins og ráðríkir hundar sem erfitt er að eiga við.

Næst er að líta á hverja við kjósum og hvernig við gerum það .Er eðlilegt að kjósa sama manninn aftur og aftur sama hvað hann gerir eða gerir ekki ? Mér finnst í gegnum árin menn hafa komist upp með of mikið sama hvort menn gerðu mistök eða hvort menn framkvæmdu eitthvað á gráu svæði .Ég ætla ekki að nefna neinn dæmi .Menn sjá svo misjafnt hvað eru grá svæði eða hvað menn gerðu rangt allavega þegar menn eru orðnir alþingismenn er allt fyrirgefið en á það að vera svo? Menn verða að bera ábyrgð á gjörðum sínum og fólkið í landinu á náttúrulega að refsa hiklaust þeim mönnum sem ekki standa sig ,Ekki fáum við að standa í lappirnar gerum við eitthvað af okkur, það sama á að ganga yfir þá sem við veljum til ábyrgðar .

Ég held að flokkakerfið sé gengið sér til húðar og þar þurfi breytingar við ,ég vildi sjá einmenningskjördæmi ,spurninginn er hversu margir íbúar yrðu þá á bak við hvern  þingmann og um hversu marga þingmenn yrði að ræða ég held að þetta kerfi myndi rétta hlut höfuðborgarsvæðisins mjög mikið á þá kosnað landsbyggðarinnar þarna yrði því um að ræða 1 maður kosinn í hverju kjördæmi .

Hvernig yrði þá ríkistjórn mynduð myndu margir spyrja en þar myndi forsætisráðherra vera kosinn í beinni kosningu hvort sem þar yrði um sameiningu embætta eða forseti kosinn sér og forsætisráðherra sér en ég hallast að því að um sama embætti yrði að ræða og myndi embættið verða forseti og forsætisráðherratitillinn fella niður

Þjóðaratkvæðagreiðslur yrði mun mikilvægari í þessari sýn heldur en áður um málefni er viðkemur þjóðinni s.s. um nýtingu sjávar ,um nýtingu orku og fl í þeim dúr .Við eigum að nota þetta lýðræðistæki mun meira en við gerum í dag .

Ég vil fá að sjá efndir um stjórnlagaþing til þess að breyta stjórnarskrá og hvernig við viljum sjá nýtt Ísland á nýjum tímum og breyttum tímum .

Þriðji þáttur Icesave

laugardagur, desember 26, 2009 Posted by joelsson

Þá eru Jólinn liðin og fer brátt að draga til tíðinda í Icesave málinu.

Ætla menn að líta á þjóðarhag eða ætla menn að láta stjórnast af flokks hag

Sama hvað tautar og raular .Hvenær ætla menn að hætta að plástra  hag heimilinna

Og gera eitthvað bitastætt fyrir fjárhag  hins almenna borgara.?

Frá Dyrhólaey
Frá Dyrhólaey

Það er ekkert búið að gera fyrir lántakandann hann skall sko fá að borga á fullu og bera alla ábyrgð en lánveitandinn sem átti í raun stærstan hlut í hruni bankana ber enga ábyrgð heldur tryggður fyrir því að fá allt til baka ,það er ekki rettlát málsmeðferð.

Það er búið að afskrifa hundruð milljarða hjá þeim sem áttu stærstan þátt í hruninu en hjá hinum almenna borgara er ekkert slíkt í gangi ,og svo eru menn hissa á að fólkið sé reitt.

Auðvitað sýður á fólki og það er hart að hlusta á þessa menn sem að ráða (eða er það AGS  sem stjórna í raun )  vera tala endalaust Icesave þegar heimilinn brenna og lánin hækka dag frá degi og er endanlega að keyra heimilin í þrot .Ég kaus menn á Alþingi til þess að taka ákvarðanir en ekki endalaust tal nú vona ég að linni og menn greiði atkvæði nei eða já ,ég ætlast til að menn svari því hvort þeir vilji borga eða ekki borga ,standi ekki hjá á hliðarlínunni og sitji hjá .Kannski búnir að vera harðir á móti en eru ekki tilbúnir að standa við sannfæringu sína .

Ég persónulega tel að eins og pottinn er búið í dag þá er okkur sá eini kostur að segja já við ríkisábyrgð,held að það sé skárri kostur af 2 slæmum .

Þá skulum við líka spyrja okkur að því hvað gerist ef við samþykkjum ekki ríkisábyrgð ,getur einhver svarað því?

Hvað telja menn að gerist ? Ég fæ ekki betur séð en lán frá Norðurlöndunum stöðvist ,Forsendur fyrir áætlun með AGS dregst um einhverja mánuði ,líklega fer verðbólgan að bæra verulega á sér vegna þess að krónan veikist  ,atvinnuleysi mun aukast eitthvað ,enn munu skuldir heimilina aukast og fólksflótti frá landinu mun aukast nóg er um þann flótta í dag .Og umræður um Icesave munu halda áfram og tefja önnur áríðandi mál .

Með því að samþykkja kaupum við okkur frið í nokkur ár til að styrkja okkur ,þá að kostnaðurinn sé nokkur er spurning hvort það sé ekki minni kostnaður en að samþykkja ekki .Það getur ekki verið hugsun Breta og Hollendinga að klafsetja okkur svo mikið að þeir muni ekki fá borgað þann hluta sem okkur var ætlað að borga ,munum það að þeir hafa borgað stærsta hlutan út til viðskiftamanna  bankana í þeirra heimalandi .

Jafnframt hlítur sú krafa að vera há að þeir menn sem báru ábyrgð á þessum gjörningi vitandi hvað var í gangi og jafnframt vitandi  að þeir væru á afar gráu svæði .

Það er góðs viti að verið er að leiða menn til dóma en það eru einungis peð sem hafa farið þangað ennþá .

Semsagt ég ætlast til þess að Alþingismenn sem við kusum til að fara með löggjafarvaldið fyrir okkar hönd greiði atkvæði samkvæmt sinni samvisku og fyrir þjóðarhag en ekki flokksmaskínurnar .

Gleðileg Jól

miðvikudagur, desember 23, 2009 Posted by joelsson

Þá eru jólinn um það bil að ganga í garð og af því vil ég óska ykkur öllum

Jólatré
Gleðilegra Jóla

og gleðilegt nýtt ár

óska jafnframt eftir að þið munið hafa friðsæld á jólum og nýju ári .

Mín fyrsta færsla

sunnudagur, desember 20, 2009 Posted by joelsson

Verið velkominn á mína síðu .Ég ætla að nota þessa síðu til að segja frá mínum hugrenningum um mál og málefni líðandi stundar eða bara til að létta af hugsunum mínum um allt og ekki neitt . ‘Eg vil óska  ykkur gleðilegrar hátíðar .