RSS:
Publications
Comments

Góður dagur

Eins og Heiða vinkona sagði þá var þetta góður dagur. Sigrún Davíðsdóttir var með fyrirlestur hjá Sagnfræðingafélagi Íslands í Þjóðminjasafninu sem var þétt setinn og vægast sagt frábær.

Það sem Sigrún segir er í sjálfu sér blákaldur sannleikur :

  • Þeir sem skulda mest, óttast minnst bankana.
  • Þeir sem skulda “bara” húsin sín hræðast mest bankana.
  • Venjulegir fyrirtækjaeigendur með venjulegan (eðlilegan) hagnað spurðu sig hvað þeir væru að gera rangt.
  • Stjórnendur íslensku fyrirtækjanna erlendis (lesa : útrásarvíkingar) fóru ekki fram með nægilegri fyrirhyggju.

svona mætti lengi telja, en allt það sem hún sagði og benti á, fór, held ég, beint inn í hjartað okkar.

Spurningin í dag er því : Hvað skal gera ? Er einhver leið til þess að fyrirbyggja að hið “Nýja Ísland” verði eins og það gamla ? Er það ekki það sem við viljum, byrja upp á nýtt og sýna okkur og öðrum sem nenna að fylgjast með því sem er að gerast hérna að við getum rekið Ríkið með öðrum hætti ?

Hvernig gerum við það ? Það er stóra spurningin sem við þurfum öll að leitast við að svara. Mín leið er að gera kvikmynd um það sem hefði ekki átt að vera, með þá von að hægt sé að læra af mistökum síðustu áratuga með því að forðast gömlu aðferðafræðina, nefnilega Spillingu. Sú spilling hefur birst í ýmsum myndum en að mínu mati er eitt það alvarlegasta kunningja, vina og fjölskylduráðningar þeirra sem hafa haft tækifæri til þess að ráða fólk í mikilvæg störf innan stjórnsýslunnar.

Vinir og kunningjar sem ráðamenn okkar treystu til þess að vinna með hag okkar í huga, en sem, því miður, þó svo að vilji þeirra hafi sennilega verið sá að vinna þannig, höfðu oft ekki kunnáttuna til þess.

Hér er stikla myndarinnar “Maybe I Should Have” sem var sýnd í Kastljósinu í dag. Hressileg og lofar góðu með Gunna Sig sem leitar að svörum.

YouTube Preview Image
Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin