Ég fór á myndina í gær með mömmu og stundum langaði okkur til þess að klappa. Margt af því sem hann bendir á á heima hér á landi og held ég að við eigum ekki að vera hrædd við að benda á Lobbýisma í því samhengi jafnt og óprúttna bankamenn sem telja sig mega gera hvað sem er.
En, hvað er ráðið hjá okkur, hvað eigum við að gera ? Ég hef það á tilfinningunni að margir séu einfaldlega þreyttir á krepputali, sem er kannski skiljanlegt, en snúum okkur þá að öðru. Tölum um það sem við getum gert til þess að breyta samfélaginu sem við búum í. Fyrsta skrefið að mínu mati er rannsókn á hruninu og mér virðist sem það sé “ongoing process”. Ég vil trúa því að verið sé að vinna í þessari rannsókn af heilum hug og að skýrsla Alþingisnefndar eigi eftir að oppna augu okkar fyrir því sem hefði betur mátt fara.
Við þurfum bara að minna Ríkisstjórnina og Alþingismenn/konur á að við gleymum ekki því sem er bráðnauðsynlegt jafnvel lífsnauðsynlegt fyrir okkur til þess að halda áfram : Allt upp á borðið !
