RSS:
Publications
Comments

Landið er á hvolfi !

Síðustu vikur hefur mér liðið afskaplega illa. Það líður ekki sá dagur að maður fái ekki að lesa fréttir af subbulegu athæfi þeirra sem taldir voru stólpar samfélagsins.

Nú rúmu ári eftir hrun sjáum við enn ekki að verið sé að tukta neinn til þó við fáum fréttir af einstaka húsleitum og yfirheyrslum. Það er bara ekki nóg.

Við þurfum að sjá aðgerðir, við þurfum að finna að Ríkisstjórnin og Alþingismenn standi með okkur, fólkinu sem býr hér og borgar skatta, í stað þess að hafa þessa óþægilegu tilfinningu að verið sé að passa upp á ódáðamennina.

Ég er farin að halda að tíminn eigi að vinna fyrir þá, að allt sé gert til þess að glæpir þeirra fyrnist og hægt verði að fela sig bak við þá afsökun þegar loksins verði búið að sanna eitthvað upp á þá. Við getum ekki liðið það.

Ég krefst þess að Ríkisstjórnin fari að vinna fyrir OKKUR, síni okkur hvað þau eru að gera, áður en við gefumst upp.

Ríkisstjórnin á að koma í veg fyrir glæpi þeirra sem taka bíla og hús af þeim sem geta ekki lengur borgað af OKUR lánum. Það er skylda Ríkisstjórnarinnar að vernda íbúa landsins, þeir gætu byrjað á því að endurskoða reglugerðir lánastofnana.

Takk fyrir.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin