Frá Sigurði Hrelli.
Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og miklum vonbrigðum með þá fyrirætlun forsætisnefndar Alþingis að ætla níu manna pólitískt skipaðri þingnefnd að ákveða einróma hvernig unnið verður úr niðurstöðum rannsóknarnefndar um bankahrunið.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að fela alþingismönnum sjálfum það vandasama hlutverk að meta ábyrgð flokksfélaga sinna, t.d. hvort ráðherrar í fyrri ríkisstjórnum hafi með aðgerðum sínum eða andvaraleysi gerst brotlegir við lög. Ólíklegt verður að teljast að samhljóða niðurstaða nefndarinnar skili réttlátri málsmeðferð.
Samkvæmt reglum réttarríkisins er enginn hafinn yfir lög, hvorki ríkisstjórnir, ráðherrar, Alþingi, alþingismenn, stofnanir stjórnsýslunnar né dómararnir sjálfir. 65. grein stjórnarskrár lýðveldisins segir m.a. að allir skuli vera jafnir fyrir lögum. Sú hugmynd að láta alþingismenn sjálfa skera úr um ráðherraábyrgð er engu skárri en að fela Viðskiptaráði að skera úr um ábyrgð fjármálastofnana eða forstjóra þeirra.
Þess vegna verður það að vera hafið yfir allan vafa að allir atburðir sem falla undir refsiverða háttsemi berist frá rannsóknarnefndinni beint til embættis sérstaks saksóknara án tilstuðlan pólitískra milligöngumanna.
Með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða. Vill Borgarahreyfingin beina þeim eindregnu tilmælum til alþingismanna og allra sem rannsókninni tengjast að virða kröfur þjóðarinnar um heiðarleika, réttlæti, virðingu, jafnrétti, ábyrgð og annað sem nýafstaðinn þjóðfundur leiddi í ljós.

Ömurlegt. Eins og þetta auki traust í þessu samfélagi okkar.