RSS:
Publications
Comments

Hættum að vera kurteis !

Mig langar til þess að bölva.

Þetta segir Ásta Ragnheiður : „Þetta er í samræmi við lýðræðishefðir í nágrannalöndum okkar. Þá er það þannig að þegar þingin láta vinna fyrir sig skýrslur eins og Rannsóknarnefndin er að vinna fyrir Alþingi að þá skilar nefndin þinginu skýrslu og við því tekur þingnefnd. En af því að við erum ekki með neina fasta þingnefnd til þess að þá verður sett á laggirnar sérstök þingnefnd til þess”

Ég spyr : Er þessi Alþingisnefnd ekki þingnefnd ? Hún heitir Rannsóknarnefnd Alþingis….. (§{!!^]})

Hvað er ég ekki að skilja hérna ?

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

5 Comments to Hættum að vera kurteis !

  1. Sveinn Pálsson's Gravatar Sveinn Pálsson
    17. nóvember 2009 at 15.22 | Permalink

    Sæl frænka.

    Þetta er að verða mjög dularfullt með þessa þingnefnd.
    Líklega stendur til að fela eitthvað.

    Þar sem ég veit að þú hefur búið lengi í Frakklandi, þá á ég ekki von á því að þú hættir að vera kurteis, nema þegar veruleg þörf er á að gera undantekningu.

    Þetta mál virðist vera þannig.

    Bestu kveðjur, Sveinn Pálsson.

  2. Ómar Harðarson's Gravatar Ómar Harðarson
    17. nóvember 2009 at 20.20 | Permalink

    Svo ég taki að mér óumbeðið að útskýra.
    a. Ef þarf að breyta lögum, þá getur enginn lagt fram frumvarp nema þingmaður sé (forsetinn hefur reyndar slíkan rétt en gerir það bara í gegnum stjórnarfrumvörp). Þess vegna þingnefnd.
    b. Ef þarf að draga ráðherra fyrir Landsdóm fyrir embættisafglöp, þá er það ekki hægt nema þingið samþykki að svo verði gert. Það þarf undirbúning að slíku. Þess vegna þingnefnd.

    Mér finnst nær að bölva í sand og ösku, að þessi svokallað rannsóknarnefnd starfar algerlega bak við lokaðar dyr, og ekki síst að hún skuli hafa heykst á því að skila skýrslunni í þessum mánuði. Ég óttast að menn komist að því að í febrúar verði of stutt í sveitarstjórnarkosningar til að hægt sé að birta svo eldfimt efni sem niðurstöður hennar eru (kannski). Þetta finnst mér meira fokking fokk ofan á allt hitt.

  3. theodorn's Gravatar theodorn
    18. nóvember 2009 at 3.15 | Permalink

    Þetta virðist ætla að vera enn einn kattarþvotturinn. Þingmenn að rannsaka og fella dóma í sínum eigin glæpaverkum.

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin