RSS:
Publications
Comments

Hættum að stinga höfðinu í sandinn

Veðrið var eins og í draumi og útsýnið eins og það best gerist á fallegum degi. Snævi þakin fjöllin heilsuðu mér þar sem ég sat og horfði út um gluggann í flugvélinni, og ég varð glöð. Glöð að vera Íslendingur, glöð að vera ein af nokkur hundruð þúsund manna þjóð.

Þegar við nálguðumst flugvöllinn blasti við reykurinn frá Bláa lóninu og það leiddi hug minn að orku og þaðan til útrásar”aumingja”.

Hvernig datt einhverjum í hug að verða milljarðamæringur á þessu litla landi, ekki bara einum manni / konu, heldur nokkrum tugum (og kannski voru það nokkur hundruð sem létu sig dreyma um það).

Hvaðan fengu þeir peningana ?

Jú, þeir stálu þeim. Ekki bara frá okkur Íslendingum, heldur fóru þeir í hina margumtöluðu útrás, þóttust vera snillingar, og rændu og rupluðu alls staðar þar sem þeir drupu niður fæti.

Í dag eigum við að borga, við 313.000 sálir, sem treystum Ríkisstjórn og embættismönnum eftirlitsstofnana til þess að vinna vinnuna sína.

Við þurfum að borga vegna þess :

  • að við viljum alltaf trúa því besta upp á nágrannann.
  • að við viljum ekki trúa því að bræður okkar og systur geti verið óheiðarleg.
  • að mágkonur, mágar, svilar og vinir geta ekki verið þjófar !

Kæru landsmenn, vaknið.

Er ekki kominn tími til þess að við förum að sýna óþolinmæði okkar vegna aðgerðarleysis stjórnvalda, eða eigum við að treysta því að þeir séu færir um að sækja til saka bræður sínar og systur, mágkonur og mága, svila og vini ?

YouTube Preview Image

Íslenskir ráðherrar virðast ekki skilja hvað þeir hafa mikið vald. Þeir geta, hvenær sem er, tekið fram fyrir hendur dómstóla og hafist handa.

Þeirra skylda er að vernda almenning sem býr á landinu.
Þeirra skylda er að sýna almenningi þá virðingu sem þeir hafa hlotið, með því að taka völdin sem þeir eiga en vita ekki af.

Kæra ríkisstjórn, farið að vinna vinnuna ykkar, hættið að vera hrædd/ir og sýnið almenningi að þið séuð þess verðug að stjórna landinu.

ANNARS VERÐUR ALVÖRU BYLTING.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

2 Comments to Hættum að stinga höfðinu í sandinn

  1. Elsa Eiríksdóttir's Gravatar Elsa Eiríksdóttir
    22. nóvember 2009 at 21.44 | Permalink

    Ég get ekki verið annað en sammála því sem hér er sagt. Ríkisstjórnin þarf að koma hausnum á sér upp úr sandinum og láta verkin tala. Íslendingar eru allir orðnir frekar þreyttir á seinaganginum og lélegum úrræðum sem þeir bjóða heimilum á meðan bankarnir eru ENNÞÁ að hygla þeim sem komu okkur á hausinn. Bjóða þeim afskriftir upp á milljarða og leyfa þeim að leika lausum hala áfram. Það sést best á myndbandinu hér að ofan. Það verður alvöru bylting eftir áramót ef þetta heldur áfram. Ef ríkisstjórn Íslands ræður ekki við verkið á hún að hafa vit á því að segja af sér.

  2. arikuld's Gravatar arikuld
    24. nóvember 2009 at 1.46 | Permalink

    Ég hef á tilfinningunni Lilja að við munum ekki komast hjá byltingu. Því miður.
    Kv, ari

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin