Ég hlakka til að lesa bókina og hef sérstaklega áhuga á hugmyndum Styrmis um lýðræði og ég tel, eftir að hafa hlustað á höfundinn í þætti Egils, að um sé að ræða, heiðarlega lýsingu á því sem verið hefur. Því ber að fagna og þakka ég höfundi fyrir.
En samt, jæja já. Voðalega hafa allir verið vondir við okkur.
Það var ekkert umsátur, hverjum er ekki sama um það hvort bankarnir okkar stækki, svo fremi sem ekki er um glæpastarfsemi að ræða ? Vandamáli okkar Íslendinga er sú, að þeir sem voru á vakt, voru blindir og heyrnarlausir.
Þeir sáu ekki, eða létu sem þeir sæju ekki, hvað var um að vera. Smá dæmisaga :
Jón á peninga í Þýskalandi og vill senda þá til Jómfrúareyja. Ef hann gerir það frá Þýskalandi tilkynnir bankinn hans Trackfin og skattinum frá því. Jón verður settur undir smásjá og allt það sem hann gerir og hefur gert er rannsakað ofan í kjölinn.
Hvað gerir Jón í Þýskalandi ?
Jú, hann sendir peningana til Íslands, landið er jú í EES, og bankinn hefur enga ástæðu til þess að senda út viðvörunartilkynningu til Trackfin og skattayfirvalda. Héðan sendir hann svo peningana sína þangað sem hann vill, og öllum er sama.
Annað dæmi.
Pétur á heima í Rússlandi. Hann vill kaupa sér hús á Spáni. Ef hann sendir peningana beint til Spánar mun bankinn sem tekur við peningunum þurfa tryggingu fyrir því að þessir peningar séu hreinir, þ.e.a.s. að til þeirra hafi verið unnið á heiðarlegan hátt. Pétur getur engan veginn sannað það.
Hvað gerir Pétur í Rússlandi ?
Jú, hann sendir peningana til Íslands, þar sem enginn sér ástæðu til þess að efast um heiðarlega tilkomu peninganna, og sendir peningana til Spánar héðan.
Þessi dæmi eru einungis dæmi og það má vel vera að þetta hafi aldrei gerst.
Hitt er annað mál að eftirlitsstofnanir í Evrópu hafa haft nokkrar áhyggjur af þessu og reyndu að fá íslensk yfirvöld til þess að koma í veg fyrir þetta. En til einskis.
Er einhver hissa á framvindu mála eftir hrunið ?
Annars er ég sammála Styrmi um það að aðildarumsókn okkar að Evrópusambandinu og samningarviðræður þar að lútandi snúast um auðlindir okkar. Sennilega endurheimtum við, sem þjóð, auðlindirnar í okkar úr höndum þeirra sem hafa fengið þær gefins. Ég er líka sammála Styrmi að þetta byrjaði allt með kvótakerfinu og framsali kvótans.
Varanlegar undanþágur; það er ekki víst að við þurfum á þeim að halda ef samningarnir eru góðir hvað varðar auðlindirnar. Það væri nær að tala um “varanlegar undantekningar”.
Ég er svo hjartanlega sammála mörgu af því sem Jón Baldvin segir og virði það að hann taki á sig ábyrgð fyrir lélega stjórnarandstöðu fyrri tíma, sem Styrmir bendir svo réttilega á.
Stjórnlagaþing fólksins núna. Nýtt Ísland – Nýtt Lýðveldi.
