RSS:
Publications
Comments

Skrípaleikur…..

Það leikur enginn vafi á því að IceSave samningurinn skuldsetji næstu kynslóðir meira en hollt þykir, en hvað mun það kosta okkur ef við skrifum ekki undir ?

Það eru fyrrverandi Ríkisstjórnir sem hafa komið okkur í þessa aðstöðu, með því að vera blind gagnvart spillingunni og svikamillunni sem átti sér stað hérna. Meðlimir fyrrverandi Ríkisstjórna, reyna núna að telja okkur trú um það að skuldirnar sem leggjast á okkur séu núverandi Ríkisstjórn að “kenna”. Hm;

Ætlum við að láta þessa fyrrverandi, vanhæfu stjórnmálamenn komast upp með þetta. Ætlum við að gera þeim leikinn léttann með því að láta þessa menn / konur leiða okkur eins og sauði og segja okkur hvernig við eigum að hugsa, hvaða skoðanir við eigum að hafa, án þess að malda í móinn ?

Þeir sem vilja ekki að við skrifum undir IceSave vilja telja okkur trú um að það hangi saman við ESB aðildarumsóknina. Er það aðalástæða þeirra ? Meina þeir að vegna þessa eigi ekki að skrifa undir ?

Ef við skrifum ekki undir IceSave þá veit ég ekki hverjar afleiðingarnar verða; hvað með eldsneyti fyrir flugvélar, hvað með olíu fyrir skipin og hvað með meðöl ? Hræðsluáróður ? Kannski og kannski er ekkert að óttast, en ég geri það samt.

Ég held að það sé nokkuð víst að ESB muni ekki hætta aðildarviðræðum, aftur á móti er aðildarríkjum frjálst að túlka það, eins og þeim best hentar, ef við skrifum ekki undir og síðan koma þeir fram við okkur samkvæmt því.

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

11 Comments to Skrípaleikur…..

  1. Hákon Jóhannesson's Gravatar Hákon Jóhannesson
    3. desember 2009 at 21.10 | Permalink

    Kjarni málsins er vanhæfi þeirra sem eru og hafa verið við stjórn-völinn hér síðustu árin. Það er fullkomin samstaða í 4-flokknum um að færa óreiðuskuldir fjárglæframananna á börnin okkar. Bendi hér á grein Baldurs:
    http://www.baldurmcqueen.com/index.php/2009/100-fylgni-vio-Icesave-samninga.html

    Andri Geir bloggari fullyrti í morgun að landið væri stjórnlaust !

    Ég sagði í m.a. í því samhengi: Virk stjórnun verður ekki til af sjálfu sér. Til þess að stjórna heilu landi þarf fókusinn að vera á réttum þáttum. M.a. hag landsmanna, ekki hag fárra útvaldra, eða sérhagsmunahópa.

    Sem fyrr eru kosnir fulltrúar 4-flokksins strengjabrúður óreiðumanna og því er allt í kaldakoli. Jónas bendir líka á stöðuna eins og hún er núna. Hér: http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=12710

    Þetta ber allt að “sama brunni”.

    Kveðja Hákon

  2. gudny's Gravatar gudny
    3. desember 2009 at 21.11 | Permalink

    Straight to the point.
    Nákvæmlega eins og ég sé þetta.

  3. Elsa Eiríksdóttir's Gravatar Elsa Eiríksdóttir
    4. desember 2009 at 1.02 | Permalink

    Sæl Lilja Við getum ekki kennt einum flokki meira en öðrum. Allir þessir flokkar,fjármálaeftirlitið, bankar, útrásarvíkinga sem allir vita hverjir eru, ásamt okkur hinum á Íslandi eigum þátt í þessu hruni. Það sem þarf að gera núna er að semja án þess að færa okkar auðlindir til annarra þjóða á silfurfati. Við verðum líka að fá aðrar þjóðir til að skilja að við erum ekki milljónaþjóð heldur aðeins rúmlega 300.000 og við getum ALDREI borgað allt. Hvar er? ég spyr náungakærleikurinn hjá öðrum þjóðum gagnvart Íslandi? Hvað hefðum við gert ef aðrar þjóðir hefðu lent í þessu? Þetta er bara byrjunin á hruninu, aðrar evrópuþjóðir standa illa og einnig U.S.A. en þeir eru stærri og geta leyft sér að vera með buxurnar á hælunum. Það vantar gegnsæi og heiðarleika hjá Alþingismönnum okkar í dag. Hver er okkar staða? Er ekki komin tími til að upplýsa okkur um hvernig staðan er. Þetta leynimakk er óviðunandi hjá fólkinu sem var kosið á þing af almenningi til að vinna fyrir okkur. Og ég segi það enn og aftur ef þau eru ekki starfi sínu vaxin, þá eiga þau að taka pokann sinn og yfirgefa brúnna. Að geta viðurkennt að þú ráðir ekki við starfið þitt sem almenningur kaus þig til er ekki uppgjöf, þú ert þá heiðarlegur þingmaður.
    Kær kveðja frá íslendingi sem er ekki sama hvernig þingið vinnur.

  4. gudny's Gravatar gudny
    4. desember 2009 at 1.25 | Permalink

    eee víst er einn flokkur sem ber meiri ábyrgð en aðrir.
    Hvers vegna?
    Þeir hafa stjórnað landinu… sjáum nú til… ALLTAF.
    Auk þess hafa þeir stjórnað hér atvinnulífinu og lagt þær (ó)reglur sem eru grunnurinn að vandanum.
    Þeir gáfu bankana til heimskra vina sinna
    Þeir iðrast einskiss og vilja bara fá sín völd aftur svo þeir geti haldið áfram að sukka með vinum sínum.
    Það sjá þetta allir sem vilja sjá.

    Og með náungakærleik… jú jesú sagði eitthvað um að bjóða hinn vangann en í réttarsamfélagi eru glæpamenn samt látnir borga eins mikið og þeir mögulega geta af því sem þeir hafa skemmt eða stolið.
    Og því miður, því miður þá tók íslenska ríkið ábyrgð á glæpum bankamanna sinna.

  5. Sævar Ari Finnbogason's Gravatar Sævar Ari Finnbogason
    12. desember 2009 at 1.02 | Permalink

    Var að spá í hausnum á síðunnu hjá þér.
    Hversvegna ertu ekki með „Liberté, égalité, fraternité“ á Íslensku auðvitað ;)

    hefur þú það annars ekki gott?

  6. Jón Jósef Bjarnason's Gravatar Jón Jósef Bjarnason
    20. desember 2009 at 3.45 | Permalink

    Kaupmenn víða þurfa að kaupa sér tryggingu fyrir því að glæpamenn rústi ekki búð þeirra, þetta gerist jafnvel á Íslandi.
    Icesave er samskonar mál þar sem þjóðin er kaupmaðurinn og ríkisvaldið glæpahundurinn.

    Það sem gerist ef við skrifum ekki undir er einfallt, þá gildir engin ríkisábyrgð, enda gildir hún ekki nema Bretar og Hollendingar samþykkja fyrirvarana. Við getum borið höfuðið hátt og skömmumst okkar minna fyrir stjónvöldum. “alþjóðasamfélagið” mun ekki líta á þessa þjóð sem gungur.
    Meiri skuldsetning ríkisins kemur ekki til mála og hvað það varðar skiptir svartsýnis rausið í gungunum akkurat engu máli.

  7. Kristján Hauksson's Gravatar Kristján Hauksson
    20. desember 2009 at 5.17 | Permalink

    Mér finnst þú Jón Jósef, skauta ansi létt yfir það sem gerist ef við skrifum ekki undir Icesave samkomulagið. Bretar hafa hingað til beitt áhrifum sínum í ASG til þess að þvinga Íslendinga til að fallast á ábyrgð ríkissjóðs á innistæðusjóðnum. Eru ekki miklar líkur á því að þeir haldi því áfram en nú í gegnum ESB? Ekki með því að neita Íslandi um aðild að bandalaginu heldur með því að krefjast þess að Ísland standi við samninginn um EES. Þá hef ég í huga þá grein samkomulagsins sem fjallar um frjálsa fjármagnsflutninga milli aðildarlanda. Mér finnst mjög líklegt að fram komi tilkynning frá ESB þess efnis, að nú fái Ísland eina viku eða tvær til þess að afnema gjaldeyrishöft, en sé það ekki gert verið settur 100% tollur á allan útflutning Íslands til ESB.

    Þetta hefði hrikalegar afleiðingar fyrir efnahag landsins og má auðveldlega færa rök fyrir því að það yrði margfalt dýrara en að skrifa undir Icesave samkomulagið. Ég minni á að 60% af útflutningstekjum landsins koma frá ESB löndum. Hún er ekki einföld sú atburðarás sem færi í gang heldur mjög flókin og ég held að enginn geti séð fyrir allar afleiðingarnar.

  8. 20. desember 2009 at 8.38 | Permalink

    Kristján, ertu hræddur um að efnahagskerfið á Íslandi fari í rúst ?
    Hvar heldur þú að það sé núna og hvert heldur þú að það stefni ?
    Ég efa að við getum borgað okkar skuldir á Icesave og að við eigum að borga Icesave til þess að fá lán er bara klár heimska eða ráðabrugg manna sem vilja ná því sem þeir geta persónulega út úr endanlegu hruni.

    Eg ég skulda þér 100 kall og þú segir mig skulda þér 200 kall og ég neyta að borga 100 kallinn sem þú lýgur upp á mig, ætlar þú þá að grípa til aðgerða sem valda því að ég borgi þér ekki 100 kallinn sem ég viðurkenni ?

    Þessi röksemdafærsla er algerlega út í hött, ESB tapar á því að henda okkur úr ur EES, og þetta eru ekki nægar forsendur til þess, þeir vilja þvert á móti halda okkur góðum þeirra hagsmunir liggja þar en þeir stjórmála- og embættismenn sem migið hafa í brækurnar í gunguhætti sínum hefðu mátt fá eitthvað af hugsandi fólki með sér í samningaviðræður.

    Við eigum losa okkur við gungurnar og standa í lappirnar.

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin