Kæru vinir,
Ég óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og þakka fyrir mig. Það er ekki leitt að eiga góða vini og sýndi það sig á afmælinu mínu núna í desember þar sem þið mættuð og spilltuð mér !
Gleðileg jól
Til ykkar sem eruð á móti IceSave
Til ykkar sem telja að við þurfum að gangast við ábyrgð fyrir IceSave
Til ykkar sem viljið AGS burt
Til ykkar sem teljið að AGS sé til góðs
Til ykkar sem viljið Nýtt Ísland, Nýtt Lýðveldi
Þetta ár hefur ekki verið neinu öðru líkt og sjaldan hefur tilbreytnin verið eins stórbrotin. Ég hef hitt alveg frábært fólk sem ætti allt að vera skráð hér, en til þess að þetta verði ekki of langt ætla ég að nefna Heiðu B. og Gunna Sig.
Nú árið er að líða og lítið hefur breyst frá því á jólunum í fyrra. Líkt og þá sofna ég með hugann að vandamálum Íslands og vakna með hugann að sömu vandamálum. Borgarahreyfingin hefur litlu getað breytt, en það er aldrei að vita nema hið nýja ár beri í skauti sér nýja tíma og nýja sýn.
Ísland er, þrátt fyrir hræðilega tíma, eitt af bestu stöðunum í heimi til þess að ala upp börn, þó svo að mín börn hafi valið að snúa til Frakklands þar sem kreppan lætur ekki finna eins mikið fyrir sér.
Þegar maður hefur búið lengi erlendis finnur maður enn frekar fyrir því hve nálægðin skiptir miklu máli. Það er yfirleitt ekki langt að sækja til vina og vandamanna þar sem hægt er að finna fyrir hlýju og ást, og ekki oft sem við finnum fyrir einsemd. Við megum þó ekki líta fram hjá því að með fátækt getur fólk svigið frá vinum og vandamönnum og þurfum við, sem getum, að vera sérstaklega á varðbergi.
Gleymum engum, verum saman og berjumst eins og þær hetjur sem hafa byggt landið okkar í yfir 1000 ár. Sýnum okkur sjálfum og umheiminum að við séum þess verðug að fá hjálp á þessum erfiðu tímum.

Gleðileg jól sömuleiðis vinkona. Hlakka til að sjá þig á nýju ári.