Nú er bara að bíða og sjá hvað setur varðandi IceSave í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu (ef hún verður). Íslendingar hafa sýnt að þeir geti, ef þeir vilji, fengið sitt fram.
Ég skora því á alla landsmenn að nota þessa orku sem farið hefur í IceSave deiluna og fá kvótann okkar tilbaka í okkar hendur. Þar eru verðmæti sem ættu að nýtast þjóðinni.
Svona nú, stöndum í lappirnar og endurheimtum kvótann.

Mikið er gaman að vera íslendingur í dag og heyra í fólki í kringum sig tala um að það hafi ekki áður staðið upp fyrir forseta vorum ólafi Ragnari Grímsyni en muni gera það eftir að hann neitaði að skrifa undir. Kannski þurfum við að taka kvótann næst! Alltof margir eignuðust of mikið án þess að vinna fyrir því. Kær kveðja Elsa
p.s. Ég hlakka til að sjá myndina 20.janúar í Háskólabíói