RSS:
Publications
Comments

Íslenskur Aðall ?

Ég fór á tónleika í gærkveldi og heyrði þar dásamlega tónlist, Vespers eftir Rachmaninoff, sungna af Vox Academica kórnum. Ég elska að hlusta á kirkjutónlist, hvað þá svona vel sungna Rússneska rétttrúarkirkju tóna.

Eitt leiðir yfirleitt af öðru, og þegar ég loka augunum og læt hugann reika með röddunum, verður mér hugsað til riddara fyrri tíma, knékrjúpandi fyrir konungi, fáandi blessun og hækkun í tign. Fyrir unnin stríð, háð fyrir hönd konungs og kirkju.

Mér var þá hugsað til íslenska aðalsins, og reyndi að muna hvenær þeir hefðu unnið sína sigra, ekki fyrir konung og kirkju heldur fyrir almenning. Kafla 6 lauk og hugsanir mínar verða skírar.

Bíddu aðeins. Það er enginn aðall á Íslandi. En, það er fólk sem hagar sér eins og þeir eigi rétt á allskonar fyrirgreiðslum, fyrirgefningum sem enginn skilur upphaf útskýringa á, nema þeir sjálfir og þá sennilega samkvæmt einhverjum reglum sem við almenningur vitum ekkert um.

Bara ekkert.

Þetta leiddi síðan huga minn að slagorði Guðlaugs nokkurs Þórs sem hann notaði í kosningarbaráttunni sinni vorið 2009 : Stétt með Stétt.

Spurning :

Er aðall á Íslandi ?

Ef svo er, er orðið tímabært að almenningur fái vitneskju um það, þótt ekki væri nema til þess að vita hvers vegna það á að kyngja því sem þeim er boðið upp á af þessum falda aðal. Aðall sem ekki virðist gera sér grein fyrir því að reglurnar hafa breyst á síðustu tveim öldum og það þarf yfirleitt að fara nokkuð langt til þess að finna jafn veruleikafirrt fólk og vini okkar, íslenska aðalinn.

Lýðræði ríkir í hinum vestræna heimi, lýðræði sem inniber að “allir menn fæðast jafnir fyrir lögum”.

Er ekki orðið tímabært að upplýsa þennan íslenska aðal um það hvernig nútíma samfélög vinna saman í þágu fjöldans, ekki í þágu einstaka útvaldra ?

Getum við gert það á nútíma máta ? Þá á ég við, án þess að nota frönsku aðferðina, frekar notast við nútímalega nýja og sennilega nokkuð góða aðferð :

Leyfum íslensku þjóðinni að skrifa sína eigin stjórnarskrá, með skírum leikreglum, þar sem ekki mun liggja á milli mála hvernig samfélagi við viljum búa í.

Svona nú, komum okkur saman um það, í þágu okkar og komandi kynslóða. Mætum á Austurvöll. Hvenær ?

Þegar þið eruð tilbúin að látið í ykkur heyra.

Nýtt Lýðveldi, Nýtt Ísland !

Share and Enjoy:
  • Print
  • Digg
  • Facebook
  • Google Bookmarks
  • Blogplay

1 Comment to Íslenskur Aðall ?

  1. 25. apríl 2010 at 11.31 | Permalink

    Ég er til. Ég vill nýtt lýðveldi, nýja stjórnarskrá. Réttlátara samfélag.

Leave a Reply

You can use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <iframe width="" height="" frameborder="" src="" scrolling="" style=""> <object width="" height=""> <param name="" value=""> <embed src="" type="" wmode="" width="" height="" name="" bgcolor="" flashVars="" allowFullScreen="" allowScriptAccess="" seamlesstabbing="" swLiveConnect="" pluginspage=""> <script type="" src="" charset=""> <div class="" id="" style=""> <style type="">

Spam Protection by WP-SpamFree Plugin