RSS:
Publications
Comments

Author Archives: Lilja

Ég skil ekki alveg, en við gerum víst eins og við viljum

Vinir og vandamenn sem kusu FLokkinn segja þá einfaldlega með besta fólkið fyrir bæjarfélögin sín.
Vinir og vandamenn, kjörtímabilið er einungis 4 ár, og hér misstu þið frábært tækifæri til þess að sína löngun ykkar fyrir breytingar.
Útkoman er því sú, eins og Hanna Birna og Bjarni hafa bent á, að þeir eru bara í fínum málum [...]

Íslenskur Aðall ?

Ég fór á tónleika í gærkveldi og heyrði þar dásamlega tónlist, Vespers eftir Rachmaninoff, sungna af Vox Academica kórnum. Ég elska að hlusta á kirkjutónlist, hvað þá svona vel sungna Rússneska rétttrúarkirkju tóna.
Eitt leiðir yfirleitt af öðru, og þegar ég loka augunum og læt hugann reika með röddunum, verður mér hugsað til riddara fyrri tíma, [...]

Næst á dagskrá : Kvótinn

Nú er bara að bíða og sjá hvað setur varðandi IceSave í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu (ef hún verður). Íslendingar hafa sýnt að þeir geti, ef þeir vilji, fengið sitt fram.
Ég skora því á alla landsmenn að nota þessa orku sem farið hefur í IceSave deiluna og fá kvótann okkar tilbaka í okkar hendur. Þar eru verðmæti [...]

Gleðileg Jól

Kæru vinir,
Ég óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og þakka fyrir mig. Það er ekki leitt að eiga góða vini og sýndi það sig á afmælinu mínu núna í desember þar sem þið mættuð og spilltuð mér !
Gleðileg jól
Til ykkar sem eruð á móti IceSave
Til ykkar sem telja að við þurfum að gangast við ábyrgð fyrir [...]

Skrípaleikur…..

Það leikur enginn vafi á því að IceSave samningurinn skuldsetji næstu kynslóðir meira en hollt þykir, en hvað mun það kosta okkur ef við skrifum ekki undir ?
Það eru fyrrverandi Ríkisstjórnir sem hafa komið okkur í þessa aðstöðu, með því að vera blind gagnvart spillingunni og svikamillunni sem átti sér stað hérna. Meðlimir fyrrverandi Ríkisstjórna, [...]

Silfrið og umsátrið

Ég hlakka til að lesa bókina og hef sérstaklega áhuga á hugmyndum Styrmis um lýðræði og ég tel, eftir að hafa hlustað á höfundinn í þætti Egils, að um sé að ræða, heiðarlega lýsingu á því sem verið hefur.  Því ber að fagna og þakka ég höfundi fyrir.
En samt, jæja já. Voðalega hafa allir verið [...]

Hættum að stinga höfðinu í sandinn

Veðrið var eins og í draumi og útsýnið eins og það best gerist á fallegum degi. Snævi þakin fjöllin heilsuðu mér þar sem ég sat og horfði út um gluggann í flugvélinni, og ég varð glöð. Glöð að vera Íslendingur, glöð að vera ein af nokkur hundruð þúsund manna þjóð.
Þegar við nálguðumst flugvöllinn blasti við [...]

Hættum að vera kurteis !

Mig langar til þess að bölva.
Þetta segir Ásta Ragnheiður : „Þetta er í samræmi við lýðræðishefðir í nágrannalöndum okkar. Þá er það þannig að þegar þingin láta vinna fyrir sig skýrslur eins og Rannsóknarnefndin er að vinna fyrir Alþingi að þá skilar nefndin þinginu skýrslu og við því tekur þingnefnd. En af því að við [...]

Að þeir skuli voga sér !

Frá Sigurði Hrelli.
Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og miklum vonbrigðum með þá fyrirætlun forsætisnefndar Alþingis að ætla níu manna pólitískt skipaðri þingnefnd að ákveða einróma hvernig unnið verður úr niðurstöðum rannsóknarnefndar um bankahrunið.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að fela alþingismönnum sjálfum það vandasama hlutverk að meta ábyrgð flokksfélaga sinna, t.d. hvort ráðherrar í fyrri [...]

Annar heimur …

Í gær komst ég að því að til er annað líf en Ísland eftir hrun.
Ég fór með 13 ára dóttur minni í Miss Junior France keppni sem hún hafði skráð sig í upp á eigin spýtur, viss um að vera fallegust. Heilinn minn segir nei við fegurðarkeppnum almennt og þá sérstaklega fyrir ung börn og [...]