Vígvöllurinn - Nýtt Lýðveldi » Stjórnmál

Silfrið og umsátrið
Ég hlakka til að lesa bókina og hef sérstaklega áhuga á hugmyndum Styrmis um lýðræði og ég tel, eftir að hafa hlustað á höfundinn í þætti Egils, að um sé að ræða, heiðarlega lýsingu á því sem verið hefur.  Því ber að fagna og þakka ég höfundi fyrir.

En samt, jæja já. Voðalega hafa allir verið vondir við okkur.

Það var ekkert umsátur, hverjum er ekki sama um það hvort bankarnir okkar stækki, svo fremi sem ekki er um glæpastarfsemi að ræða ? Vandamáli okkar Íslendinga er sú, að þeir sem voru á vakt, voru blindir og heyrnarlausir.

Þeir sáu ekki, eða létu sem þeir sæju ekki, hvað var um að vera. Smá dæmisaga :

Jón á peninga í Þýskalandi og vill senda þá til Jómfrúareyja. Ef hann gerir það frá Þýskalandi tilkynnir bankinn hans Trackfin og skattinum frá því. Jón verður settur undir smásjá og allt það sem hann gerir og hefur gert er rannsakað ofan í kjölinn.

Hvað gerir Jón í Þýskalandi ?

Jú, hann sendir peningana til Íslands, landið er jú í EES, og bankinn hefur enga ástæðu til þess að senda út viðvörunartilkynningu til Trackfin og skattayfirvalda. Héðan sendir hann svo peningana sína þangað sem hann vill, og öllum er sama.

Annað dæmi.

Pétur á heima í Rússlandi. Hann vill kaupa sér hús á Spáni. Ef hann sendir peningana beint til Spánar mun bankinn sem tekur við peningunum þurfa tryggingu fyrir því að þessir peningar séu hreinir, þ.e.a.s. að til þeirra hafi verið unnið á heiðarlegan hátt. Pétur getur engan veginn sannað það.

Hvað gerir Pétur í Rússlandi ?

Jú, hann sendir peningana til Íslands, þar sem enginn sér ástæðu til þess að efast um heiðarlega tilkomu peninganna, og sendir peningana til Spánar héðan.

Þessi dæmi eru einungis dæmi og það má vel vera að þetta hafi aldrei gerst.

Hitt er annað mál að eftirlitsstofnanir í Evrópu hafa haft nokkrar áhyggjur af þessu og reyndu að fá íslensk yfirvöld til þess að koma í veg fyrir þetta. En til einskis.

Er einhver hissa á framvindu mála eftir hrunið ?

Annars er ég sammála Styrmi um það að aðildarumsókn okkar að Evrópusambandinu og samningarviðræður þar að lútandi snúast um auðlindir okkar. Sennilega endurheimtum við, sem þjóð, auðlindirnar í okkar úr höndum þeirra sem hafa fengið þær gefins. Ég er líka sammála Styrmi að þetta byrjaði allt með kvótakerfinu og framsali kvótans.

Varanlegar undanþágur; það er ekki víst að við þurfum á þeim að halda ef samningarnir eru góðir hvað varðar auðlindirnar. Það væri nær að tala um “varanlegar undantekningar”.

Ég er svo hjartanlega sammála mörgu af því sem Jón Baldvin segir og virði það að hann taki á sig ábyrgð fyrir lélega stjórnarandstöðu fyrri tíma, sem Styrmir bendir svo réttilega á.

Stjórnlagaþing fólksins núna. Nýtt Ísland – Nýtt Lýðveldi.

Hættum að stinga höfðinu í sandinn
Veðrið var eins og í draumi og útsýnið eins og það best gerist á fallegum degi. Snævi þakin fjöllin heilsuðu mér þar sem ég sat og horfði út um gluggann í flugvélinni, og ég varð glöð. Glöð að vera Íslendingur, glöð að vera ein af nokkur hundruð þúsund manna þjóð.

Þegar við nálguðumst flugvöllinn blasti við reykurinn frá Bláa lóninu og það leiddi hug minn að orku og þaðan til útrásar”aumingja”.

Hvernig datt einhverjum í hug að verða milljarðamæringur á þessu litla landi, ekki bara einum manni / konu, heldur nokkrum tugum (og kannski voru það nokkur hundruð sem létu sig dreyma um það).

Hvaðan fengu þeir peningana ?

Jú, þeir stálu þeim. Ekki bara frá okkur Íslendingum, heldur fóru þeir í hina margumtöluðu útrás, þóttust vera snillingar, og rændu og rupluðu alls staðar þar sem þeir drupu niður fæti.

Í dag eigum við að borga, við 313.000 sálir, sem treystum Ríkisstjórn og embættismönnum eftirlitsstofnana til þess að vinna vinnuna sína.

Við þurfum að borga vegna þess :

að við viljum alltaf trúa því besta upp á nágrannann.

að við viljum ekki trúa því að bræður okkar og systur geti verið óheiðarleg.

að mágkonur, mágar, svilar og vinir geta ekki verið þjófar !

Kæru landsmenn, vaknið.

Er ekki kominn tími til þess að við förum að sýna óþolinmæði okkar vegna aðgerðarleysis stjórnvalda, eða eigum við að treysta því að þeir séu færir um að sækja til saka bræður sínar og systur, mágkonur og mága, svila og vini ?

Click here to view the embedded video.

Íslenskir ráðherrar virðast ekki skilja hvað þeir hafa mikið vald. Þeir geta, hvenær sem er, tekið fram fyrir hendur dómstóla og hafist handa.

Þeirra skylda er að vernda almenning  sem býr á landinu.

Þeirra skylda er að sýna almenningi þá virðingu sem þeir hafa hlotið, með því að taka völdin sem þeir eiga en vita ekki af.

Kæra ríkisstjórn, farið að vinna vinnuna ykkar, hættið að vera hrædd/ir og sýnið almenningi að þið séuð þess verðug að stjórna landinu.

ANNARS VERÐUR ALVÖRU BYLTING.

Að þeir skuli voga sér !
Frá Sigurði Hrelli.

Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og miklum vonbrigðum með þá fyrirætlun forsætisnefndar Alþingis að ætla níu manna pólitískt skipaðri þingnefnd að ákveða einróma hvernig unnið verður úr niðurstöðum rannsóknarnefndar um bankahrunið.

Það kann ekki góðri lukku að stýra að fela alþingismönnum sjálfum það vandasama hlutverk að meta ábyrgð flokksfélaga sinna, t.d. hvort ráðherrar í fyrri ríkisstjórnum hafi með aðgerðum sínum eða andvaraleysi gerst brotlegir við lög. Ólíklegt verður að teljast að samhljóða niðurstaða nefndarinnar skili réttlátri málsmeðferð.

Samkvæmt reglum réttarríkisins er enginn hafinn yfir lög, hvorki ríkisstjórnir, ráðherrar, Alþingi, alþingismenn, stofnanir stjórnsýslunnar né dómararnir sjálfir. 65. grein stjórnarskrár lýðveldisins segir m.a. að allir skuli vera jafnir fyrir lögum. Sú hugmynd að láta alþingismenn sjálfa skera úr um ráðherraábyrgð er engu skárri en að fela Viðskiptaráði að skera úr um ábyrgð fjármálastofnana eða forstjóra þeirra.

Þess vegna verður það að vera hafið yfir allan vafa að allir atburðir sem falla undir refsiverða háttsemi berist frá rannsóknarnefndinni beint til embættis sérstaks saksóknara án tilstuðlan pólitískra milligöngumanna.

Með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða. Vill Borgarahreyfingin beina þeim eindregnu tilmælum til alþingismanna og allra sem rannsókninni tengjast að virða kröfur þjóðarinnar um heiðarleika, réttlæti, virðingu, jafnrétti, ábyrgð og annað sem nýafstaðinn þjóðfundur leiddi í ljós.

Landið er á hvolfi !
Síðustu vikur hefur mér liðið afskaplega illa. Það líður ekki sá dagur að maður fái ekki að lesa fréttir af subbulegu athæfi þeirra sem taldir voru stólpar samfélagsins.

Nú rúmu ári eftir hrun sjáum við enn ekki að verið sé að tukta neinn til þó við fáum fréttir af einstaka húsleitum og yfirheyrslum. Það er bara ekki nóg.

Við þurfum að sjá aðgerðir, við þurfum að finna að Ríkisstjórnin og Alþingismenn standi með okkur, fólkinu sem býr hér og borgar skatta, í stað þess að hafa þessa óþægilegu tilfinningu að verið sé að passa upp á ódáðamennina.

Ég er farin að halda að tíminn eigi að vinna fyrir þá, að allt sé gert til þess að glæpir þeirra fyrnist og hægt verði að fela sig bak við þá afsökun þegar loksins verði búið að sanna eitthvað upp á þá. Við getum ekki liðið það.

Ég krefst þess að Ríkisstjórnin fari að vinna fyrir OKKUR, síni okkur hvað þau eru að gera, áður en við gefumst upp.

Ríkisstjórnin á að koma í veg fyrir glæpi þeirra sem taka bíla og hús af þeim sem geta ekki lengur borgað af OKUR lánum. Það er skylda Ríkisstjórnarinnar að vernda íbúa landsins, þeir gætu byrjað á því að endurskoða reglugerðir lánastofnana.

Takk fyrir.

Góður dagur
Eins og Heiða vinkona sagði þá var þetta góður dagur. Sigrún Davíðsdóttir var með fyrirlestur hjá Sagnfræðingafélagi Íslands í Þjóðminjasafninu sem var þétt setinn og vægast sagt frábær.

Það sem Sigrún segir er í sjálfu sér blákaldur sannleikur :

Þeir sem skulda mest, óttast minnst bankana.

Þeir sem skulda “bara” húsin sín hræðast mest bankana.

Venjulegir fyrirtækjaeigendur með venjulegan (eðlilegan) hagnað spurðu sig hvað þeir væru að gera rangt.

Stjórnendur íslensku fyrirtækjanna erlendis (lesa : útrásarvíkingar) fóru ekki fram með nægilegri fyrirhyggju.

svona mætti lengi telja, en allt það sem hún sagði og benti á, fór, held ég, beint inn í hjartað okkar.

Spurningin í dag er því : Hvað skal gera ? Er einhver leið til þess að fyrirbyggja að hið “Nýja Ísland” verði eins og það gamla ? Er það ekki það sem við viljum, byrja upp á nýtt og sýna okkur og öðrum sem nenna að fylgjast með því sem er að gerast hérna að við getum rekið Ríkið með öðrum hætti ?

Hvernig gerum við það ? Það er stóra spurningin sem við þurfum öll að leitast við að svara. Mín leið er að gera kvikmynd um það sem hefði ekki átt að vera, með þá von að hægt sé að læra af mistökum síðustu áratuga með því að forðast gömlu aðferðafræðina, nefnilega Spillingu. Sú spilling hefur birst í ýmsum myndum en að mínu mati er eitt það alvarlegasta kunningja, vina og fjölskylduráðningar þeirra sem hafa haft tækifæri til þess að ráða fólk í mikilvæg störf innan stjórnsýslunnar.

Vinir og kunningjar sem ráðamenn okkar treystu til þess að vinna með hag okkar í huga, en sem, því miður, þó svo að vilji þeirra hafi sennilega verið sá að vinna þannig, höfðu oft ekki kunnáttuna til þess.

Hér er stikla myndarinnar “Maybe I Should Have” sem var sýnd í Kastljósinu í dag. Hressileg og lofar góðu með Gunna Sig sem leitar að svörum.

Click here to view the embedded video.

Til Hamingju
Það er dásamlegt að sjá að heimilislausir bloggarar geta nú komið saman og látið sér líða vel hér á Bloggheimum.

Vil minna á fund Hagsmunasamtaka Heimilanna í Iðnó í kvöld og krefst þess að :

Ríkisstjórn Íslands komi til móts við það fólk sem  á það á hættu að vera borið út af heimilum sínum á næstu mánuðum og að neyðarlög verði sett um að óheimilt verði með öllu að fólk sé borið út frá 15. september til 15. apríl, ekki bara 2009 – 2010, heldur ætti þetta að verða að reglu.

Ríkisstjórnin ætti síðan að nota næstu sjö mánuði til þess að finna raunhæfar lausnir til þess að koma til móts við þá sem ekki geta með nokkru móti staðið undir skuldum sínum.