des
4
Sælkeraönd með púrtvíns gráðostasósu, grillaðar sætar kartöflur með þurrkuðum trönuberjum og pekan hnetum,grænt salat.
desember 4, 2009 | | Ein ummæli

Okkur hjónunum áskotnaðist 2 franskar endur fyrir lítinn pening og ég lagðist í rannsóknarvinnu þar sem ég hef aldrei eldað önd áður. Við ákváðum að snæða aðra þeirra strax þrátt fyrir að ekkert væri tilefnið. Ég breytti uppskriftinni, að sjálfsögðu
þeir sem elska Dijon sinnep geta notað það en ég notaði bara ódýrt sinnep úr Krónunni sem mér finnst nú bara alveg æði og það heitir Polsemaker Bergbys sennep- sterk polsesennep etter god gammel oppskrift. Sterk og grov. Öndin var mjúk og safarík, bragðið var alveg framúrskarandi gott og kartaflan og salatið kórónuðu upplifunina. Þar sem ég bjóst ekkert við miklu kom þetta mér þess meira á óvart, stunurnar sem komu upp úr okkur hafa örugglega sannfært leigjendurna okkar um að athafnir okkar kæmu mat ekkert við
Sælkeraönd f.4
7 kílóa önd, þiðin (háls,hjarta og innyfli tekin með)
1 meðal laukur skorin í fernt
1 gulrót grófsöxuð
1 sellerístilkur grófsaxaður
4 1/2 bolli vatn
Skerið vængina af öndinni og setjið innyflin öll með vængjunum í stóran pott.Bætið grænmetinu og vatninu út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í klukkutíma. Sigtið soðið frá í minni pott og látið það sjóða í c.15 mínútur eða þar til það hefur minnkað niður í c.1 bolla.
2 msk smjör
8 stórir hvítlaukgeirar,sneiddir
1 bolli púrtvín
1 msk hveiti
1/3 gráðostur
2 msk kornótt sinnep (Bergbys sterk polsesinnep í gulum brúsa)
andakraftur ef þarf
Bræðið 1 msk af smjöri í potti yfir meðalhita og bætið hvítlauk við og steikið þar til hann er gylltur,um 2 mín.Bætið púrtvíni út í og sjóðið í 5 mínútur.Bætið soðinu út í og sjóðið þar til það minnkar um helming, um 8 mínútur.Blandið restinni af smjörinu við hveitið í lítilli skál þar til úr verður smjörbolla.Hrærið út í sósuna og sjóðið þar til þykknar,1 mín.Bætið gráðosti og sinnepi út í, blandið vel saman og smakkið til. Ef krafturinn í soðinu er of máttlaus þá má bæta andakrafti út í. Bragðbætið með pipar og salti.(ef þið notið andakraft þá þarf nú sennilega ekki salt)
Anda marinering.
1/3 bolli sæt soja sósa
3 msk sinnep Bergbys aftur
4 hvítlauksrif,pressuð
1 tsk salt
1tsk malaður svartur pipar
1 tsk timian
Hitið ofninn í 205 gráður. Skerið alla auka fitu ef hún er af öndinni. Notið gaffal til að stinga í öndina á nokkrum stöðum. Blandið sinnepi og hvítlaukmauki saman í skál. Blandið kryddi saman í aðra skál. Penslið sojasósunni yfir alla öndina, næst fer sinnepshvítlauksmaukið yfir og að síðustu dreifið þið kryddinu yfir öndina og inni í hana. Setjið öndina í ofnpott og látið bringuna snúa upp. Setjið pottinn í ofninn án loks og eldið í 45 mínútur. Snúið þá öndinni við og eldið hana í 30 mínútur.Snúið henni aftur við og eldið áfram í c.15 mínútur í viðbót. Það sauð ekki svo mikið niður hjá mér soðið fyrir sósuna svo ég notaði soð til að hella yfir öndina eftir fyrstu 45 mínúturnar og notaði svo það sem rann í ofnpottinn til að hella aftur yfir öndina nokkrum sinnum það sem eftir var eldunartímans.
Bakaðar sætar kartöflur fylltar með trönuberjum,perum og pekan hnetum. 4stk
4 sætar kartöflur, meðalstórar
1 bolli þurrkuð trönuber
4 msk smjör
2 þroskaðar en stífar perur,skrældar,steinhreinsaðar og skornar í 1.5sm teninga
1 bolli pekan hnetur grófsaxaðar
4 tsk ferskur engifer,skrældur og rifinn
4 tsk púðursykur
2 tsk+ 1 1/2 msk balsamik edik
1/2 tsk salt
Hitið ofninn í 200 gráður. Stingið nokkur göt á hverja kartöflu með gaffli og setjið á ofnplötu í ofninn.Bakið þar til kartöflurnar eru mjúkar að innan.Um klst. (þarna fer að sjálfsögðu eftir því hve stórar kartöflurnar eru, reynið að finna eintök sem eru svipað stórar og stórar bökunarkartöflur. Á meðan getið þið sett trönuberin í litla skál og hellt sjóðandi heitu vatni yfir,rétt nóg til að hylja þær.Látið þær mýkjast í vatninu í 5mínútur, sigtið svo vatnið frá. Bræðið 2 msk af smjöri í potti yfir meðalhita,bætið perunum út í og látið þær mýkjast í 4 mín.Bætið trönuberjunum, pekan hnetunum,engiferi og púðursykri út í og steikið í 1 mínútu. Blandið 2 tsk af balsamik og saltinu út í og hrærið vel saman. Þegar kartöflurnar hafa kólnað eilítið eftir að þær komu úr ofninum þá skerið þið 1/4 af þeim ofan frá,eins konar hatt og hendið honum frá. Notið skeið til að grafa mest af soðnu kartöflunni úr skelinni og setjið í skál. Passið að kartaflan sé eftir sem áður heilleg. Kryddið með salt og pipar og setjið 2 msk af bræddu smjöri og restinni af balsamik edikinu saman við kartöflumúsina. Setjið svo músina aftur í kartöflurnar og setjið trönuberja blöndu á hverja kartöflu.
Það er hægt að útbúa kartöflurnar allt að 4 tímum áður, setjið bara plast filmu yfir og látið bíða við stofuhita.Svo er hægt að hita þær upp í ofninum í 10-20 mínútur. Ég bakaði kartöflurnar fyrst og setti svo öndina inn. Með þessu bar ég fram einfalt blandað grænt salat.
nóv
26
Súkkulaðibita muffins
nóvember 26, 2009 | | Leave a Comment
Það góða við heimabakstur er að þú veist að það eru engin aukaefni sem þú þekkir ekki, engin rotvarnarefni sem halda kökunum ferskum í mánuð. Það er hreinlega ekkert girnilegt við að borða muffins úr búð en aftur á móti heimabakaðar muffins, það er allt annað mál. Þær lyfta sér vel og eru einar og sér dásamleg lítil súkkulaðikaka. Krakkar elska þær líka. Miðað við súkkulaðimagnið hvernig væri annað hægt.Það er svo fljótlegt að baka muffins, ég held að það sé með því fljótlegra sem hægt er að gera. Þegar vanir heimabakarar segja: hvað þetta tekur enga stund! Þá er nú yfirleitt ekkert að marka það, vaninn býr til fljótar hendur. En þetta er ekkert ýkt þegar kemur að muffins gerð. Engin þeytari, hrærivélar eða flóknar formúlur. Það besta er að það fer lítið fyrir þeim, það er hægt að stafla þeim,skella í box eða poka án mikillar fyrirhafnar. Ef muffins mótið er tekið með í sumarbústaðinn þá er þetta þægilegasti og fljótlegasti bakstur sem þú tekur þér fyrir hendur. Þær frystast líka vel. Þessi uppskrift dugar í 12 stk muffins form.

1 3/4 bolli hveiti
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
2 msk gæða kakó
3/4 bolli sykur
3/4 bolli suðusúkkulaði í bitum
1/4 bolli suðusúkkulaði í bitum til að setja ofan á
Blandið öllu saman í skál nema 1/4 bolla súkkulaðinu
1 bolli mjólk
3/4 bolli + 2msk grænmetisolía
1 egg
1 tsk vanilludropar
Hrærið blauta hráefninu saman í annarri skál. Blandið svo þurru og blautu saman. Munið að deigið á að vera kekkjótt. Setjið í muffins mót og setjið restina af súkkulaðinu yfir. Bakið við 205 gráður í 20 mínútur í miðjum ofni.
nóv
25
Fiskiréttur Señor Sanchez
nóvember 25, 2009 | | 2 ummæli
Þetta er algert gúmmulaði. Ljúffengur þorskur með salsa rjómaostasósu. Mjög fljótlegt og mjög gott.
Soðið bygg eða hrísgrjón
3 rauðar paprikur, skornar í ræmur
1 rauðlaukur, skorinn í bita
1 askja sveppir, skornir í fernt
700 gr þorskhnakkar
200 gr rjómaostur
1 dós Enriques hot salsa (fæst í krónunni er stærri dós en venjuleg salsa og ódýrari)
1 lítil ananasdós og safinn
1 bréf rifinn pizzaostur
Bygg sett í botninn á eldföstu móti. Paprikur,laukur og sveppir snöggsteikt á pönnu og helmingur settur yfir byggið. Skerið þorskhnakkana í bita og raðið ofan á. Setjið restina af grænmetinu yfir og svo ananasinn en haldið eftir safanum. Blandið rjómaosti,salsa og ananas safanum saman. Gott að mýkja rjómaostinn eilítið í örbylgjuofni fyrst. Blandið þessu vel saman og hellið síðan yfir. Setjið rifinn ost yfir allt saman og bakið í ofni í 30 mín við 200 gráður. Það verður að nota hot salsa sósu í þennan rétt.
nóv
15
Frábærar kleinur og lopapeysa
nóvember 15, 2009 | | Ein ummæli
Kleinur, lopapeysur, mjólk og gamaldags stell. Allt svo íslenskt og minnir mig á ömmu. Ég borða þær sjaldan en þær eru eitt uppáhalds bakkelsið mitt. Það tók mig nokkrar uppskriftir og mörg ár að læra að búa til kleinur sem ég var ánægð með. Takið með í reikninginn að ég bý til kleinur kannski annað hvert ár svo ég er ekki svona treg
. Ég byrjaði með aðra uppskrift, flatti deigið of þunnt, skar það of langt, svo úr urðu stökkar kexkleinur með olíubragði. En þessi uppskrift! Hún slær alltaf í gegn. Frábærar kleinur.
1.2 kg hveiti
250 gr sykur
1 tsk hjartarsalt
6 tsk lyftiduft kúfaðar
4 egg
1 peli rjómi
tæpl 5 dl mjólk+ súrmjólk
2 tsk kardimommudropar
1 dl olía
Þetta gerir c.80-90 kleinur
Allt sett í stóra skál og blandað vel saman, sett á hveitistráð borð og hnoðað þar til deigið verður þjált. Hafið hveiti til taks og bætið út í eftir þörfum. Flatt út og haft c.2-3 cm þykkt og skorið út með kleinuhníf.
Snúið í litlar klaufakleinur og geymið á hveitistráðum bökkum þar til þeir steypa sér í ánna.
Mér finnst alltaf eins og ég sé að senda þær í stríð. Hitið Kristjáns steikingarfeiti, já það verður að vera Kristjáns steikingarfeiti, þar til hún er vel heit og byrjið að steikja. Ég hita olíuna hægt þar til hún nær góðum hita og byrja þá að steikja, eftir nokkrar umferðir lækka ég kannski hitann um 1-2 í smástund og hækka svo aftur. Það skiptir máli að þær verði gullnar og ekki of dökkar. Það var eiginlega viðeigandi að ég hóf bakstur fyrir hádegi og veðrið var sneypulegt og úti var dimmt og ég vann við litla dagsbirtu framan af. Svo þegar steikingu var næstum lokið þá gægðist sólin upp yfir næsta hús og skein inn í eldhúsið hjá mér og lýsti upp kleinustaflana fyrir mig. Þar sem ég reyni alltaf að nota bara dagsbirtu þegar ég mynda mat/bakstur fannst mér þetta einstaklega ljóðrænt. Það var svo gaman að sjá þessar linu lufsur umbreytast í rómantískar gylltar kleinur. Ilmurinn einn og sér dugði mér næstum því. Ég greip myndavélina og fangaði sólargeislana áður en þeir hurfu og settist svo út í glugga með kleinu og kalda mjólk.
Verði ykkur að góðu!
nóv
11
Dásamleg ostakaka frá New York
nóvember 11, 2009 | | 3 ummæli
Ottó elskar ostakökur. Hann lætur allt annað bíða á veisluborðinu ef ostakaka er í boði. Hann fann þessa uppskriftá síðunni Cooking for engineers ,þar er allt skráð skref fyrir skref og engin uppskrift látin fara fyrr en hún hefur verið þrautreynd. Þetta er hreinræktuð ostakaka, hún er kremuð og mjúk og kennd við New York. Þetta er stór kaka svo ég mæli ekki með að þú bakir hana bara fyrir þig, ja ekki nema þú hafir lent í áfalli og þurfir nokkurra daga osta svallveislu til að jafna þig.
Ostakakan þarf tíma og alúð svo þú þarft að gefa þig allan í gerð hennar. Þetta er enginn skyndibiti. Lestu alla uppskriftina áður en þú hefst handa. Ostakakan verður flauelsmjúk upp í þér, sæt og rjómakennd og ég mæli með henni einni og sér eða með hindberjasósu sem mótvægi við sæta bragðið.
Botninn samanstendur af 110 gr graham kexi, 55 g af bræddu smjöri og 12 gr(1msk) af sykri. Merjið kexið í poka með hamri eða setjið í moulinex í nokkrar mínútur. Bræðið auka msk af smjöri til að smyrja botninn á 25 sm smelluformi.Blandið muldu kexinu við 55gr brædda smjörið og sykurinn svo það sé blautt og setjið í botninn . Þjappið mulningnum vel í botninn á forminu, það er hægt að nota sléttan botn á glasi eða skeið til að þjappa yfir svo það sléttist vel. Passið að ytri brún botnsins nái örlítið upp. Hitið ofninn í 160 gráður og bakið botninn í 12 mínútur. Látið formið kólna á grind og setjið smá brætt smjör (1/2 msk) meðfram ytri brún botnins.
Þá er komið að fyllingunni. Takið til 1.1 kg af rjómaosti, 1/8 tsk salt, 350 gr sykur,23 g hveiti,2 tsk sítrónusafa,1 tsk vanilludropa,120ml rjóma, 2 stórar eggjarauður (34gr), 6 stór heil egg.
Skerið rjómaostinn í bita og setjið í hrærivél, látið vélina vinna í hægum gír þar til osturinn mýkist, c.2-3 mínútur. Það gæti verið gott að setja helminginn fyrst og svo restina þar sem þetta er svo mikið. Þegar osturinn er orðinn mjúkur þá bætið þið við saltinu og 1/3 af sykrinum. Hrærið þar til sykurinn hefur samlagast vel og bætið öðrum þriðjung út í, notið sleikju til að renna meðfram skálinni að innan svo allt blandist vel saman. Setjið síðasta þriðjunginn út í og hveitinu í leiðinni. Hveitið kemur í veg yfir að yfirborð kökunnar bresti. Bætið svo sítrónusafanum og vanilludropunum út í. Hrærið. Notið sleikjuna til að losa meðfram innan í skálinni og bætið svo rjómanum út í. Osturinn ætti að vera mjög mjúkur núna. Bætið svo eggjarauðunum út í og blandið þar til það samlagast. Næst fara 3 heil egg og hrærið þar til þau eru alveg blönduð og að lokum síðustu 3 eggin. 
Blandan ætti að vera fölgulleit á lit og þunn þegar hér er komið við sögu. Hellið blöndunni ofan á botninn í smelluforminu, lyftið forminu örlítið upp frá borðinu og skellið því svo á borðið, þetta ætti að koma í veg fyrir að loftbólur myndist inni í kökunni.
Setjið svo formið á bökunarklædda plötu og setjið í miðjan forhitaðan ofn við 260 gráður og bakið í 10 mínútur. Ekki opna ofninn! Lækkið hitann í 90 gráður og bakið áfram í 100 mínútur eða þar til hiti kökunnar er orðinn 65 gráður (notið kjöthitamæli).
Takið ostakökuna út úr ofninum og setjið formið á grind. Eftir c. 10 mínútur þá skulið þið nota borðhníf til að renna meðfram ytri brún kökunnar. Þetta hjálpar til þegar þið losið svo smelluformið að ekkert festist við formið. Setjið disk eða aðra bökunarplötu yfir formið, rakinn helst þá inni í forminu og hægir á kulnunarferlinu. Eftir 2-3 tíma þá er óhætt að setja plastfilmu yfir formið og setja í kælinn. Kakan þarf að sitja í kæli í alla veganna 5 tíma áður en hún er borin fram. Hún er ekki alveg tilbúin fyrr en þá. Takið kökuna úr kæli 30 mín áður en þið ætlið að borða og skerið sneiðar með beittum hníf, gott er að stinga hnífnum í volgt vatn á milli sneiða til að skurðurinn gangi snurðulaust.
Ég ber kökuna oft fram með hindberjasósu. Ég skelli frosnum hindberjum í blandarann og þegar þau eru orðin að mauki þá set ég flórsykur út í og blanda þar til góð sósa er til. Flórsykurinn er eftir smekk en mér finnst gott að sósan sé örlítið súr. Enjoy!

nóv
11
Stökkar og bragðmiklar karrý kjötbollur
nóvember 11, 2009 | | Leave a Comment

Ég og Ottó fengum indverska matar fullnægingu þegar við brögðuðum þennan rétt. Hann er svo látlaus að sjá en “oh boj!” hann hreinlega strýkur bragðlaukana á dónalegan hátt. Myntulaufin eða kóríanderlaufin eru ekki bara skraut, þau setja punktinn yfir i-ið. Við djúpsteikjum aldrei neitt svo ég var hikandi að gera það en rétturinn verður ekki eins nema það sé gert. Djúpsteikingin gerir bollurnar nógu stökkar til að þola suðuna eftir á. Þær verða stökkar að utan en algert gúmmulaði að innan. Ég held ég hafi aldrei elskað nautahakk jafn mikið.
Ég mæli með hrísgrjónum, naan brauði, gott chutney með þessum rétt og hreina jógúrt fyrir þá sem þurfa að kæla munninn. Annars getum við borðað þetta eintómt. Snilldar uppskrift með hversdagslegu hráefni.
500gr nautahakk
2 stórir laukar,fínsaxaðir skipt í tvennt
6-7 hvítlauksrif, pressuð skipt í tvennt
2 tsk turmerik
2-3 tsk chili duft
2 tsk kóríander duft
1 1/2 tsk cumin duft
1 tsk engifer duft
2 tsk salt
kryddi blandað saman og skipt í tvennar skálar
1 egg,hrært
grænmetisolía til að djúpsteikja
125g smjör eða 2 msk grænmetisolía
200 ml vatn
myntu eða kóríander lauf til skreytingar og bragðauka
Setjið allt hakkið, og takið nú eftir! -helminginn af lauknum,hvítlauknum og kryddi saman í skál.
Hrærið því vel saman, setjið eggið út í og svo kemur uppáhalds iðjan mín og það er að kreista hakkið og allt gumsið vel saman þar til það verður meðfærilegt og hægt að móta auðveldlega úr því kúlur. Það á ekki að þurfa að bæta neinu út í. Mótið 12 kjötkúlur úr deiginu.
Setjið næga olíu í pott svo hægt sé að djúpsteikja bollurnar. Steikið nokkrar bollur í einu í c.5 mín. Takið þær upp úr og látið olíuna leka af þeim á eldhúspappír og setjið svo til hliðar. Nú er komið að hinum helmingnum af lauknum og kryddunum!Hitið olíuna í stórri pönnu, setjið restina af lauknum og hvítlauknum og steikið ljúflega í 4-5 mínútur þar til hann er farinn að verða glær. Bætið þá kryddunum út í og steikið í 3 mínútur, hrærið stöðugt. Bætið steiktu kjötbollunum út í og passið að kryddblandan hylji þær allar að einhverju leyti. Bætið svo vatninu út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla við lágan hita í 30 mínútur. Stráið annað hvort ferskri myntu eða kóríanderlaufum yfir og berið fram. Ég lofa því að þeir sem vilja bragðmikinn og/eða indverskan mat verða ekki sviknir af þessum rétt.

Þetta nægir fjórum.
Undirbúningur 30 mínútur
Eldamennska 40 mínútur.
Verði ykkur svo sannarlega að góðu
nóv
3
Hnetuhleifur með rauðri sósu
nóvember 3, 2009 | | Leave a Comment
Kryddið með salti og pipar, setjið í formið og bakið við 180 gráður í 45-60 mínútur. Látið steikina standa í 5-10 mínútur áður en hún er borin fram. Lyftið steikinni með bökunarpappírnum og setjið á disk.
Tómatsósa
1 laukur fínsaxaður
1-2 msk extra virgin ólífuolía
2 hvítlauksgeirar pressaðir
1 dós tómatar
1 msk tómatpúrra
1 tsk sykur
Steikið laukirnn og hvítlaukinn í olíunni í 3 mínútur eða þar til glær, bætið restinni út í og sjóðið í 5 mínútur.
Með steikinni bar ég fram ofnbökuð epli, ferskt salat og baunir. Bon apetit!
okt
28
Beyglur með rauðlauksosti, skinku og spínati
október 28, 2009 | | Leave a Comment
okt
28
Forskot á jólabaksturinn Krúsakökur
október 28, 2009 | | Ein ummæli
okt
28
Sparnaðarskinka
október 28, 2009 | | 2 ummæli
Mér finnst svo blóðugt að kaupa skinku í bréfi sem er hálft bréf vatn og kílóverðið á við fínasta nautakjöt. Svo við hjónin fjárfestum í ódýrum skurðarhníf fyrir 2 árum,hann borgaði sig upp eftir 3 skinkur. Ég hef aldrei verið hrifin af þessarri farslíku brauðskinku sem seld er í búðum heldur alltaf litið hýru auga til betri skinku. Sú er auðvitað seld örfá stk í bréfi á himinháu verði. Við grípum því alltaf til þess ráðs að kaupa góða skinku þegar hún er á tilboði og sjóðum,sneiðum og frystum. Kílóverðið er að minnsta kosta 1000kr lægra og við fáum skinku sem bragð er af. Það er alltaf plús í mínum kladda að þú finnir skinku bragð af skinkunni.okt
26
Eggjakaka með rauðlauk,beikoni og bönunum
október 26, 2009 | | Leave a Comment
okt
25
Eggaldin tortilla með byggsalati og kotasælu
október 25, 2009 | | Leave a Comment

Að þessu sinni skar ég niður tómata og reif niður parmesan og blandaði saman við og pipraði smá. Blandaði smá sítrónusafa,olíu og balsamic dropa saman og hellti yfir.
Makaði tómat tapenade á eggaldinsneiðarnar og steikti á pönnu. Setti svo kotasælu á helming tortillunnar, svo eggaldin og endaði með bygginu. Tilbúið!
okt
25
Hafragrautur og bananar
október 25, 2009 | | Leave a Comment
Ég gleymi því aldrei hve illa mér var við hafragraut í æsku. Mamma reyndi hvað eftir annað að koma honum ofan í mig. Þykkur vellingur, ósætur með mjólk var álíka óspennandi og að borða kork. Svo ég tali ekki um allar bækurnar sem ég hafði lesið þar sem hafragrautur kom við sögu, alltaf var hann þykkur, vondur og hreinlega eins og búinn til fyrir fátæk börn. Ég spurði mömmu auðvitað hvort við værum fátæk, ég held hún hafi samt aldrei tengt þessa spurningu mína við morgunmatinn. Það var ekki fyrr en ég var í Noregi að sumarlagi að vinna við garðyrkju sem mér tókst að taka hann í sátt. Við vorum 4 vinkonurnar og ætluðum að spara hverja krónu svo við ættum nógan pening yfir veturinn í skólanum. Hluti af þeim sparnaði var að borða hafragraut í hvert morgunmál. Mín lausn við þessum viðbjóði var að salta,sykra og þynna grautinn vel. Smám saman tók ég hann í sátt þar til ég borðaði hann með bestu lyst og saknaði hans hreinlega þegar ég var komin heim til Íslands og byrjuð í skólanum aftur. Í dag get ég borðað grautinn eins og hann er, án sykurs og salts en hver er hamingjan í því? Krydd í tilveruna. Það er nokkuð til í því. Það þarf ekki mikið til svo úr fábrotnu hráefni verði meistaramatur.okt
24
Avókadó með tómötum og myntu
október 24, 2009 | | Leave a Comment
Ég blanda saman 1 tsk af basil ólífuolíu, nokkrum dropum af balsamik ediki,1/2 tsk sítrónusafa,1/2 tsk hunangi eða maple sírópi. Helli helmingnum yfir avókadóið. Set svo tómatbitana og laukinn saman og ofan í holurnar og myntulauf yfir. Helli svo afgangnum af olíuleginum yfir. Ég fékk mér þetta í morgunmat með appelsínusafa, sem sagt alger c-vítamínsbomba í morgunsárið.
Hyvää ruokahalua!
okt
23
Beikonvafin grísasnitzel með döðlu gráðosta fyllingu
október 23, 2009 | | Leave a Comment
Þetta er alveg skotheld uppskrift, það er ekki hægt að klúðra þessu. Grísasnitzel eru hræódýr þessa dagana en hægt er að búa til svo girnilega rétti úr þeim. Titillinn sagði í rauninni allt sem þurfti. Það þarf grísasnitzel, beikon,döðlur og gráðost og grófkorna sinnep.
Það þarf bara að smyrja smá gráðosti á snitzelið, steinhreinsa döðlurnar og skera niður og raða ofan á ostinn. Rúlla snitzelinu upp og smyrja það með sinnepinu, ekkert vera nískur á það. Taka svo 2 beikonsneiðar og vefja utan um snitzelið.
Et voilá! Þessi sætu grísarúllur bíða þess að komast í ofninn. Það nægir þeim 20 mínútur við 205 gráðu hita. Í þetta sinn bar ég rúlluna fram með grilluðu grænmeti og spínati.
Ég skar niður gulrætur, sætar kartöflur og papriku í grófa bita. Skar lauka í tvennt og dreifði með ásamt nokkrum hvítlauksrifjum. Bætti við nokkrum sveskjum og stórum bitum af epli. Dreifði basil ólífuolíu yfir og velti öllu saman og kryddaði með ítölsku kryddi. Setti í eldfast mót og álpappír yfir, bakaði í ofni við 200 gráður í 40 mínútur, tók álpappírinn af og lét það vera í 15 mínútur í viðbót. Tíminn er svolítið afstæður, fer eftir stærð grænmetisbitanna. En þetta fór mjög vel með grísarúllunum, eplin og sveskjurnar eiga alltaf vel við svínakjöt.
okt
23
Safaríkar og seiðandi plómur
október 23, 2009 | | Leave a Comment
Það er eitthvað við plómur. Þær eru bústnar, mjúkar og safaríkar og mér verður alltaf hugsað til endurreisnartímabilsins þegar ég borða þær. Það hangir uppi olíumálverk af plómum í stórfenglegum gylltum ramma í stofunni hjá mömmu. Málverkið kemur frá ömmu og afa og hefur alltaf verið í bakgrunninum eins lengi og ég man eftir mér. Lýsingin minnir á Rembrandt málverk, djúpir skuggar og plómurnar svo eðlilegar að mig langar að teygja mig inn málverkið og stela einni.
Ég keypti stóran pakka af plómum um daginn og hef ekki getað látið þær í friði. Ef ég borða þær reglulega þá bæta þær meltingafærin, hjálpa við inntöku járns í líkamanum, hreinsa blóðið og það eru minnkandi líkur á hjartasjúkdómum, ristilkrabbameini,astma,beinkrabba og gigt. Þegar þú bætir því við að það er lítil fita og fáar kalóríur í hverri og mikið C vítamín í þeim þá væri það hreinlega glæpsamlegt að borða þær ekki.
Svo ég komi mér nú að máli dagsins þá sit ég veik heima með veikt barn og þá er bara eitt sem ég alltaf geri í veikindum… ég baka.
Flettu smjördeigið út og brettu upp á deigið við endana og mótaðu kant. Gott að nota smávegis vatn til að festa kantinn. Settu deigið á bökunarklædda plötu.okt
20
Fiskur í raspi indian style
október 20, 2009 | | Leave a Comment
okt
20
Döðlu og tómat chutney
október 20, 2009 | | Leave a Comment
Fyrir þau okkar sem elska allt sætt þá er hér gróft og gott chutney. Ágætis tilbreyting frá algengara meðlæti eins og mango chutney eða lime pickle.
Settu allt heila klabbið í pott og hrærðu vel. Láttu suðuna koma upp og svo minnka hitann niður í 3-4, láttu malla í c.45 mín án loks. Hrærðu af og til í þar til það þykknar.
Ef þú vilt fá aðeins sterkara chutney þá bætir þú bara við chili dufti og salti eftir smekk. Döðlurnar gera þetta mjög sætt svo það er gott að vega upp á móti því með chili.
Þetta nægir fyrir 4-6
Undirbúningur 10 mínútur
Eldun 45 mínútur
okt
20
Indverskir dagar….
október 20, 2009 | | Ein ummæli
Við erum á 23 degi indverskra daga á Bjargartanganum. Indverskur matur eldaður frá grunni í kvöldmat alla þessa daga. Mmmmmm…
Við fáum ekki nóg og því höldum við bara áfram. Enn er Ottó ekki farinn að svitna gulu svo við erum í góðum málum. Það eru svo margar góðar uppskriftir en ég hef ekki myndað neitt fyrr en núna. Þessi réttur er fínt meðlæti með mörgum réttum eða bara gott grunn karrí í aðalrétt. Þetta er bragðgóður karrý grænmetisréttur, ekki of sterkur.
Balti blandað grænmeti
Notið hvaða grænmeti sem bester í það sinnið. Saxið það í frekar smáa teninga svo það taki ekki oflangan tíma að sjóða. Þetta er mild blanda af engifer,chili,kóríander og turmeric. Auðvitað getið þið verið gjafmildari með chili duftið ef þið viljið aðeins meiri kraft.
1 lítill laukur,saxaður
1-2 hvítlaukar pressaðir
2.5sm ferskt engifer, rifið
1 tsk chili duft ( ég set 2tsk)
2 tsk kóríander duft
1/2 tsk turmeric duft
500 g blandað grænmet (ég notaði núna gulrætur,sætar kartöflur og frystar grænar baunir, það er hægt að nota kartöflur,blómkál ,rófur…)
2-3 tómatar, húðlausir og niðurskornir eða 4 msk sítrónusafi
salt
Hitið olíuna í stórri pönnu/wok eða þykkbotna potti og steikið laukinn á meðal hita í 5-10 mínútur eða þar til hann er farinn að brúnast eilítið. Bætið hvítlauk,engifer, chili,kóríander,turmerc og smá salti út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót. Bætið þá niðurskornu grænmetinu út í og steikið í 2-4 mínútur í viðbót.
Bætið annað hvort tómötunum eða sítrónusafanum út í .Hrærið vel og bætið örlitlu vatni út í.
Ég var með tómata úr dós og notaði allt úr dósinni og svo dass af sítrónusafa að auki.
Setjið lok yfir og látið malla í 10-12 mínútur eða þar til grænmetið er orðið meyrt, bætið vatni út í ef þarf svo grænmetið festist ekki við botninn. Tíminn fer eftir því hve stórt grænmetið er skorið.
Hægt er bera fram með naan eða chapatis
okt
20
Múffur fyrir alla, konur og karla,krakka með hár og kalla með skalla
október 20, 2009 | | Ein ummæli
Ég veit ekki hve oft ég hef bakað múffur úr þessarri uppskrift. Ég rakst á hana í Gestgjafanum og hún klikkar hreinlega ekki. Grunnuppskriftin er fljótleg, einföld og þarf ekki meira en hráefni,skál,sleif og handafl. Jú og að sjálfsögðu múffuform og ofn.
30 gr sykur (má sleppa)
2 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
Þessu er blandað saman í skál.
1 egg
2 1/2 dl mjólk
60 gr brætt smjör
hrærið þessu létt saman í annarri skál
Hellið vökvanum út í hveitiblönduna og hrærið varlega, í mesta lagi 20 handtök. Deigið á að vera kekkjótt.
Smyrjið múffumót eða notið pappírsform og bakið í 20 mín við 200 gráður. Ég mæli með því að nota múffumót fyrir 12 múffur og pensla létt með olíu, þannig steikjast múffurnar vel undir. Deigið er akkúrat fyrir 12 múffur. Grunndeigið er best borðað samdægurs en ef það er meiri matur í þeim þá eru þær góðar næstu 2 daga líka. Ef ekkert er sett í þær þá eru þær tilvaldar með smjöri, osti og sultu eða hvaða áleggi sem er.
Hægt er að setja allt mögulegt í deigið, á myndinni fyrir ofan eru múffurnar með hindberi og súkkulaðibitum. Þá set ég deigið í formin og sting svo einu hindberi í hverja múffuskál og ýti nokkrum grófsöxuðum súkkulaðibitum ofan í. Þessi útgáfa er best strax eftir bökun.
Þetta er pizzamúffa, sem alveg bráðnar í munninum á manni. Ég set 1-2 tsk af heitu pizzakryddi frá pottagöldrum, slatta af rifnum osti (allt eftir því hve mikið er til) en kannski c.50gr. Set svo kannski skinku, pepperoni eða grillaðar papriku smáttsaxaða út í. Ég set þetta í grunnuppskriftina þegar ég er kannski búin að hræra 15 sinnum í hana og hræri síðustu handtökin með þessu í. Skammta svo í formin og baka kannski 5 mínútum lengur því múffurnar verða stærri og matarmeiri.
Þessar eru hrikalega góðar í morgunmat eða brunch. Þær frystast vel og þú getur hitað þær snögglega í ofni og þær eru eins og nýbakaðar.
Verði ykkur að góðu!


























