Fyrirgefðu náunga þínum, sjö sinnum.
Hvert er æðsta boðorðið? Meistarinn svaraði því þannig. „Elska skalt þú Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum“ og annað er þessu líkt. „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“
-Hversu oft höfum við heyrt þetta, með að elska náungan, eins og sjálfan sig. Hvaða viðmiðun er þetta? Svar: Þú skalt elska óvin þinn og gera honum, það sama og þú myndir gera fyrir þinn besta vin. Bjóða óvini þínum að borða af fæði þínu og gefa honum föt þín, sem þú notar ekki meira, þú skalt bjóða honum að gista í húsum þínum, ef þannig liggur við. Þú skalt lyfta óvin þinn upp á hærra plan, í lífi þínu, þú skalt fyrirgefa honum sjö sinnum og þú munt öðlast virðingu hans í staðinn. Þú skalt meta óvin þinn, til jafns við þinn besta vin, sem þú snæðir með og skemmtir þér með.
-Það er einmitt, það sem að Guð vill gera, með að mæta okkur og fyrirgefa okkar misgjörðir. Lyfta okkur upp á hærra plan og gefa okkur ró í hjartað. Þetta vers þekkjum við öll. „Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum, vorum skuldunautum“ Vinir. Guð vill fyrirgefa okkur, og mæta okkur, og gefa okkur frið í hjartað. Ber okkur þá ekki, að fyrirgefa óvinum okkar, á sama hátt og Guð fyrirgefur okkur? Okkur veitist það, fyrst auðvelt að fyrirgefa, þegar Guð hefur fengið fyrsta sætið í lífi okkar, og smurt varir okkar og huga, til að geta fyrirgefið náunga okkar.
Það er fórn, að fyrirgefa.
-Það er að vissuleyti fórn að fyrirgefa. Maður fórnar ákveðni misgjörð, sem er í fari þínu, fyrir eina fyrirgefningu, og þegar fyrirgefningin er orðin að mörgum fyrirgefningum, þá er sektar fórnin stærri og gefur því meiri frið. „Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera“ Elskaðu óvin þinn og fórnaðu einhverju af sjálfum þér, til að vinna hans virðingu aftur og þinn stall í lífinu.
-Leitaðu eftir guðs vilja í hjarta þínu og fáðu guð til að fyrirgefa þínar syndir og elskaðu hann af öllum þínum mætti og af kærleika þínum, og þá veitist þér auðvelt að fyrirgefa. Þín fórn er að fyrirgefa og þú færð Guðs blessun í þitt hjarta fyrir vikið.
Add comment febrúar 19th, 2010
