'Uncategorized'

Þér skuluð þvo fætur hvers annars.

Öll þekkjum við söguna um síðustu máltíðina. Þegar kristur braut brauðið og bauð lærisvinunum að drekka af bikarnum, sem andleg mynd upp á hans líkama og hans blóð. Það var líka annað, sem að Kristur bauð lærisveinum sínum, nokkuð sem að fólk heyrir ekki mikið af. „Þérr skuluð þvo fætur hvers annars.“

-þessi atriði hafa öll, það sama að bera. „Sáttmáli Guðs til okkar, til fyrirgefninga og hreynsun synda okkar og misgjörða“ Jóh.13.5 Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum sem hann hafði um sig.  En, hversvegna að þvo fætur hvers og eins? Þetta er andleg mynd upp á hreynsun líkamanns. Líkaminn er sem musteri Guðs, á meðal okkar og við lifum í syndugum heimi, sem er yfirfullur af óguðlegum myndum og gjörningum. Við göngum um í þessum synduga heimi og göngum í raun og veru yfir syndina, sem að liggur við okkar lappir. Þess vegna verðum við að þvo fætur hvers annars, til að halda musteri líkamanns hreynu.

Þetta dæmi er gífurlega sterkt.

-Lúk.7.38. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum, nam staðar að baki honum til fóta hans, grátandi tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum. Þetta er gífurlega sterk frásögn og táknræn mynd upp á hreynsun líkamanns og helgun mannsinns.

-Við erum eignar lýður Drottinns og Drottinn Guð krefst þess af okkur, að við séum hrein og flekklaus lýður. Að við komum saman og þvoum fætur hvers og eins, með kjærleika krists og í helgun orðsins. Guð óskar þess, að við séum honum helguð og blessuð, sem hans eignar lýður, í orði og verki, og að við vísum það fram í kærleika og okkar gleði, frá morgni til kvölds. Amen.

Kirkjan hefur farð afvega, hvað þetta varðar.

-Kirkjan hefur gleymt orðinu og sannleikanum um hreynsun synda og helgun líkamanns, kirkjan hefur farið inn á menningalegar brautir og hafið menninguna yfir Guðs orð, en það er Guðs orð sem á að vera yfir menningunni. Það er kirkjan sem á að standa vörð og guðs orð, en því miður, kirkjan hefur tapað leiknum. Þess vegna hefur Guð útvalið það minnsta, til að gefa heiminum spark. Það er einmitt hér sem ég kem inn og allir hinir bókstafs trúuðu stólpar í þjóðfélaginu og segjum frá frelsisverki Guðs.

-Kirkjan boðar ekki Guðs orð um helgun mannsinns og hreinsun líkamanns frá syndinni. Það vantar mikið á, hjá kirkjunni, til að segja allann sannleikann, og ganga eftir Guðs vegum.

-Vinir. Karlmenn eiga að þvo fætur hvers og eins og það sama gyldir um konur. Holdið er veikt, og syndin situr við dyrnar, en andinn er að sönnu reiðubúinn. Getum við þvegið fætur hvers og eins, með tárum okkar og gleði okkar, til hvors annars? Svar. Nei. Það stórlega efast ég um.

Add comment apríl 9th, 2010

Hefur kirkjan brugðist hlutverki sínu?

Þessi spurning hefur bankað upp á hugann minn um tíma. “Hvort kirkjan hafi brugðist hlutverki sínu, með því að standa vörð um Guðs orð”

-Það er Margt í samfélaginu, sem að hefur gripið kirkjuna og náð þar fótfestu. Í fyrsta lagi: þá hefur kirkjan tekið menninguna Inn fyrir sína veggi. Menningin Virðist skipta Meira máli fyrir kirkjuna, en hið Fallega og hreina Guðs orð. Menning samfélagsins og hugsun fólksins hefur náð að rótfesta Sig í kirkjunni.

-Fólk finnst að kirkjan eigi að vera frjáls og eigi að fara eftir því sem þjóðin segir. Kirkjan á að leggja Blessun sína yfir óvígða sambúð og viðurkenna rétt samkynheiðra. Kirkjan á einnig að halda jól með jólasveinum og grýlum samtímans, og ef mögulegt er, þá bíður fólk einnig kirkjuna, að vera með í því að leita frétta af framliðnum. Hvað er að ske hér? Kirkjan gengur þvert á það sem Biblían kennir um guðlega þjónustu og helgun sinna borgarra. Kirkjan hefur tekið, upp á sig annarlegar kenningar, og veður í stórvillu þessa heims, með menningarlegu yfirbragði.

Prestar kirkjunnar eiga þannig að vera.

-Prestar kirkjunnar eiga þannig að vera. Þeir eiga að vera guði undirgefnir og gefa Sig að Guðs orði í tíma og ótíma. Sem sagt á öllum tímum sólahrings og vera viðbúnir því, að þurfa að standa vörð um Orð Guðs og berjast fyrir rétti þess, og tilveru. Prestar eiga að koma jafnvel fram og vera jafnvel klæddir og heiðarlegir í framkomu sinni sem og einkvæntir og barngóðir. Það eru þeir sem stjórna kirkjunni sómasamlega sem og Heimili sínu, og þeir verða að standa vörð um köllun sína og sókn sína. Berjast fyrir sannleikanum og gyldi orðs Guðs og gæta að annarlegum kenningum sem að blása um þennan Heim, sem ferskir vindar. Prestar eiga að vera bindindissamir og góðir fræðarar Guðs um orð og sannyndi orðsins.

-En því miður. Flestir prestar kirkjunnar eru þannig, að þeir Heyra og sjá, en Skilja ekki, það sem sagt er. Þeir Hafa Gleymt fyrri köllun sinni og berjast ekki fyrir rétti Guðs orðs. Þeir standa fyrir utan Guðs orð, þó svo að þeir klæði sig upp fallega til messu á sunnudögum. Þeir hafa gleymt mikilvægi Guðs orðs og kallað annarlegar kenningar yfir sig og kirkjuna. Sem þeir eiga standa vörð um. Þeir sjá berlega Hvernig heimurinn  kæfir Guðs orð og þeir gera ekkert til að standa í móti þessum annarlegum kenningum. Þeir aðhyllast menningunni frekar og því sem Guðs orð segir og aðvarar um. Það vantar bara að þeir segi opinberlega “Drekkum Meira ofbeldisvín, og skemmtum okkur fram á rauða nótt”.

Kirkjan á að vera yfir menningunni, en ekki menningin yfir kirkjunni.

Add comment mars 27th, 2010

Fyrirgefðu náunga þínum, sjö sinnum.

Hvert er æðsta boðorðið? Meistarinn svaraði því þannig. „Elska skalt þú Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum“ og annað er þessu líkt. „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“

-Hversu oft höfum við heyrt þetta, með að elska náungan, eins og sjálfan sig. Hvaða viðmiðun er þetta? Svar: Þú skalt elska óvin þinn og gera honum, það sama og þú myndir gera fyrir þinn besta vin. Bjóða óvini þínum að borða af fæði þínu og gefa honum föt þín, sem þú notar ekki meira, þú skalt bjóða honum að gista í húsum þínum, ef þannig liggur við. Þú skalt lyfta óvin þinn upp á hærra plan, í lífi þínu, þú skalt fyrirgefa honum sjö sinnum og þú munt öðlast virðingu hans í staðinn. Þú skalt meta óvin þinn, til jafns við þinn besta vin, sem þú snæðir með og skemmtir þér með.

-Það er einmitt, það sem að Guð vill gera, með að mæta okkur og fyrirgefa okkar misgjörðir. Lyfta okkur upp á hærra plan og gefa okkur ró í hjartað. Þetta vers þekkjum við öll. „Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum, vorum skuldunautum“ Vinir. Guð vill fyrirgefa okkur, og mæta okkur, og gefa okkur frið í hjartað. Ber okkur þá ekki, að fyrirgefa óvinum okkar, á sama hátt og Guð fyrirgefur okkur?  Okkur veitist það, fyrst auðvelt að fyrirgefa, þegar Guð hefur fengið fyrsta sætið í lífi okkar, og smurt varir okkar og huga, til að geta fyrirgefið náunga okkar.

Það er fórn, að fyrirgefa.       

-Það er að vissuleyti fórn að fyrirgefa. Maður fórnar ákveðni misgjörð, sem er í fari þínu, fyrir eina fyrirgefningu, og þegar fyrirgefningin er orðin að mörgum fyrirgefningum, þá er sektar fórnin stærri og gefur því meiri frið. „Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera“  Elskaðu óvin þinn og fórnaðu einhverju af sjálfum þér, til að vinna hans virðingu aftur og þinn stall í lífinu.

-Leitaðu eftir guðs vilja í hjarta þínu og fáðu guð til að fyrirgefa þínar syndir og elskaðu hann af öllum þínum mætti og af kærleika þínum, og þá veitist þér auðvelt að fyrirgefa. Þín fórn er að fyrirgefa og þú færð Guðs blessun í þitt hjarta fyrir vikið.

Add comment febrúar 19th, 2010

Það er stórsynd að afneita Guði.

Þetta er alvarleg synd að afneita Guði og boða afneitun á lifandi Guðsorði, þetta er hræðileg synd og þeir eru margir sem Hafa fallið í þá gryfju, að boða afneitun á Guðs orð. Það er kveðið sterkt á þessu í Guðs orði og þeir sem afneita Guði skapara sínum, þá Guð mun einnig afneita viðkomandi. Títusarbréf segir þannig frá. 1,16. Þeir segjast þekkja Guð, en afneita honum með verkum sínum. Þeir eru viðbjóðslegir og óhlýðnir, óhæfir til hvers góðs verks.

bibel

Guðs orð er ekki að skafa ofan af sannleikanum, heldur segir það beint út. “Þeir eru viðbjóðslegir og óhæfir” Þeir eru vanhæfir til sérhvers góðs verks. Það þýðir einfaldlega, að þeir standa fyrir utan Guðs Blessun, og þá er mikið sagt, og Guðs orð segir meira. 4.Mósebók.26: 17 Og Vil snúa augliti mínu gegn yður ég, og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvinum Yðar, og fjandmenn Yðar skulu drottna yfir yður og þér skuluð flýja, þótt Enginn elti yður. Þetta er augljóst og merkingin er skýr. Það er Enga hjálp að sækja hjá Guði, ef maður afneitar honum og boðar guðsafneitun með sínum orðum og verkum. Þessir menn eru sífellt á verðbergi um Sig og sitt. Þessir menn eru orðljótir og grimmir, Sumir af þeim eru þjófar og ræningjar, sem að stela frá gamalmennum og munaðarleysingjum og aðrir sænga með konum Yðar. Þeir Gera lítið úr þjóðfélaginu og tala þessir menn illa um Stjórnendur Land síns. Þessir menn eru bundnir í synd sinni og afneita Guðs orði, Því varir reiði Guðs yfir höfði þeirra. Það er alvarleg synd að afneita Guðs orði.

Það eru forréttindi að fá að þekkja orð Guðs.

-Ég verð að segja það beint út. “Það eru forréttindi að fá að þekkja orð Guðs” Þeir eru lánsamir, sem Hafa fundið þá náð, að þekkja Drottinn og sannleks gyldi orð Guðs. Þeirra bíður Eilíf Blessun og samfélag með Guðs útvöldum sem Hafa valið samfélagið með frelsaranum Jesú Krist. Á himnum munum við Hitta þá sem Hafa Mist lífið vegna trúar sinnar og þá sem Hafa barist fyrir orði Guðs og gefið Sig að því og varið það með orðum sínum og verkum.

-Margir Hafa þurft að líða fyrir trú sína og verið teknir af lífi, á hrottalegan hátt, vegna sinnar trú á frelsarann Jesú Krist. Menn Hafa verið settir í fangelsi fyrir að boða orð Guðs og hlekkjaðir á löppum og á höndum. Það eru forréttindi að boða Guðs orð. Vinir. Standið hratt á ykkar trú og berjist sem Sannar Guðs hetjur, á móti guðleysingjum þessa heims, sem fýsir að setja ykkur bak við las og slá. Þannig verður það um síðustu daga. Menn verða lokaðir inni, vegna sinna trúar skoðana og teknir af lífi vegna sinnar trú á frelsarann Jesú Krist.

-Menn munu traðka á Guðs orði um síðustu tíma. Guð frelsi okkur frá þessum vonda heimi, áður en það verður of seint.

Add comment febrúar 9th, 2010

Hvaða krepputal er þetta nú!!!

Þannig er það bara. Fólk vill ekki sjá og hlusta eftir Guðs orði. Guðs afneitun er næstum því algjör. Ef fólk heyrir Guðs Rödd af himni, þá segir það. “Þetta var Þruma sem gekk yfir” Fólk hefur Útskýringar fyrir öllu.

-Guðs orð segir aftur og aftur. Útlit Lofts getið þið metið, mæta vel. “Illviðri í dag og á morgun, himininn er rauður og þungbúinn. En Tákn tímanna kunnið þið ekki að ráða í “ Hver eru þá táknin? Eitt af síðustu táknum, síðustu tíma er efnahagsleg kreppa. Við aðeins höfum séð byrjunina á kreppunni. Þessi kreppa verður algjör og mun ná yfir öll ríki þessa heims. Bil iðnaðurinn kemur til með að lamast að öllu og hverskyns Annar iðnaður verður lagður í rust. Fólk mun ekki Geta keypt sér hús eða bíla og það mun heldur ekki eiga fyrir mat og vatni ekki Geta verslað sér inn, vegna skorts á peningum og Afar mikið Atvinnuleysi mun Gera vart við Sig.

-Þessi kreppa verður miklu verri en þær sem á undan eru gengnar. Þannig er Ritað í Sefanía 1,15. Sá Dagur er Dagur reiði, Dagur neyðar og þrengingar, Dagur eyðingar og umturnunnar, Dagur myrkurs og niðdimmu, Dagur skýþykknis og skýsorta.

-Þessi Spádómur í vitnar miklar þrengingar sem munu ganga yfir jörðina. Tími efnahags þrenginga og miklar náttúruharmfarir munu ganga yfir að auki. Allt vegna þess að mennirnir Vilja ekki kannast við Guð. Guðs afneitunin er algjör og því verður eyðingin Algjör. Þegar mennirnir snúa sér frá Guði og fara að þjóna öðrum guðum og hlusta eftir kennivindum þessa heims, þá er ekki mikla hjálp að sækja frá skapara okkar og herra okkar. Við eru Seld undir vald óvinarins og hann drottnar yfir þessum heimi, með undrum sínum og lygatáknum sínum. Óvinurinn er djöfullinn sjálfur, þinn sálaróvinur. En hvað gagnar það, að segja þetta? Mennirnir Hafa Skýringar við öllu og Hafa fundið upp á nýjum sönnunum sem eru við það að kæfa allt Guðs orð.

Vinir. Ég rita þetta til ykkar sem aðvörun.

-Guðs orð er fullt af aðvörunum, um Tákn síðustu tíma og það segir berlega frá. Matt 24,21 Þá verður sú mikla þrenging, sem engin hefur Þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og mun aldrei verða. Það kemur skýrt fram, að mikil þrenging mun koma yfir þennan Heim, um síðustu tíma og margir munu líða skort og missa allar sínar eignir á þessum tímum. Þessi efnahagskreppa sem við Séð höfum og verið vitni að, um síðustu vikur og mánuði, er bara smámunir í samanburði við það sem á eftir að koma.

-Vinir. Ég Rita þetta ykkur, til aðvörunnar og Guðs orð er aðvörunar lampi að þessu leyti til. Það er enn tími til að bjarga sjálfum sér, til eylífs lífs og Guðs kærleika. Skoðum þetta í lokin. Matt 6,33 En Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Guð hefur gefið okur fyrirheit um hið Komandi guðlega konungsríki, þar sem ríkir guðdómlegur kærleikur og eining frið um og jafnvægi. Þetta fyrirheit getum við öðlast, ef við hans játum nafn og Lærum að þekkja hans orð og fara eftir því sem Skrifað er í hinni heilögu bók. Guðs orð Gefur okkur aðgang að eylífu lífi með honum og því sem hann hefur fyrirbúið þeim sem á hann Hafa trúa og Hafa játast með munni sínum og trúað með hjarta sínu.

Add comment febrúar 7th, 2010

Syndir feðrana koma fram í þriðja og fjórða ættlið.

Syndin getur verið hörð og slæg, synd feðra þinna getur komið fram í Þriðja og fjórða ættlið. Segir ekki máltækið þannig frá? “Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni” Þannig er því farið, í flestum tilfellum, að afkomendur þessa heims líkjast sínum feðrum. Börnin lita upp til sinna feður og Gera það sama og þau Hafa séð sína feður Gera, á sínum uppvaxtaárum.

gud

-Þegar þessi vers (hér fyrir neðan) voru skrifuð, þá voru Ísraelmenn á ferðalagi um eyðimörkina og þeir þess undur Drottins í orði og verki í áraraðir, þeir þess hans Elsku og trúfesti, Hvernig hann frelsaði Ísrael út úr þrælahúsinu í Egiptalandi og klauf Rauðahafið fyrir eim. En samt mögluðust þeir út í drottin og vildu snúa við og fara aftur til egypta. Fólkið möglaði og möglaði, þó svo að þeir þess dásemdir Drottins alla daga og gengu í sömu drekans og höfðu sömu klæði í fjörtíu ár.

-Skoðum þessi vers nánar. 2.Mósebók.34.6-7.Drottinn. Drottinn, miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður, gæskuríkur og harla trúfastur, sem auðsýnir gæsku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir og afbrot og syndir “en lætur þeirra þó eigi með öllu óhengt, heldur vitjar misgjörða feðranna á börnum og barnabörnum, já í Þriðja og fjórða lið .

-Miskunnsemi Guðs yfir Ísrael var alveg með ólíkindum. Hann helt verndarhendi yfir Ísrael og leiddi þau út af þrælahúsinu í Egiptalandi, en samt möglaðast fólkið út í Guð og byggði sér gullkálf og dansaði kringum kálfinn og drakk Sig fulla af sætu vini og dýrkaði aðra Guði. Þá upptendraðist reiði Guðs yfir fólkinu og hann eyddi þeim, þar að segja hluta að Ísrael. Því kemur þetta fram. “Guð mun VITJA misgjörðir feðranna í Þriðja og fjórða lið” Ath: Síðan þetta var Skrifað, þá eru liðin þúsundir ár.

Syndirnar Ganga frá kynslóð til kynslóðar.

-Við skulum athuga eitt. Það sem að Ísrael var að gera í eyðimörkinni er í sjálfu sér bara smámunir, miða við það sem er að gerast í dag, á meðal nútímafólks okkar. Syndir feðranna, frá eyðimörkinni eru búnar að ganga í gegnum þúsundir kynslóða og vefja uppá Sig hörku fólksins og guðsafneitunin er algjör. Sjúkdómar þessa heims eru bein afleiðing syndarinnar. Plágur þessa heims eru bein afleiðing syndarinnar. Guð mun leggja plágur yfir þennan Heim, á sama veg, og hann gjörði forðum, er Ísrael var frelsað út úr þrælahúsinu í Egiptalandi.

-Að Vilja ekki kannast við Guð, er alvarleg synd. Guðleysi er synd og Guð mun slá þig niður sjö sinnum sjö, eða eins margar syndirnar eru margar og hann mun hegna frá kynslóð til kynslóð. 3.Mósebók26.21. Og ef þér Gangið í gegn mér, þá Vil ég enn slá yður sjö sinnum, eins syndir Yðar eru margar. Hann mun slá kynslóð eftir kynslóð, eða allt þar til að einhver Gefur Sig og játar Sig undir frelsarans nafn Jesú Krist. Frelsarann og Guð minn, sem að mennirnir krossfestu og gerðu að atlægi sínu, mennirnir krossfestu hann Nakinn og ráku hann frá sér og afneituðu með orðum sínum og verki sínu. Menn hræktu á frelsarann og gerðu lítið úr honum. Hvers eiga menn að gjalda? Spyr ég bara. Sí sem svona. Vinir. Þessi maður var Guð sjálfur í holdi borinn sem oss. Okkar eigin skapari og okkar eigin kærleikur og demantur. Hann elskaði okkur það mikið, að hann vildi eiga daglegt samfélag með okkur, en feður okkar afneituðu honum og krossfestu, sem hann væri stórglæpamaður. Allar kynslóðir, sem á undan eru farnar munu sjá hann á Efsta degi, ásamt oss.

-Guð mun hrista þennan Heim, með jarðskjálftum og öðrum náttúruharmförum, milljónir munu missa líf sitt vegna sinnar afneitun á lifandi Guð. Galdramenn þessa heims munu deyja fyrir Aldur Fram. Kennimenn þessa heims munu fanga þennan Heim, með annarlegum kenningum um framandi Guði og heima á meðal stjarnanna. Heimurinn mun að Lokum farast, vegna sinnar Guðs afneitunar. Allt bendir í þá áttina, að synd feðrana mun gleypa þennan Heim að lokum.

-Þessu til Staðfestingar, þá segir orðið hér skýrt og greinilega, þannig frá.

-5.Mósebók.28.58-60. Ef þú gætir þess eigi að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls, þau er rituð eru í þessari bók, með því að óttast þetta dýrlega nafn, DROTINN Guð þinn, þá mun Drottinn slá þig og niðja þína með feiknaplágum, með miklum plágum og þrálátum, með illkynjuðum sjúkdómum og þrálátum, og hann mun aftur Láta yfir þig koma allar hinar egypsku sóttir, þær er þú Hræðist og þær munu við þig loða.

-Eru Þetta hörð orð þessi og orð eru að ganga í uppfyllingu. Sjáið allar þær drepsóttir sem eru að ganga yfir heiminn, þrætugirni og eigingirni er viðloðandi við þennan Heim, fégirni er að drepa þennan Heim, allir Vilja eigna sér fé og Skjót auðæfi, menn stela frá hvor öðrum og ganga í sængur með konum annarra manna. Já Drottinn mun slá niðja þína niður, sjö sinnum sjö. Já og það með illkynjuðum og ólæknandi sjúkdómum. Allt vegna þess að fólk þessa heims afneitar Guði og fer með annarlegar kenningar. Það er slæm synd að afneita Guði og það er alvarleg synd að boða guðsafneitun. 

Add comment janúar 30th, 2010

Biblían segir satt. Gangið ekki í ábyrgð fyrir náungann.

Margir hafa fallið í þá gryfju að ganga í ábyrgð fyrir skuldum vina sinna. Segir ekki orðið þannig frá. Okskviðirnir 22:26-27 Ver Ekki meðal þeirra er ganga til handsala, meðal þeirra er ganga í ábyrgð fyrir skuldum. Því þegar þú ekkert hefir að Borga með, villtu þá lata taka sængina undan þér?

dollar

Þeir eru orðnir ansi margir sem hafa mist sína sæng og aleigu sína fyrir handsal vinar síns. Guðs orð aðvarar og gengur í uppfyllingu. Orðskviðirnir 11:15 Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur.  Enn eitt dæmið hvernig fer fyrir þeim, er ganga í ábyrgð fyrir vin sinn. Guðs orð talar beint út um þessa hluti. Það er ekki Guðs blessun að ganga í ábyrgð fyrir vin þinn, þú endar í ógöngum, ef þú getur ekki staðið undir skuld vinar þíns. Þegar tveir til þrír vitna um sama efnið, þá er ekki um að villast. Skoðum þriðja dæmið. Orðskviðirnir 17:18 Óvitur maður er sá, er gengur til handsala, sá sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn. Hér höfum við þrjú dæmi um ábyrgð, og hvernig fer fyrir þeim, er ganga í ábyrgð. Það er ekki um að villast, að Guðs orð lætur ekki að sér hæða.

-Hvað höfum við mörg dæmi til, er segja okkur þá sögu, að vinir okkar hafa mist eigur sínar á uppboðum og að bankinn hafi tekið eigur þínar upp í skuldir og ábyrgðir þínar? Þessar sögur eru orðnar óteljandi. Hér höfum við skýrt dæmi, af bók bókanna, og gerum ekki grín að Guðs orði. Biblían talar satt og beint út. Þessi þrjú vers hér að ofan vitna vel um, hversu Guðs orð er satt. Það er ekki hægt að mistúlka þetta. 

-Guðs orð segir satt. Gangið ekki í ábyrgð fyrir náungann….

Add comment janúar 22nd, 2010

Eigi skalt þú leggjast með karlmanni, sem kona væri.

Fyrir stutt bloggaði ég um efni sem kallast „Hún skal karynja kallast“ sjá hér. Hjónabandið er há heilög stofnun á milli manns og konu. Þessa stofnun, eða sáttmála á milli karls og konu má með engu móti brjóta. Þannig var það hugsað af Guði við upphafi veraldar.

-Þessi sáttmáli hefur verið brotinn, frá manni til manns. Frá kynslóð til kynslóðar. Allt vegna þess að menn hafa afneitað Guði og farið að þjóna fýsnum syndanna.

sodoma

-3 Mósebók. 18.22-23 Eigi skal þú leggjast með karlmanni, sem kona væri. Það er viðurstyggð. Þú skalt ekki eiga samlag við nokkra skepnu, svo að þú saurgist af. Né heldur skal kona standa fyrir skepnu til samræðis við. Það er svívirðing.

-Sköpunin var ekki gömul, er menn byrjuðu að þjóna skurðgoðum og brenna af fýsnum til hvors annars. Menn svívirtu líkama sína með hvor öðrum. Karlmenn með karlmönnum og konur með konum. Sumir hafa gengið það langt, að hafa svívirðingu með dýrum. Þetta er allt saman svívirðing og skömm við líkamann. Lítilsvirðing við orð Guðs og sannleika lífsins.

-Þetta er alvarleg synd í augum Guðs og þessi synd kallast „Sodomi“ Dregið eftir nafni borgarinnar Sódóma. Guð eyddi borgunum Sódóma og Gómorra vegna syndar þeirra. Íbúar borgarinnar svívirtu líkama sína með hvor öðrum og dýrum húsbænda sinna. Þeir afneituðu Guði og dýrkuðu sín skurðgoð og höfðu gaman af. Dæmigerðar borgir fyrir borgir samtímans.

Sá dagur mun koma, að Guð mun eyða Sódómu samtímans.      

-kirkjur heimsins eru komnar það langt frá Guði og sannleikanum um orð Guðs, að þær eru farnar að gifta karlmenn með karlmönnum og konur með konur. Hvað er að ske? á okkar samtíma. Prestar og kennimenn þessa heims, eru svo blindir fyrir hinu hreina orði Guðs og sannleika lífsins. Menn sem eiga að standa vörð um Guðs orð, en hafa sjálfir afneitað Guði og gefið sig á vald sinna eigin fýsna og holdsins vilja.

-Ég er ekkert hissa á því að skaparinn vilji eyða þessum heimi og þessari sköpun. Menn þekkja ekki sannleikann og geta ekki gert mun á sannleika og á lyginni. Vegna þess að þeir leiðast af lyginni og trúa á lygina og reyða sig á hana. Hvernig er hægt að sjá sannleikann í réttu ljósi? Þegar menn eru þetta villtir og komnir þetta langt frá Guði og sannleikanum.

En orðið verður að ganga í uppfyllingu og það sem skrifað er. Áður enn að lokum er komið. Öll tákn þessa tíma benda á að það er að verða komið að hinum umrædda degi. Að Guð mun eyða Sódómu samtímans.

Add comment janúar 10th, 2010

Sagan um Nóa og hans daga.

Nói Var mikill Guðsmaður og hann óttaðist Guð, og byggði eina örk, eftir Guðs opinberun sem hann fékk og hann gekk eftir í sinni trú. Á þeim tíma þekktist engin Biblía. Guðs orð var borið fram eftir munnlegum sögum sem gengu frá manni til manns. Kynslóð eftir kynslóð, allt þar til að Nói fékk opinberun um syndaflóðið og hann skyldi byggja örk. Það voru sennilega liðin um 2500 ár frá sköpunarsögunni, þar til að komið var að syndaflóðinu.

-Á þessum tíma var algengt að menn lifðu um og yfir 900-ár. Nói hefur verið kominn nærri 500-ára aldur sinn og er hann byrjaði að byggja örkina. Því það segir þannig í orðinu, að Nói hafi lifað í 350-ár eftir flóðið og hann var 950-ára gamall, er hann andaðist.  Það segir að auki að það tók Nóa og hans fjölskyldu, um 100 ár að byggja örkina. Sjálf örkin var engin smásmíði að lengd. Örkin var um 300 álnir að lengd, breidd hennar 50 álnir og dýpin var 30 álnir. Örkin hefur verið á stærð við íslensku fragtskipin. Örkin var byggð af Góferviði og þakin af bráðnu biki að utan og innan verðu.

-Guð var með Nóa og hans fjölskyldu. Fyrir trú, þá byggði Nói örkina, og það eftir ljósi Guðs og opinberun orðs og drauma. Það hefur þurft gríðarlega mikla trú, til að ganga út á trú sína og byggja örk, langt inn á landi. Maður má alveg gera sér, það í hugarlund, að fólk hafi gert grín að Nóa og hans trú um örk og syndaflóð. Allavega er það þannig, það er alltaf gert grín af þeim sem eru öðruvísi og sérstaklega þeim sem þora að standa á trú sinni.  

Hvaðan kom allt vatnið?

-Hvaðan kom allt vatnið sem huldi jörðina í fleiri mánuði? Nú skulum við tala á mannamáli. Vísindamenn samtímans, hafa fundið mikil vötn sem liggja undir heimsplötunum. Okkar heimsálfur eru sem fljótandi plötur. Annað. Það hefur líka fundyst vatn útí alheiminum. Öll höfum við heyrt talað um geimsteina og óttan um, ef nú einn slíkur steinn kæmi óþægilega nálægt jörðinni. Vinir. Þetta eru ekki allt steinar. Sumir af þessum steinum, eru bara risa stór ísbjörg. Vísindamenn hafa einnig fundið nýlega vatn á tunglinu og á Mars og á fleirum tunglum Satúrnus.

-1. Mósebók 7,11….á þeim degi opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og allar flóðgáttir himins lukust upp. Er nokkuð hægt að gera sér það í hugarlund. Að ef að allar uppsprettur undirdjúpanna byrjuðu að dæla öllu vatninu sem liggur undir heimsplötunum fram og risa ísbjörg frá alheiminum hjálpuðu til með að hella rigningu niður frá skýjahæð. Er þetta raunhæft? (ATH: Við Íslendingar notum mikið af heitu vatni, sem er pumpað upp frá sprungum undirdjúpanna, og það hafa fundyst stórvötn undir jarðskorpu Kína lands)

-Það má vel gera sér í grein fyrir, að það haf virkilega gengið á ýmsu, er Guð opnaði fyrir flóðgáttir himins og vatnið dundi niður sem risa hagl. Og vötn undirdjúpanna streymdu fram og breyttu smá lækjum í stórfljót. Það voru  virkilega miklir kraftar í náttúrunni sem hafi farið á stað, í upphafi flóðsins. Sköpunin nötraði á þessum dögum.

 -Vinir. Þetta er auðvitað bara lítil og skemmtileg saga, en áhugaverð og hefur fengið mikla athygli í gegnum trúarsöguna. En spurningin er. Er til virkilega til nógu mikið vatn í alheiminum  í dag, til að drekkja þessa plánetu einu sinni enn?

Myndbandið hér fyrir neðan er afar merkilegt.

-Þetta YouTube mundband hér fyrir neðan er 2 hluti af sex í seríunni um Nóa flóðið, frá Dicovery Channel. Myndband sem að allir ættu að sjá. Að vísu er eitt atriði sem fellur ekki að minni skoðun. Það er með ísbjörgin sem koma að jörðu frá alheiminum. Ísinn ætti að bráðna að fullu, er ísbjörgin koma inn í andrúmsloft jarðar, enn ekki koma sem geimsteinar sem valda miklum usla á jörðinni. Það er mikill munur á geimís eða þá á geimsteini. Geimísinn ætti að bráðna við lofthjúp jarðar,og ná þannig að mynda stórrigningar.

-Annað sem við mættum ath. Yfirborð jarðar hefur verið allt öðruvísi að líta yfir, en er í dag. Fjöll hafa ekki verið það há, sem þau eru víða í dag. Jarðskorpan er á stöðugri hreyfingu og með mælingum, þá hefur verið hægt að sjá hvernig fjöllin hækka sig mismikið frá stað til staðar. Þannig að það er alveg öruggt. Landskapið hefur verið allt öðruvísi enn er í dag.

-Í raun vantar sáralítið, til að vísindin viðurkenni söguna um Nóaflóðið. Það hefur verið athugað það mikið og margar sannanir hafa verið sóttar heim og púsluspilið er við að smella saman. Það vantar bara síðasta prikið. Hvaðan kom allt vatnið?

YouTube Preview Image

Add comment janúar 4th, 2010

Hvernig verður árið 2010?

Hvernig verður árið 2010? Margir reyna að spá framtíðina og komast ansi nærri sannleikanum. Ekki er ég neinn spámaður. En samt langar mig að reyna að spá í árið 2010.

-Í fyrsta lagi, árið 2010 verður í sjálfu sér ekkert mikið öðruvísi enn árið sem er að líða. Stríð, hryðjuverk, mótmælagöngur og slagsmál á götum úti. Þetta er það sem verður í daglegum fréttum út næsta árið. Í sjálfu sér engin breyting þar á, miðað við árið 2009. Þannig hafa fréttir í raun og verið síðan 11-sept 2001. Hryðjuverk, stríð og slagsmál um völd og persónulega yfirburði í fjármálaheiminum. Græðgi og mikilmennska hefur sett sinn svip á fyrsta áratug þessara aldar. Verður einhver breyting þar, á næstunni? Svar: Nei. Því miður. Lögleysið mun frekar magnast, enn hitt. Menn munu halda áfram að slá hvorn annan niður, vegna sinnar eigin fégræðgi og mikilmennskubrjálæðis.Svar: Nei. Því miður. Lögleysið Mun frekar magnast, enn Hitt. Menn munu halda áfram að sla hvorn annan niður, vegna sinnar eigin fégræðgi og mikilmennskubrjálæðis.

Hvað þá. Er eitthvað annað sem mun setja svip sinn á árið 2010?

-Atvinnuleysi mun halda áfram að aukast á árinu og fleiri munu finna fyrir fátækt og auraleysis. Ástand kreppunnar mun sitja í þjóðfélaginu, þrjú til fjögur ár enn, ef ekkert annað kemur henni til hjálpar. Atvinnuleysið mun aukast á Íslandi, sem og annarstaðar í Evrópu.

-Fleiri munu verða sendir á vígvöllinn og það sér ekki fyrir endanum á þessu hryðjuverkastríði, þó að annað sé sagt og loforð séu gefin, um brotthvarf NATO hermanna frá Afganistan og Írak. Einhvernvegin hef ég þá tilfinningu, að fleiri þjóðir muni blandast í stríðsátökin. Td. Íran og Yemen.  Innrás í Íran, gæti sett punktinn á eftir hryðjuverkastríðið og komið á friði í þessum hluta heimsins. En það stríð, myndi líka kosta mörg mannslíf, af beggja hálfu. að Annað sé sagt og loforð seu gefin, um brotthvarf NATO hermanna frá Afganistan og Irak. Einhvernvegin hef ég þá tilfinningu, að Fleiri þjóðir muni blandast í stríðsátökin. Td. Iran og Yemen. Innrás i Iran, gæti sett punktinn á eftir hryðjuverkastríðið og komið á friði í þessum hluta heimsins. En Sig stríð, myndi Lika Kosta morg mannslíf, af beggja hálfu.

Umhverfið.

-Náttúruharmfarir verða með á árinu 2010. Flóð og miklar rigningar munu verða í sumar  og það verður erfiðra að fá ferskt vatn sumstaðar. Pólar ísinn mun halda áfram að bráðna og mun ísinn bráðna að fullu árið 2012. Mannskæðir jarðskjálftar hafa stundum komið upp, og það má alveg gera ráð fyrir einum slíkum, á árinu 2010, einhverstaðar í austurlöndum.

Pólitík.

-Evrópusambandið mun verða sterkara á árinu og sambandið vefur upp á sig, allskonar sáttmálum, í gegnum tíðina og sá tími mun koma, að sambandið flytur sínar höfuðstöðvar til Róm. Með svonefndum Rómarsáttmála. Það er nokkuð sem mun ske, nú innan fárra ára, er sambandið verður orðið mun stærra, en það er í dag. Ekki á árinu 2010. Gæti skeð á árunum 2015-2020. Rómarríkið verður endureyst og heiminum verður stjórnað frá Róm. Þá er orðið ansi stutt í að antikristur komi fram. Hann mun fá mikið vald frá kirkjunni og sá möguleiki er líka fyrir hendi, að hann komi fram sem Páfinn í Róm. Hann mun heilla þjóðir heimsins, með sínum gjöfum og undrum í tali og verki. Gjafir hans verða svosem bílar og hús til næstum allra. Allir munu njóta góðs af hans gjöfum, þar til að hann fær þjóðir heimsins, til að beygja hné sín fyrir sér. Þar með fær hann efnahagshjólin til að snúast aftur á fullu, eftir kreppuástandið, sem mun vara enn um nokkur fá ár. Kirkja heimsins mun borga þessar gjafir, td. Kaþólska kirkjan og sú Lúterska. Hans markmið er að fá allar þjóðir heimsins til að afneita kristinni trú og beygja hné sín fyrir sér. Margir munu beygja hné sín fyrir honum og prísa hann, fyrir þau undur og stórtákn sem fylgja honum. Hann mun fá Sameinaðuþjóðirnar til að semja nýja Biblíu, sem verður sniðin eftir þörfum samtímans og mun falla vel í munstur antikrists. Þar með er endir allra hluta í nánd, er menn munu hrópa. Friður og engin hætta.

Add comment desember 31st, 2009

Previous Posts


Feeds

Tenglar

Calendar

júlí 2010
M Þ M F F L S
« apr    
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031