header image
 

ÆTLIÐ ÞIÐ LÍKA AÐ LÁTA ÞETTA YFIR YKKUR GANGA??

Ég hef sjaldan verið jafn vonlaus um upprisu Íslands eins og ég hef verið s.l sólarhring.
Ég hef bundið vonir mínar við Evu Joly og óháðu rannsóknarnefndina…… sem verður svo auðvitað ekkert óháð ef frumvarp forsætisnefndar nær fram að ganga.
En samkvæmt henni eiga níu þingmenn að ákveða hvaða mál úr niðurstöðum skýrslu “óháðu rannsóknarnefndarinnar” á að gera opinber og hvaða ekki. Hverja á að sækja til saka og hverja ekki. Til þessa hafa þingmennirnir níu ótakmarkaðan tíma.
Og það myndi ekki einu sinni hjálpa okkur þó innan þessarar þingmannanefndar myndu slæðast einhverjir heiðarlegir aðilar…….. þeir þurfa allir að samþykkja allt einróma.

Mig langar að öskra!

Ef að landar mínir láta þetta yfir sig ganga án þess að gera allt til að koma í veg fyrir það…… og þá meina ég allt… þá eigum við ekki séns

_______________________________________________________

Yfirlýsing Borgarahreyfingarinnar vegna málsins

Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og miklum vonbrigðum með þá fyrirætlun forsætisnefndar Alþingis að ætla níu manna pólitískt skipaðri þingnefnd að ákveða einróma hvernig unnið verður úr niðurstöðum rannsóknarnefndar um bankahrunið.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að fela alþingismönnum sjálfum það vandasama hlutverk að meta ábyrgð flokksfélaga sinna, t.d. hvort ráðherrar í fyrri ríkisstjórnum hafi með aðgerðum sínum eða andvaraleysi gerst bortlegir við lög. Ólíklegt verður að teljast að samhljóða niðurstaða nefndarinnar skili réttlátri málsmeðferð.

Samkvæmt reglum réttarríkissins er enginn hafinn yfir lög, hvorki ríkisstjórnir, ráðherrar, Alþingi, alþingismenn, stofnanir stjórnsýslunnar né dómararnir sjálfir. 65. grein stjórnarskrár lýðveldisins segir m.a. að allir skuli vera jafnir fyrir lögum.
Sú hugmynd að láta alþingismenn sjálfa skera úr um ráðherraábyrgð er engu skárri en að fela Viðskiptaráði að skera úr um ábyrgð fjármálastofnana eða forstjóra þeirra. Þess vegna verður það að vera hafið yfir allan vafa að allir atburðir sem falla undir refsiverða háttsemi berist frá rannsóknarnefndinni beint til embættis sérstaks saksóknara án tilstuðlan pólitískra milligöngumanna.

Með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða.

Vill Borgarahreyfingin beina þeim eindregnu tilmælum til alþingismanna og allra sem rannsókninni tengjast að virða kröfur þjóðarinnar um heiðarleika, réttlæti, virðingu, jafnrétti, ábyrgð og annað sem nýafstaðinn þjóðfundur leiddi í ljós.

Voðalega getur maður verið grænn….

Ég hef einhvernveginn alltaf haldið að Plötu- og Bókatíðindi væri svona tæmandi listi yfir það sem væri að koma út.

……nokkurskonar biblía fyrir okkur neytendur.

En útgefendur þurfa að panta pláss fyrir sína plötu/bók og það er ekkert endalaust framboð af plássi.

Nú veit ég að fyrir algjöran klaufaskap er diskurinn sem ég vil veg hvers mestan er ekki í Plötutíðindum af því að einhver klikkaði á að panta pláss

Og ég velti því fyrir mér hvað það sé mikið af  frábæru efni þarna úti sem hefur farið framhjá mér af því að ég er ein af þeim sem hef notað þessi tíðindi eins og biblíu bóka-tónlistarsjúklings
Ég ætla að segja ykkur meira frá disk Fjallabræðra seinna.. :)

Bloggheima-blogg…

Ég ætla nú að nota þessa fyrstu bloggfærslu mína í Bloggheimum til að þakka Guðnýju og Agnari fyrir alla vinnuna sem þau hafa lagt í að veita mér og öðrum óháðan vettvang til að argast og skemmta sér… og sumir öðrum.

Vonandi notfæra sér sem flestir sér þennan vettvang og megi hann verða til gagns og gleði. *skála í kampavíni*

kv. Heiða