ÆTLIÐ ÞIÐ LÍKA AÐ LÁTA ÞETTA YFIR YKKUR GANGA??
Ég hef sjaldan verið jafn vonlaus um upprisu Íslands eins og ég hef verið s.l sólarhring.
Ég hef bundið vonir mínar við Evu Joly og óháðu rannsóknarnefndina…… sem verður svo auðvitað ekkert óháð ef frumvarp forsætisnefndar nær fram að ganga.
En samkvæmt henni eiga níu þingmenn að ákveða hvaða mál úr niðurstöðum skýrslu “óháðu rannsóknarnefndarinnar” á að gera opinber og hvaða ekki. Hverja á að sækja til saka og hverja ekki. Til þessa hafa þingmennirnir níu ótakmarkaðan tíma.
Og það myndi ekki einu sinni hjálpa okkur þó innan þessarar þingmannanefndar myndu slæðast einhverjir heiðarlegir aðilar…….. þeir þurfa allir að samþykkja allt einróma.
Mig langar að öskra!
Ef að landar mínir láta þetta yfir sig ganga án þess að gera allt til að koma í veg fyrir það…… og þá meina ég allt… þá eigum við ekki séns
_______________________________________________________
Yfirlýsing Borgarahreyfingarinnar vegna málsins
Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og miklum vonbrigðum með þá fyrirætlun forsætisnefndar Alþingis að ætla níu manna pólitískt skipaðri þingnefnd að ákveða einróma hvernig unnið verður úr niðurstöðum rannsóknarnefndar um bankahrunið.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að fela alþingismönnum sjálfum það vandasama hlutverk að meta ábyrgð flokksfélaga sinna, t.d. hvort ráðherrar í fyrri ríkisstjórnum hafi með aðgerðum sínum eða andvaraleysi gerst bortlegir við lög. Ólíklegt verður að teljast að samhljóða niðurstaða nefndarinnar skili réttlátri málsmeðferð.
Samkvæmt reglum réttarríkissins er enginn hafinn yfir lög, hvorki ríkisstjórnir, ráðherrar, Alþingi, alþingismenn, stofnanir stjórnsýslunnar né dómararnir sjálfir. 65. grein stjórnarskrár lýðveldisins segir m.a. að allir skuli vera jafnir fyrir lögum.
Sú hugmynd að láta alþingismenn sjálfa skera úr um ráðherraábyrgð er engu skárri en að fela Viðskiptaráði að skera úr um ábyrgð fjármálastofnana eða forstjóra þeirra. Þess vegna verður það að vera hafið yfir allan vafa að allir atburðir sem falla undir refsiverða háttsemi berist frá rannsóknarnefndinni beint til embættis sérstaks saksóknara án tilstuðlan pólitískra milligöngumanna.
Með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða.
Vill Borgarahreyfingin beina þeim eindregnu tilmælum til alþingismanna og allra sem rannsókninni tengjast að virða kröfur þjóðarinnar um heiðarleika, réttlæti, virðingu, jafnrétti, ábyrgð og annað sem nýafstaðinn þjóðfundur leiddi í ljós.


Nei við ætlum ekki !
Ekki sátt og til í hvað sem er!
Var við öðru að búast!Það þarf að vernda vini og vandamenn gegn vænusjúkum lýð!!!
Nei, við munum ekki sætta okkur við neitt slöfurmannlegt í þessu sambandi.
Ég tek undir vonleysið með þér. Síðan hvenær hafa 9 manna þingnefndir verið sammála um nokkuð…
Eitthvað held ég að engin þessarra níu hrunvoma muni finna sannleiksbaugin, sem siðsmáir Hrunibbar munu með klækjum og undanbrögðum lauma til Siðbótamordor til að fleygja honum í Fyrningarpyttinn á Þjóðingleymirissufjalli.
Þetta verður epískt verk, tekur alveg fjögur ár í vinnslu. Við bíðum væntanlega með öndina í hálsinum á meðan.