Ritstjórn Bloggheima

Þegar farið var af stað í þann leiðangur að koma þessum vef á laggirnar, var ákveðið einnig að nauðsynlegt væri að hafa skýra ritstjórnarstefnu svo fyrirbyggja mætti vandamál sem kæmu upp, og einnig til að sjá til þess að orðspor vefsins yrði á þá leið að þar færu fram málefnalegar umræður fólks með mismunandi skoðanir. Því hafa aðstandendur ákveðið að setja fram gagnsæja og skýra stefnu sem verði reynt að framfylgja eins og kostur er með aðstoð notenda.

Bloggheimar er frjáls og óháður bloggvefur þar sem fólki gefst kostur á að tjá sig um sín hjartans mál með málefnalegheit að leiðarljósi.

Bloggheimar munu ekki láta hagsmuni fyrirtækja, auglýsenda, stjórnmálaflokka eða annarra hagsmunasamtaka hafa áhrif á ritstjórn sína, heldur leitast við að hafa ritstjórnina sem hlutlausasta.

Bloggheimar munu ekki skipta sér almennt af skoðanaskiptum og umræðum, sem fara fram á málefnalegan hátt nema þau brjóti í bága við lög eða þyki fara út fyrir öll velsæmismörk.

Ábyrgð á skrifum og ummælum við skrif, er alfarið á ábyrgð notenda. Bloggheimar ætlast til þess að notendur sjái til þess sjálfir að skrif séu vönduð og þeim til sóma. Bloggheimar telja að skrif með gífuryrðum og stóryrðum dæmi sig yfirleitt sjálf og persónuna sem þau rita.

Ef kvartanir eða athugasemdir berast vegna skrifa eða ummæla til Bloggheima, þá mun ritstjórn vefsins skoða hvert tilfelli fyrir sig, með tilliti til málefnalegheita og hlutleysi að leiðarljósi. Ef ritstjórn telur ástæðu til inngripa, þá mun hún beina tilmælum til síðunotenda sjálfs að fjarlægja eða breyta skrifum/ummælum. Ef viðkomandi verður ekki við þeirri beiðni mun ritstjórnin sjálf grípa til sinna ráða til varnar málefnalegheitum.

Ástæður til inngripa geta m.a. verið gróft persónuníð, skipulagður hatursáróður gegn minnihlutahópum, birting klámefnis og höfundarréttarvarins efnis sem ólöglegt er að dreifa samkvæmt lögum.

Ef Bloggheimar neyðast til að grípa til aðgerða vegna ummæla eða skrifa þá mun reynt að koma á framfæri viðhlítandi skýringu með einu innleggi á viðkomandi síðu. Bloggheimar mun þó ekki taka þátt í argaþrasi eða ritdeilum út af inngripum sínum.

Bloggheimar hvetja sem flesta til að skrifa undir nafni ásamt því að blogghöfundar láti á einhvenr hátt nafn sitt koma fram á forsíðu og/eða síðu sem kallast Um höfund. Bloggheimar mun þó virða rétt fólks til að skrifa nafnlaust vegna ytri ástæðna á borð við þjóðfélagsstöðu, atvinnumála eða búsetu.

Þó nafnlaus skrif séu leyfileg, þá gera Bloggheimar ríkari kröfur til þeirra nafnlausu um málefnalegheit og væntir þess að þeir einblíni á að afsanna það að nafnleysi og níðskrif sé samnefnari. Notendur sem gera út á nafnlaus níðskrif og svokallaðan tröllskap munu eiga á hættu að verða úthýst tafarlaust.

Notendur sem verða uppvísir að því að brjóta reglur síendurtekið án þess að gera bragarbót á hátterni sínu, munu eiga á hættu að lokað verði fyrir aðgang þeirra á meðan ákveðið er hvað skuli gera með tilliti til framtíðarveru þeirra á vefnum.

Einnig eiga notendur sem standa fyrir svæsnu níði og/eða hótunum um ofbeldi ásamt öðru slíku, hættu á því að vera úthýst til frambúðar, án andmælaréttar.

Af gefnu tilefni annars staðar frá, þá munu Bloggheimar áskilja sér fullan rétt til að hafna og/eða úthýsa aðilum sem hafa þverbrotið reglur annarra spjall- og bloggvefja með þeim afleiðingum að þeim hefur verið úthýst, eða hagað sér á þann hátt að orðspor Bloggheima sem málefnalegs vettvangs, muni bera skaða af vegna skrifa þeirra, framferðis og veru á vefnum.

Ritstjórn Bloggheima áskilur sér þann rétt að bæta og breyta ritstjórnarstefnu ef þörf krefur. Verða þær breytingar kynntar ásamt ástæðum sem liggja að baki.

Að lokum óskar ritstjórn Bloggheima þess að ef notendur hafa athugasemdir eða vilji koma ábendingum eða kvörtunum á framfæri, að hika ekki við það að senda ritstjórn og vefstjórn póst um það sem betur má fara.

Bloggheimar er vefur fyrir einstaklinga sem vilja opna sínar eigin bloggsíður. Til þess að mega skrifa á vefinn, ber notendum að gangast undir eftirfarandi reglur og skilmála:

1. Notandi velur sér notandanafn og lykilorð við nýskráningu. Notandi ber ábyrgð á því að lykilorði sé ekki deilt með öðrum og ber því fulla ábyrgð á því sem framkvæmt er eftir innskráningu.

2. Ef notandi bloggsíðu gefur öðrum heimild til að skrifa á síðuna ber hann fulla ábyrgð á skrifunum. Á það bæði við bloggskrif og athugasemdir.

3. Með því að ljúka innskráningu, samþykkir notandi þá skilmála og reglur sem Bloggheimar setur fram. Áskilja Bloggheimar sér fullan rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.

4. Notendum er frjálst að koma fram undir dulnefni á bloggi sínu, en ekki er heimilt að villa á sér heimildir. Verður einhver uppvís að slíku, verður lokað fyrir aðgang viðkomandi af hálfu Bloggheima án nokkurrar viðvörunar.  Bloggheimar mælist þó til að fólk skrifi undir sínu rétta nafni frekar en dulnefnum.

5. Notkun á texta, skjölum, hugbúnaði, myndböndum, tónlist og öðru höfundarréttarvörðu efni er óheimilt nema með samþykki rétthafa. Verður slíkt efni fjarlægt að beiðni rétthafa.

6. Ef notandi bloggsíðu brýtur ítrekað reglu um að setja höfundarréttarvarið efni, þá áskilja Bloggheimar sér allan rétt til að loka fyrir síðu viðkomandi.

7. Óheimilt er með ölllu að birta efni á síðum bloggheima sem særir blygðunarsemi fólks s.s. klám og hrottalegt ofbeldi sem varðar við lög. Munu Bloggheimar grípa til viðeigandi aðgerða og fjarlægja efni ef ástæða þykir til.

8. Bloggheimar ber á engan hátt ábyrgð á því sem notandi setur inn á bloggsíðu sína eða þeir sem heimsækja síðu hans. Öll skrif á síðu notanda eru á hans ábyrgð, ef mál skyldu rísa upp vegna skrifa viðkomandi notanda og athugasemda á síðu hans.

9. Með því að staðfesta skilmála og reglur Bloggheima, þá staðfestir notandi ábyrgð sína á öllum skrifum, myndbirtingum, myndbandabirtingum og öðru efni sem birtist á síðu hans.

10. Óheimilt er með öllu að dreifa ruslpósti(SPAM) á vefnum, hvort sem það er í gegnum bloggfærslur, athugasemdir við skrif eða á aðra vegu. Einnig er óheimilt að nota vefinn í atvinnuskyni eða í auglýsingastarfsemi nema að fengnu sérstöku leyfi frá ritstjórn og er þá um sérstök undantekningartilfelli að ræða. Þó er frjálsum félagasamtökum eða góðgerðarsamtökum það heimilt að halda út síðu og birta tilkynningar um starfsemi sína.

11. Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni, áreiti, hótunum, níðskrifum eða nokkru öðru sem getur valdið saklausu fólki skaða. Notandi samþykkir sérstaklega að miðla ekki háði, rógi, smánun, ógnun eða ráðast á mann eða hóp manna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, í samræmi við ákvæði 233. Gr. A. Almennra hegningarlaga nr.19/1940.  Einstaklingar sem verða uppvísir að slíku, mega eiga von á að Bloggheimar grípi inn og loki fyrir aðgang ef Bloggheimar telja skrifin brjóta í bága við þessi lög.

12. Bloggheimar áskilja sér fullan rétt til þess að grípa inn í, ef notandi verður ekki við beiðni eða óskum um breytingar mjög ómálefnalegra skrifa(svokallaðs skítkasts) eða fjarlægingu meiðandi  ummæla, og fjarlægja/breyta slíku til hins betra. Þó munu Bloggheimar ekki skipta sér af skrifum eða skoðunum sem eru sett fram á málefnalegan hátt og mun reyna á hlutlausan hátt úrskurða hvort þörf sé á að taka á kvörtunum vegna skrifa/athugasemda.

13. Bloggheimar áskilja sér rétt til að loka síðu notanda að hluta eða með öllu, án þess að til skaðabótaréttar komi af hálfu notanda eða þriðja aðila. Telst sá réttur samþykktur með stofnun notanda á vefnum.

14. Bloggheimar ber enga ábyrgð á tjóni, vegna bilunar í tæknibúnaði eða óvirkrar þjónustu vefsins. Bloggheimar ber heldur enga ábyrgð á glötuðum gögnum eða skrifum sem glatast af þessum orsökum eða öðrum.

15. Bloggheimar áskila sér fullan rétt til þess að hafna notendum og úthýsa, sem Bloggheimar telja að geti skaðað vefinn eða haft slæm áhrif á ímynd hans.

16. Bloggheimar áskila sér rétt til að loka fyrir aðgang notenda ef hann verður uppvís að því að tröllskap eða koma fram undir mismunandi notendanöfnun í slíkum tilgangi.