Sund
10. desember 2009 ritaði skuggalest
Sund er góð skemmtun. Margir kvikmyndagerðarmenn hafa heillast af vatni og sundi og athöfnum fólks í vatni, og hér eru nokkur dæmi.
Jean Vigo -Taris, roi de l’eau (1931)
Séníið og anarkistinn Jean Vigo, sem dó langt fyrir aldur fram, gerði þessa stuttmynd árið 1931. Á yfirborðinu er þetta heimildarmynd um Jean Taris, franskan sundkappa. Vigo sýnir sundtækni hans í smáatriðum frá ýmsum hliðum, en það er þó ekki sundtækni kappans sem Vigo heillast af. Endurtekningar og sjónarhorn gefa athöfnum sundkappans súrrealískt yfirbragð og hreyfingar og svipbrigði kappans verða oft nánast afkáraleg.
Busby Berkeley – úr Footlight Parade (1933)
Annað séní. Hér fær kvenlíkaminn alla athyglina með tilheyrandi kynferðislegum (og karllægum) undirtóni. Eiginlega fær “hlutgerving” hér nýja merkingu.
Leni Riefenstahl – úr Olympia (1936)
Enn annað séní. Nálgun Riefenstahl er allt önnur. Hér er glæsileiki (karl)mannslíkamans aðalatriðið, og með kvikmyndatöku og klippingu nær Riefenstahl að láta dýfingarkappana hefja sig yfir þyngdaraflið og verða nánast goðumlíkir. Það er auðvitað vel í takt við áróðursmarkmið myndarinnar, en útkoman er þó svo mögnuð að hún nær nánast að hefja sig yfir vafasaman upprunann.
Frank Perry – The Swimmer (1968)
Maður (Burt Lancaster) ákveður að synda heim til sín í gegnum allar laugar sem verða á vegi hans. Hljómar eins og uppskrift að tilraunakenndri og listrænni mynd. Nei, ekki aldeilis.
Kieslowski – úr Blue
Blue fjallar um Julie sem reynir að takast á við lífið eftir að hafa lifað af bílslys þar sem eiginmaður hennar og dóttir dóu. Sundlaugin, þar sem Julie er alltaf ein og böðuð bláu ljósi, verður athvarf hennar og sýnir á myndrænan hátt hvernig persóna Julie lokar sig af og hverfur inn í sig.
Krisztina Goda – Szabadsag Szerelem (Children of Glory) (2006)
Árið 1956 réðust Sovétmenn inn í Ungverjaland. Á ólympíuleikum það sama ár mættust Ungverjar og Sovétmenn í úrslitum í sundknattleik og er sagt að þetta sé ofbeldisfyllsti íþróttaleikur sem sögur fara af. Hér verður sundlaugin að vígvelli, þar sem fjandþjóðir takast á.
Og auðvitað er óhjákvæmilegt, svona miðað við það að fólk er hálfnakið, að sundlaugar verið vettvangur ástarleikja og kynlífs:
John McNaughton – Wild Things
Ljúkum þessu svo á nokkuð léttari nótum:
Mr. Bean goes to the pool




