Spurt og svarað
Ég skrifa undir nafni og vill láta nafn mitt sjást á síðunni, hvað geri ég?
Svar: Þú hefur þrjá möguleika. Þú getur haft nafn þitt sem heiti bloggs, þú getur látið texta birtast á aðalsíðunni og að lokum haft undirsíðu sem kallast Um höfund en við hvetjum til þess að fólk útbúi slíka síðu. Til að setja texta inn á hliðardálk síðunnar með nafni, þá þarf að fara í Widgets og draga Text widget sem finnst í stjórnborðinu inn í hliðardálk.
…
Hvernig stofna ég undirsíðuna Um höfund og aðrar undirsíður á bloggi mínu?
Svar: Farðu í Stjórnborðið þitt og smelltu á Síður. Því næst skaltu smella á Add New og þá opnast ritþór þar sem þú getur sett nafn síðu og texta inn.
…
Má ég skrifa nafnlaust?
Svar: Já, við virðum þann rétt þó við hvetjum til og teljum æskilegra að fólk skrifi undir nafni. Aftur á móti gerum við ríkari kröfur til þeirra sem skrifa nafnlaust um að þeir vandi skrif sín og séu málefnalegir með það að leiðarljósi að hrekja þá staðhæfingu að nafnlaus skríf séu samnefnari fyrir níðskrif.
…
Get ég fengið annað blogg til viðbótar vegna ákveðinnar ástæðu?
Svar: Hafðu samband og við munum þá aðstoða þig við það.
…
Get ég stillt athugasemdakerfið þannig að nafn og virkt netfang þurfi, til að geta skilið eftir athugasemd?
Svar: Já, það er hægt. Ef þú ferð í Stillingar>Umræða þá má haka við eftirfarandi:“ Höfundur ummæla verður að tilgreina nafn og netfang“. Einnig er hægt að stilla fleiri möguleika varðandi athugasemdir og þegar því er lokið þá muna að smella á Vista breytingar-hnappinn.
…
Ég finn ekki neina þemu sem mig langar í, er hægt að fá fleiri?
Svar: Hafðu samband við okkur og við munum athuga hvort við getum fundið sniðmátsþemu sem hentar þér.
…
Er einhvers staðar villuleit í ritþórnum?
Svar: Nei, því miður. Við erum að athuga með lausnir á því en bendum á vefur.puki.is eða elias.rhi.hi.is/stavsedning þar til niðurstaða fæst í því.
…
Hvað hef ég stórt svæði fyrir myndir o.fl. gögn og get ég stækkað það?
Svar: Hefðbundið svæði notanda takmarkast við 200MB geymslupláss. Ef notandi telur sig þurfa á stærra svæði að halda, þá getur hann stækkað svæðið gegn vægu gjaldi.
…
Hversvegna birtist ekki mynd af mér heldur aðeins grár kall þrátt fyrir að ég sé búin(n) að setja mynd inn?
Svar: Hver notandi getur verið með fleiri en eitt blogg. Það er því sérstök mynd fyrir bloggið og sérstök mynd fyrir notandann. Flestir eru hinsvegar eingöngu með eitt blogg og vilja væntanlega hafa sömu mynd á báðum stöðum. Til að setja inn mynd fyrir bloggið ferðu í Settings>Blog Avatar og hleður myndinni inn. Til að setja inn mynd fyrir þig sem notanda ferðu í Users(Notendur)>Your Avatar og hleður myndinni inn. Eftir þetta ætti myndin að sjást bæði á forsíðu Bloggheima og undir listanum yfir blogg.
…
Hvernig get ég skoðað tölfræðina á bak við síðuna?
Svar: Sem stendur þá bjóðum við upp á tvo möguleika til þess. Annarsvegar höfum við Google analytics sem er frekar viðamikið tól og svo hinsvegar Statpress íbót sem allir notendur hafa aðgang að. Notendur verða að virkja Google Analytics sjálfir en Statpress virkjast sjálfkrafa við stofnun bloggs..
Statpress birtist neðst í dálknum vinstra megin. Notandi getur skoðað ýmsar tölfræðiupplýsingar með heimsóknum og hvaðan þær koma.
Google analytics er svo tól þar sem fólk þarf að fara í gegnum ferli hjá Google og vísum við sem stendur á leiðbeiningar þeirra. Til að virkja það tól þarf að skrá sig hjá þeim og fá „tracking cookie“ sem er stafaruna sem er vistuð inn í dálk sem finnst undir Yfirlit-Settings-Google Analytics, og er hægt að byrja skráningarferlið hjá Google þar.
…
Hversvegna sést Just another Bloggheimar weblog í heiti bloggsins? Hvernig losna ég við það?
Svar: Ef þú ferð í Yfirlit-Settings-General þá færðu upp skjámynd þar sem grunnupplýsingar um bloggið finnast. Þar er dálkur sem kallast tag-line sem er undirtexti bloggheitis og er hægt að breyta því að vild. Athuga að smella á Apply eftir allar slíkar breytingar.
…
Hvernig set ég myndbönd inn?
Svar: Í ritþórnum má finna margskonar hnappa þar sem þú getur sett inn myndbönd frá t.d. Youtube eða Google Video. Einnig er hægt að smella á hnapp fyrir ofan sem heitir Insert Media.
…
Hvernig get ég fengið fleiri valmöguleika í ritþórinn?
Svar: Þú getur smellt á á hnapp sem kallast Show/Hide Kitchen sink. Við það bætist aukalína í ritþórinn með fleiri möguleikum.
…
Get ég sett inn texta úr Word?
Svar: Já, það er hægt. Smelltu á hnappinn Paste from Word, afritaðu textann úr Word inn í gluggann sem birtist og veldu Setja inn.
…
Hvernig get ég bætt inn t.d. dagatali og lista yfir síðustu blogg á síðuna mína?
Svar: Farðu inn í Yfirlit-Appearance-Widget. Undir Available Widgets er listi af ýmiskonar hlutum sem þú getur dregið yfir í Hliðardálk sem er hægra megin. Þar geturðu raðað þessu upp eftir smekk og gefið sumum þeirra nafn sem birtist á síðunni.
…
Get ég valið um hvorum megin hliðardálkurinn minn á blogginu, er?
Svar: Það er misjafnt eftir sniðmáti(þemum). Ef þú velur sniðmát sem býður upp á það að færa það til, þá má finna valmöguleika um það undir Appearance-Current Theme Options. Þar má einnig finna fleiri möguleika til að breyta blogginu samkvæmt sniðmátinu.
…
Hvernig get ég skipt um þemu?
Svar: Farðu í Appearance-Sniðmát og þar geturðu skoðað hvað er í boði. Sem stendur bjóðum við upp á um 70 mismunandi sniðmát en ef þú finnur ekki það sem þú leitar eða hefur eitthvað sérstakt í huga annars staðar frá, hafðu þá samband við okkur.
Bloggheimar