jún
15
Net- og vegalöggur á Alþingi
júní 15, 2010 | | Leave a Comment
Það sem ég er að einbeita mér að þessa dagana er nú bara að halda kjafti. Tuðið er allt lifandi að drepa eftir hrunið og þjóðin bloggar og tuðar eins og gjammandi hundur sem þyrfti að sparka duglega í. Hafandi sagt þetta, byrja ég nú að tuða:
Mér finnst furðulegt að hlusta á gullkornin í röðum hrökkva upp úr þingmönnum þessa dagana, hverju öðru furðulegra og eru margir þingmennirnir sem stefna hraðbyri á toppinn í þessum málum. En einn er þó öðrum jafningjum sínum jafnari í þessum efnum. Það er Tryggvi Þór Herbertsson. Hann missir út úr sér klassísk kaldastríðsumæli um Vatnalögin eins og að bera saman einkavæðingarleið D&B annars vegar og Sovétríkin og þjóðnýtingu hins vegar … og heldur virkilega að hann sé að fella flottar pólítískar keilur með þessu – veit maðurinn ekki að Kalda Stríðinu er lokið? Og veit maðurinn ekki að einkavæðingarferli hans manna var einn stærsti þátturinn í að fella Ísland fram af afgrunninu? Mér er spurn.
En nýjasta gullkorn Tryggva er í sambandi við fjármögnun vegakerfis Íslendinga. Hann segist sjá fyrir sér GPS kerfi í hvern einasta bíl á Íslandi þar sem fylgst verði með öllum ferðum bifreiða og mögulega sendur reikningur út um hver mánaðamót … er þetta ekki sá sami Tryggvi Þór sem staglast á “Netlöggunni Steingrími J Sigfússyni”?

Fyrir utan óhemju kostnað … og Stóra Bróður stæl á þessu … þá efast ég um að þetta sé fyrir það fyrsta löglegt og þess fyrir utan held ég að hin hræðilegu Sovétríki sem þjóðnýta vatnið hans Tryggva hefðu fagnað þessu til að fylgjast með þegnunum. Ég er ekki viss um að Tryggvi viti að hann er þingmaður á Alþingi Íslendinga árið 2010. Kannski telur hann sig stadda í rússnesku dúmunni fyrir nokkrum áratugum? Spyr sá sem ekki veit.
jún
7
Arnarfjörður og BP-olíuhamfarirnar sameinast!
júní 7, 2010 | | Leave a Comment
Í pípunum er olíuhreinsunarstöð í Arnarfirði – og svarið við aðfinnslum áhyggjufullra er að ef okkur sé svona annt um Arnarfjörðinn getum við bara flutt þangað en annars ætti aðfinnslugræningjar að halda kjafti. Önnur viðbrögð eru að það verði svo rómantískt að horfa yfir fjörðinn þegar ljósin af olíuhreinsunarstöðinni lýsa upp hafflötinn að þetta sé bara allt í góðu lagi!
Þetta minnir mann dálítið á Söru Palin þegar hún segir að BP olíu viðbjóðshamfarirnar séu ÖFGAUMHVERFISVERNDARSINNUM AÐ KENNA! Ef að ekki hefði verið mótmælt til að hafa áhrif á yfirtöku olíufélaganna á náttúrunni, hefði aldrei verið farið út í djúpboranir … hvað er hægt að segja við svona? Minnir mann dálítið á þá sem að skitu út flórinn og fjósið og vilja síðan reka fjósamanninn fyrir að vera sóði!
En fyrst að búið er að minnast á BP drulluna og Arnarfjarðarhreinsistöðina í sömu færslu má alveg fara alla leið. Ef farið er á ÞESSA SLÓÐ og slegið inn bildudalur, iceland í LOCATION kemur þetta út:

Huggulegt ekki satt? Setur BP olíulekann heldur betur í samhengi sem hægt er að skilja. Hvet ykkur til að fara á þessa síðu og slá inn Asolfsstadhir, Iceland í LOCATION gluggann og sjá hvað gerist.
maí
30
Þroskahefta fjölskyldan – Arrested Development
maí 30, 2010 | | Leave a Comment
Ég hef verið að horfa á fyrstu tvö tímabilin í hinni frábæru seríu Arrested development sem Fox stöðin framleiddi á sínum tíma. Endaleysan sem fjölskyldan meðvirka viðheldur minnir mig á eitthvað sem ég hef ekki náð að festa fingur á þar til í gær – þegar ég fylgdist með kosningasjónvarpi RÚV á netinu í gær. Ruglið og lygarnar, meðvirknin og gamli skotgrafahernaðurinn í stjórnmálunum á klakanum er eins og klipptur út úr þáttunum.
Þeir sem til seríunnar þekkja sjá kannski líkindin – þið hin sem ekki hafa séð snilldina og eruð ekki að fara í borgarstjórn með Jóni Gnarr getið örugglega leigt seríuna á betri vídeóleigum bæjarins. Gaman væri að sjá hvort fleiri sjá fjölskyldumynstrið endurtaka sig í íslenskri pólitík …
En þið hin sem eruð í viðræðum við Jón og bestu félagana hafið ekki tíma til að horfa á þetta því þið þurfið að sjá The Wire til að vera stjórntæk með Besta & co.
Innanbúðarmenn á Fox hafa tjáð mér að þeir hafi neyðst til að hætta eftir þriðju seríuna því allir voru farnir að vera með öllum, innan fjölskyldunnar og utan, sam-, sjálf-, gagn- og vélkynhneigð hafi verið látin óáreitt þar til að einn aðaleigandi stöðvarinnar hafi rekið augun í endursýndan þátt sem sýndi einn bróðurinn í rúminu með þjónustustúlku og ryksugu … eftir það hafi ekki verið grundvöllur fyrir frekari fjármögnun af hendi Fox. Það sé hin raunverulega ástæða fyrir því að ekki var haldið áfram framleiðslunni eftir þrjú tímabil.
Hér er færsla um snilldina af Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/Arrested_Development_(TV_series)
apr
16
Hálffulla glasið og mýtan um hamingjusömu Íslendingana.
apríl 16, 2010 | | Ein ummæli
Ef lífsviðhorf fólks er metið út frá hvort það segir glasið hálffullt eða hálftómt þegar glasið er í raun og veru hálft – bjartsýna háleita fólkið segir glasið hálffullt og svartsýna niðurlúta fólkið segir það hálftómt … hvað má þá segja um fólkið sem segir glasið vera hálffullt þegar það flóir yfir barma sína?
Þetta mega hinir gáfuðu setja í samband við hrunið á Íslandi að vild – og líka mýtuna um að Íslendingarnir séu hamingjusamasta þjóð í heimi. Hamingjusama fólkið svarar í síma þegar Gallup hringir og blaðrar um líðan sína – hinir svartsýnu liggja undir sæng og taka ekki símann þegar Gallup gerir kannanir. Þetta er álíka mikil vísindi og smjörklípan um flatskjáina og sameiginlega sekt Íslendinga hvað hrunið varðar. Verst hvað margir eru til í að lepja þetta óþynnt upp – gagnrýnislaust … kannski það skýri eitthvað í hruninu? Skortur á að sjá orsakasamhengi hlutanna og alger fjarvera gagnrýni í klappliðinu.
feb
1
Annað opið lettersbréf, og það til Mennta- og menningarmálaráðherra og fjármálaráðherra
febrúar 1, 2010 | | Ein ummæli
Kæru félagar, Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
Ég skrifa ykkur þetta opna lettersbréf í tilefni af umræðu sem átt
hefur sér stað í kringum málefni RÚV, gjörninga Páls Magnússonar og
orðræðu hans nú nýlega. Hluti af ástæðu þess að ég skrifa ykkur er
einnig sú að við skipan Magnúsar Stefánssonar í stjórn RÚV nú nýverið
virðist sem svo að ekki ríki skilningur á því hvernig málin ganga
fyrir sig í samskiptum Útvarpsstjórans og stjórnarinnar sem á að bera
ábyrgð og hafa eftirlit með efndum þjónustusamningsins um útvarp í
almannaþágu.
Ég bið ykkur að hafa það í huga þegar þið lesið eftirfarandi að á
endanum eruð það þið tvö sem berið ábyrgðina af gjörðum útvarpsstjóra
og efndum hans á samningnum gagnvart okkur þjóðinni sem þið þiggið
umboð tímabundið frá til að stýra landinu.
Steingrímur, þú ert fjármálaráðherra og ert því handhafi eina
hlutabréfsins í RÚV ohf. Þar af leiðir berð þú ábyrgð gagnvart
þjóðinni, hinum raunverulega eigenda RÚV.
Katrín, þú ert mennta- og menningarmálaráðherra og
þjónustusamningurinn er gerður við þitt ráðuneyti. Þar af leiðir berð
þú ábyrgð gagnvart okkur þjóðinni í hvurs almannaþágu
þjónustusamningurinn var gerður.
Þess vegna þurfið þið að skilja hvernig farið hefur verið á bak við
ykkur og forvera ykkar af RÚV ohf. Og í framhaldi af því: hvernig þið
komið í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Fyrir ekki svo löngu fór ég
við annan mann upp í Menntamálaráðuneyti daginn áður en
þjónususamningurinn var lagður fram, til að hindra að samningurinn
væri innihaldslaust plagg áður en svo mikið sem hann væri
undirritaður. Okkur tókst að hindra að samningurinn færi frá ríkinu í
mótsögnum við gildandi landslög og Evrópusamninga og viðurkenndar
skilgreiningar á þekktum stærðum. Yfirstjórn RÚV hafði barist fyrir
því að heimasoðnar skilgreiningar RÚV á skilgreindum hugtökum eins og
íslensk framleiðsla, nýsköpun í dagskrárgerð og sjálfstæður
framleiðandi yrðu hluti laganna. Þetta hefði þýtt að ekki hefði þurft
að gefa í við íslenska dagskrárgerð því þeir sem sópuðu stúdíógólf
eftir fréttaútsendingar hefðu verið skilgreindir sem íslenskir
kvikmyndaframleiðendur – svo lengi sem þeir væru verktakar. Þetta
náðist sem betur fer að stöðva í tæka tíð en það þýðir ekki að
fjármálastjórn RÚV hafi breyst við að ohf kom fyrir aftan nafnið.
Þetta sést best á þeim ófullkomnu tölum sem Mennta- og
menningarmálaráðherra las upp í Alþingi um daginn og taldi að hún væri
að lesa upp það sem eytt væri í íslenska nýsköpun í dagskrárgerð.
Þegar rýnt var í tölurnar frá 2008-2009 kom fljótlega í ljós að
blekkingaleikur RÚV hélt purkunarlaust áfram og ráðherranum var ýtt út
á foraðið. Upphaflega talan hljóðaði upp á 177 milljónir en þegar
búið var að draga frá liðinn talsetning á erlendu barnaefni sem er tæp
40% af heildarupphæðinni var eftir 108 milljónir. Miðað við samskipti
mín við RÚV hvað þessi málefni varðar kæmi mér ekki stórlega á óvart
ef að restin minnkaði eitthvað ef að farið væri út í hvað stæðist
skilgreiningar þjónustusamningsins. Og ef að þessar tölur væru gerðar
aðgengilegar stæði ekki á kvikmyndagerðarmönnum að rýna í þær ykkur að
kostnaðarlausu.
Eftir sitjið þið, fulltrúar okkar eigendanna, og vonandi er það runnið
upp fyrir ykkur að það er verið að svindla á okkur öllum.
Eftirlitsaðilarnir – hin pólitískt skipaða stjórn RÚV – gerði svipað
og aðrar eftirlitsstofnanir hafa gert undanfarin ár á Íslandi: sat
aðgerðalítil og kvittaði upp á að allt væri í lagi, sama hvað á borð
borið var. Það er í raun ekki við stjórn RÚV að sakast. Þetta er
allt saman ágætisfólk en það hefur ENGAR FAGLEGAR FORSEMDUR til að
takast á við blekkingar af þessu tagi. Það þarf að skipa í stjórnina
með faglegar forsemdur að baki – í versta falli að fá þá þjónustu utan
frá. Þá er ég að tala um fólk sem veit um hvað dagskrár- og
kvikmyndagerð snýst og hvað er í raun á bak við þær tölur sem stjórn
RÚV fær í hendurnar. Ég bendi á að formaður stjórnar RÚV, Svanhildur
Kaaber, er búin að staðfesta hvernig ferlið fer fram og að stjórnin
geti á engan hátt metið sannleiksgildi þess sem á borð er borið fyrir
þau af útvarpsstjóra og félögum.
Í ljósi þess hversu snögg þú varst, Katrín, að hreinsa til í stjórn
LÍN fyrir um það bil ári vænti ég þess að eitthvað gerir þú í málunum.
Þú hlýtur að minnsta kosti að vera sammála um nausyn þess að fagfólk
komi að stjórn RÚV, frekar en pólítíkusar – hvursu ágætir sem þeir
kunna að hafa staðið sig á óskyldum vettvangi.
Einnig vænti ég þess, í ljósi þess hversu nauðsynlegt það var talið að
allt í einu réðu fagleg sjónarmið því hver sæti í Seðlabankastjórastól
ekki alls fyrir löngu, að fagleg sjónarmið verði látin ráða ferðinni
hvernig tekið verði á málefnum RÚV ohf og ummælum útvarpsstjóra um að
RÚV væri að hætta kaupum á íslenskum heimildamyndum og leiknum myndum.
Ummæli sem komu í kjölfar hins stórkostlega niðurskurðar
Kvikmyndamiðstöðvar sem þið kannist jú bæði við.
Ég hlakka til að fá frá ykkur fréttir hvað varðar RÚV og málefni þess.
Ég hlakka líka til að fá fréttir um málefni KMÍ frá ykkur. Ég geri
ekkert frekar ráð fyrir að fá frá ykkur svar við þessu lettersbréfi –
aðgerðir ykkar í rétta átt eru mér nægjanlegt svar.
Bestu kveðjur,
Þorkell Sigurður Harðarson kvikmyndagerðarmaður.
PS: Ég læt fylgja með myndræna útfærslu á matreiðslu útvarpsstjóra á
kostnaði við aðkeypta nýsköpun frá sjálfstæðum framleiðendum. Þetta
minnir mig dálítið á rétt sem ég borða stundum hér í Bandaríkjunum –
svokallaðan TURDUCKEN. Sem gæti útlagst Kalkandlingur. Þá er kalkúnn
fylltur með önd sem er fyllt með litlum kjúklingi og allt bakað við
vægan hitan í langan tíma. Páll Magnússon hefur borið á borð fyrir
ykkur kalkún. Þegar búið er að skera frá óviðkomandi kostnað eins og
talsetningu erlends barnaefnis, kemur í ljós að þið fenguð bara önd
… og þegar búið er að fara í saumana á skilgreiningum
þjónustusamningsins og efndum hans kemur í ljós að til skiptanna er
einn mauksoðinn kjúklingsræfill sem kemst fyrir á undirskál. Þið
getið smellt á myndina, prentað hana út og hengt upp á skrifstofum ykkar í
ráðuneytum til að minna okkur á að við vorum öll plötuð – eftir
stendur spurningin um hvað þið ætlið að gera í því?
nóv
15
Menntamálaráðherra svarar hinu opna lettersbréfi frá Nýja heiminum
nóvember 15, 2009 | | Ein ummæli
Menntamálaráðherra hefur svarað opnu bréfi mínu frá 11.september síðastliðnum. Ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á svari svona fljótt. Katrín minnir á Björn Bjarnason að því leyti – mál fá afgreiðslu fljótt – síðan er spurning um hvort afgreiðslan sé í samræmi við væntingar þeirra sem að málinu koma. Þennan háttinn mættu fleiri stjórnmálamenn temja sér í stað þess að ekki er hægt að fá fundi með ráðherra nema að vera í sama trú- og stjórnmálaflokki og þeir. Aðrir bíða.
Hér á eftir fylgir svar ráðherra við hinu opna lettersbréfi frá Nýja heiminum sem má sjá annarsstaðar á þessari bloggsíðu. Ég birti svar Katrínar á sama vettvangi og hið opna bréf birtist – einnig má sjá svar mitt til hennar fyrir neðan.
SVAR KATRÍNAR VIÐ HINU OPNA LETTERSBRÉFI:
Sæll Þorkell,
í stuttu máli sagt þá var ekki beinlínis auðvelt að berja saman þau niðurskurðarfjárlög sem nú liggja fyrir. Þegar línurnar voru lagðar síðastliðið vor var ákveðið af ríkisstjórn að við þessar erfiðu aðstæður yrði miðað við að almennur niðurskurður yrði 10% en nokkru lægri, eða 7% í skólamálum, og 5% í félags- og heilbrigðismálum.
Í þeim tillögum sem lagðar voru fram af menntamálaráðuneytinu slapp engin menningarstofnun við niðurskurð. Hins vegar var niðurskurðurinn ekki flatur heldur miðaðist hann bæði við það að viðhalda þeim innviðum sem byggst hafa upp og að ganga ekki of nærri grundvallarstofnunum á menningarsviðinu. Einnig var reynt horfa til sveigjanleika innan listgreinanna til að takast á við niðurskurð. Þess ber að geta að flestallir sjóðir á menningarsviðinu fengu hagræðingarkröfu upp á 15%. Hins vegar voru nokkrir liðir sem höfðu aukist mjög mikið milli ára sem voru teknir meira niður og það á við um Kvikmyndasjóð og reyndar ýmsa fleiri liði sem hafa aukist mjög mikið milli ára (í mínu ráðuneyti á það sama t.d. við jöfnunarsjóð námsmanna sem veitir dreifbýlisstyrki en þetta á líka við um aðra liði í öðrum ráðuneytum).
Eins og hefur komið fram í fjölmiðlum þá hef ég sagt að rétt sé að endurskoða niðurskurð til Kvikmyndasjóðs þannig að hann verði í samræmi við aðra sjóði og hef raunar bent á mögulegar tilfærslur í því skyni. Vona ég að það gangi eftir við frekari umfjöllun um fjárlagafrumvarpið.
Með kærri kveðju, Katrín.
SVAR MITT TIL KATRÍNAR FYLGIR HÉR Á EFTIR:
Sæl Katrín,
Þakka fyrir svarið.
Ég held að allir séu sammála um að engin stofnun sleppi við niðurskurð. Hvort sem um er að ræða menningarstofnun eða ekki. Það er einfaldlega afleiðing af hruni Íslands. Síðan má deila um hverju og hverjum hrunið sé að kenna.
Það sem mér finnst “athyglisvert” í svari þínu er að það er ekki tekið tillit til að í fyrra var skorið niður um 15% hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Sum sé niðurskurðarkrafan upp á 15% sem þú talar um í svari þínu var þegar komin til framkvæmda. Ofan á það er stungið upp á 34% niðurskurði – vegna þess að KMÍ hefur vaxið á milli ára – og samkvæmt bréfi þínu á KMÍ að þola þennan niðurskurð.
Eins og málið horfir við mér og mörgum af mínum kollegum hefur KMÍ vaxið vegna þess að það var gerður samningur við ríkið upp á þennan vöxt – og nú er ríkið ekki að standa við sitt.
Eftir stendur að hlutfallslegur niðurskurður KMÍ er í engu hlutfalli við hlutfallslegan niðurskurð annara menningarstofnana – heil iðn- og menningargrein er í uppnámi og bíður með öndina í hálsinum eftir leiðréttingu á því sem ég vill enn kalla “innsláttarvillu ráðuneytisins”. Það eina sem við og fjölskyldur okkar fá frá þér er að “rétt sé að endurskoða niðurskurð til Kvikmyndasjóðs þannig að hann verði í samræmi við aðra sjóði” og að þú hafir “raunar bent á mögulegar tilfærslur í því skyni.”. Einnig að þú vonir að það gangi eftir við frekari umfjöllun um fjárlagafrumvarpið.
Kæra Katrín – það er ekki nóg að svara okkur á pólitísku, alveg eins og fyrri stjórnarherrar hafa verið iðnir við. Sérstaklega eftir að hafa látið þessa nðurskurðartillögu frá þér fara – og á sama tíma verið með aðra skoðun á málinu. Kvikmyndaiðnaðurinn bíður vongóður eftir alvöru svari frá þér á íslensku – hana skiljum við betur en pólitísku. Hafðu það sem allra best þangað til og vertu sá staðfasti ráðherra sem ég kaus þig til að vera en ekki einn þeirra sem eru eins og rótlaust þangið.
Bestu kveðjur,
Þorkell Harðarson
nóv
10
Eitt lítið opið lettersbréf til Katrínar Jakobsdóttur frá Nýja heiminum
nóvember 10, 2009 | | 2 ummæli
Kæra Katrín, hæstvirtur menntamálaráðherra og samflokksmaður minn:
Hér er eitt lítið opið lettersbréf til þín frá Nýja heiminum. Ástæða þess að ég skrifa þér í dag er sú að ég verð að benda þér á innsláttarvillu í niðurskurðartillögum í málaflokki sem varðar atvinnu mína, kvikmyndagerð. Þar sem þú ert æðsti yfirmaður kvikmyndamála á Íslandi í dag finnst mér réttast að beina þessu til þín svo að þú kippir þessu í liðinn strax.
Þannig er að umsnúningarnir sem átt hafa sér stað í íslensku samfélagi síðasta árið eða svo hafa hvorki farið fram hjá mér né þér. Þú situr allt í einu í ráðherrastól fyrir flokk sem hefur unnið stórsigur í síðustu kosningum eftir að hafa verið í stjórnarandstöðu frá stofnun hans. Ég, burtfluttur, sit úti í New York í mínum eldhússtól og fylgist með í gegnum tölvuna hvað allt er öfugsnúið og hvað mikið af furðulegum hlutum og gjörningum kemur upp á yfirborðið … og nú síðast sá ég eitt furðuverkið birtast ekki alls fyrir löngu. En það sem kom mér mest á óvart var hvaðan það kom. Það kom frá þér, mín kæra Katrín.
Það sem ég er að tala um eru niðurskurðartillögur þíns ráðuneytis varðandi kvikmyndagerð á Íslandi. Í fyrra voru framlög til Kvikmyndamiðstöðvar skorin niður um 15% eftir að Ísland fór á hausinn með hvelli eftir fjármálagjörninga misviturra manna og þenslustefnu misþroska stjórnarflokka. Gott og vel, Þorgerður Katrín var menntamálaráðherra þá og þetta skrifast á hana, hennar flokk og hrunið. Ég held að flestir hafi ákveðinn skilning á því – í ljósi ástands þjóðarinnar og stjórnarfarsins í hruninu. EN ári síðar … eftir að þú hefur verið að vinna í niðurskurðartillögum með þínum ráðgjöfum, embættismönnum og starfsmönnum menntamálaráðuneytisins koma fram undarlegar niðurstöður ykkar vinnu. Að meðaltali er niðurskurður til menningarmála einhversstaðar á bilinu 5-10%. Ég held að allir hugsandi menn hafi skilning á því – úr því sem komið er. En ég veit ekki um neinn sem skilur af hverju niðurskurður til kvikmyndagerðar er 34%.
Þetta verður eiginlega að skrifa í bókstöfum svo að enginn haldi að hér sé um innsláttarvillu að ræða: Þrjátíu og fjögur prósent.
En um daginn kom yfirlýsing frá FK, félagi kvikmyndagerðarmanna, þar sem talað var um að þessi 34% hlyti að hafa verið innsláttarvilla. Þegar ég sá það, rann upp fyrir mér ljós. Þetta hefur kannski átt að vera 3-4% … eða hvað? Kannski hefur enginn viljað benda ykkur í menntamálaráðuneytinu á þessa innsláttarvillu hjá ykkur – en hér með geri ég það og bíð eftir leiðréttingunni. En á meðan ég og mínir kollegar bíða heldur þú á fjöreggi íslenskra kvikmynda í hendi þér og við bíðum á milli vonar og ótta eftir úrskurði þínum.
Þegar verið var að undirbúa síðustu kosningar var ég einn af þeim sem kaus í prófkjöri VG. Þú varst ein af þeim sem ég kaus – vegna þess að mér leist vel á málflutning þinn og ég hafði trú á þér sem stjórnmálamanni. Ég var viss um að þú værir ekki haldin þeim leiða sið stjórnarherra síðustu áratuga að geta ekki viðurkennt mistök og benda bara á aðra þegar eitthvað af sökinni liggur hjá þeim sjálfum. Síðan í kosningunum kaus ég þig og þinn flokk og studdi við ykkur alla leið með ráð og dáð og fékk mína ósk uppfyllta þegar VG settist í stjórn. Og mikil var gleði mín þegar ég sá að þú settist í stólinn í menntamálaráðuneytinu.
En jafnmikil og gleði mín var þegar þú tókst við lyklavöldum í ráðuneytinu – þá var furða mín og vantrú meiri þegar ég sá niðurskurðartillögurnar þínar til handa kvikmyndagerðar í landinu. Ég ætla ekki að telja upp margfeldiáhrif hverrar krónu sem lögð er í kvikmyndagerð, landkynninguna, gjaldeyrissköpunina eða lýsa því hversu mannfrekur iðnaður kvikmyndagerð er. Það er hlutverk annara sem hafa valist í forystusveit kvikmyndagerðarmanna. EN ég ætla að biðja þig um að íhuga meðalhóf og jafnræði – það eru þeir hlutir sem ég kaus þig út á. Ég kaus þig ekki út á þetta furðuverk sem birtist alþjóð í formi tillögu um 34% niðurskurð á framlögum til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Þannig að á meðan ég fæ ekki fréttir um að þú hafir dregið til baka innsláttarvilluna hvimleiðu íhuga ég vandlega hvar ég beiti mínum kröftum til að auka jafnræði og réttlæti á Íslandi. Mér sýnist allavega að það sé umhugsunarvert hvert stefnir með þessu áframhaldi.
Með vinsemd og virðingu – þinn félagi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi fyrir alla. Þorkell Sigurður Harðarson
nóv
5
Sultáninn er mættur á Bloggheima …
nóvember 5, 2009 | | 2 ummæli
Hér bloggar Sultáninn af Reykjavík – einnig þekktur undir nafninu Þorkell Harðarson kvikmyndagerðarmaður … sem er alter egó Sultánsins. Takk fyrir boð í góðan hóp Guðný – mér líst vel á hann. Meira síðar frá Sultáninum.

