Heim
Blogg
Hafa samband/Auglýsa
Leit
Skilmálar/Ritstjórn
Spurt og svarað
Um okkur
Bloggheimar
Get your own Bloggheimar account in seconds
Username:
(Must be at least 4 characters, letters and numbers only.)
Email Address:
(We’ll send your password to this address, so
triple-check it
.)
Password:
(Leave fields blank for a random password to be generated.)
Confirm Password:
(Type your new password again.)
TOS:
Bloggheimar er vefur fyrir einstaklinga sem vilja opna sínar eigin bloggsíður. Til þess að mega skrifa á vefinn, ber notendum að gangast undir eftirfarandi reglur og skilmála: 1. Notandi velur sér notandanafn og lykilorð við nýskráningu. Notandi ber ábyrgð á því að lykilorði sé ekki deilt með öðrum og ber því fulla ábyrgð á því sem framkvæmt er eftir innskráningu. 2. Ef notandi bloggsíðu gefur öðrum heimild til að skrifa á síðuna ber hann fulla ábyrgð á skrifunum. Á það bæði við bloggskrif og athugasemdir. 3. Með því að ljúka innskráningu, samþykkir notandi þá skilmála og reglur sem Bloggheimar setur fram. Áskilja Bloggheimar sér fullan rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust. 4. Notendum er frjálst að koma fram undir dulnefni á bloggi sínu, en ekki er heimilt að villa á sér heimildir. Verður einhver uppvís að slíku, verður lokað fyrir aðgang viðkomandi af hálfu Bloggheima án nokkurrar viðvörunar. Bloggheimar mælist þó til að fólk skrifi undir sínu rétta nafni frekar en dulnefnum. 5. Notkun á texta, skjölum, hugbúnaði, myndböndum, tónlist og öðru höfundarréttarvörðu efni er óheimilt nema með samþykki rétthafa. Verður slíkt efni fjarlægt að beiðni rétthafa. 6. Ef notandi bloggsíðu brýtur ítrekað reglu um að setja höfundarréttarvarið efni, þá áskilja Bloggheimar sér allan rétt til að loka fyrir síðu viðkomandi. 7. Óheimilt er með ölllu að birta efni á síðum bloggheima sem særir blygðunarsemi fólks s.s. klám og hrottalegt ofbeldi sem varðar við lög. Munu Bloggheimar grípa til viðeigandi aðgerða og fjarlægja efni ef ástæða þykir til. 8. Bloggheimar ber á engan hátt ábyrgð á því sem notandi setur inn á bloggsíðu sína eða þeir sem heimsækja síðu hans. Öll skrif á síðu notanda eru á hans ábyrgð, ef mál skyldu rísa upp vegna skrifa viðkomandi notanda og athugasemda á síðu hans. 9. Með því að staðfesta skilmála og reglur Bloggheima, þá staðfestir notandi ábyrgð sína á öllum skrifum, myndbirtingum, myndbandabirtingum og öðru efni sem birtist á síðu hans. 10. Óheimilt er með öllu að dreifa ruslpósti(SPAM) á vefnum, hvort sem það er í gegnum bloggfærslur, athugasemdir við skrif eða á aðra vegu. Einnig er óheimilt að nota vefinn í atvinnuskyni eða í auglýsingastarfsemi. Þó er frjálsum félagasamtökum eða góðgerðarsamtökum það heimilt að halda út síðu og birta tilkynningar um starfsemi sína. 11. Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni, áreiti, hótunum, níðskrifum eða nokkru öðru sem getur valdið saklausu fólki skaða. Notandi samþykkir sérstaklega að miðla ekki háði, rógi, smánun, ógnun eða ráðast á mann eða hóp manna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, í samræmi við ákvæði 233. Gr. A. Almennra hegningarlaga nr.19/1940. Einstaklingar sem verða uppvísir að slíku, mega eiga von á að Bloggheimar grípi inn og loki fyrir aðgang ef Bloggheimar telja skrifin brjóta í bága við þessi lög. 12. Bloggheimar áskilja sér fullan rétt til þess að grípa inn í, ef notandi verður ekki við beiðni eða óskum um breytingar mjög ómálefnalegra skrifa(svokallaðs skítkasts) eða fjarlægingu meiðandi ummæla, og fjarlægja/breyta slíku til hins betra. Þó munu Bloggheimar ekki skipta sér af skrifum eða skoðunum sem eru sett fram á málefnalegan hátt og mun reyna á hlutlausan hátt úrskurða hvort þörf sé á að taka á kvörtunum vegna skrifa/athugasemda. 13. Bloggheimar áskilja sér rétt til að loka síðu notanda að hluta eða með öllu, án þess að til skaðabótaréttar komi af hálfu notanda eða þriðja aðila. Telst sá réttur samþykktur með stofnun notanda á vefnum. 14. Bloggheimar ber enga ábyrgð á tjóni, vegna bilunar í tæknibúnaði eða óvirkrar þjónustu vefsins. Bloggheimar ber heldur enga ábyrgð á glötuðum gögnum eða skrifum sem glatast af þessum orsökum eða öðrum.
I Agree:
Verification: